Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 17

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 17
| 17FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016 glæta vaknaði meðal hálfra þjóðar- innar sem var í losti. Nokkrum dögum síðar var ljóst að það væri óskhyggja að einhver breyting hefði átt sér stað, því nú tók við tímabilið þar sem hann réð hvern reynslulausan, öfgafullan og hagsmunatengdan aðilann á fætur öðrum í æðstu embætti landsins. Þannig hafði nýr fjármálaráðherra alið manninn í fjárfestingabank- anum Goldman Sachs og við að gera Hollywood myndir, ráðherra menntamála og nýr yfirmaður op- inbera skólakerfisins hafði sérhæft sig í að færa börn yfir í einkarekna skóla. Mótmælendur flykktust út á götur þegar í ljós kom að hann hafði ráðið sér sérstakan pólitísk- an ráðgjafa að nafni Stephen K. Bannon en sá rak um tíma öfga- -hægrisinnuðu fréttaveituna Breit- bart News. Í starf atvinnuvegaráðherra er svo forstjóri skyndibitakeðju og nýr orkumálaráðherra hefur barist hatrammlega gegn endurnýtanleg- um orkugjöfum. Flestir eiga þessir aðilar sammerkt að hafa litla sem enga reynslu af því að stýra opin- berum sjóðum en hafa hinsvegar hagnast ríkulega af viðskiptum. Vendingar gagnvart Kína Í síðustu viku hringdi síminn í Trump-turninum og ólíkt f lest- um öðrum símtölum var ætlast til þess að Trump myndi ekki svara. Á hinni línunni var leiðtogi Taív- an, sem Bandaríkin hafa ekki virt viðlits í 40 ár. Málið snýst í hnot- skurn um að viðurkenna ekki til- vist Taívan sem fullvalda ríkis, til að styggja ekki kínversk stjórnvöld sem enn líta á Taívan sem hluta af Kína. Í áratugi hefur Taívan hag- að sér sem sjálfstætt ríki í óþökk kínverska stórveldisins. En Trump, sem lætur ekki segja sér fyrir verk- um, svaraði í símann. Kínversk stjórnvöld létu óspart í ljós óánægju sína. Trump brást við gagnrýninni með því tísta á samfé- lagsmiðlinum Twitter: „Forsetinn HRINGDI Í MIG til að óska mér til hamingju með forseta- kjörið, takk fyrir,“ skrifaði hann og bætti við; „Áhugavert hvernig Bandaríkin selja Taívan hernaðar- gögn fyrir milljónir dollara en ég á ekki að taka við hamingjuóskum í símtali.“ Hvort Trump lét blekkjast þegar forseti Taívan sá sér leik á borði með því að slá á þráðinn, er óljóst. Eða hvort það var ætlun Trumps að sýna kínverskum stjórnvöld- um að nú væri kominn nýr karl í brúnna sem léti ekki annað stór- veldi stjórna sér, eins og hann var svo sem margítrekað búinn að lofa í kosningabaráttunni. Enn verra er, ef rétt reynist vera, að sá grunur margra að stefnu- og þekkingar- leysi Trumps í utanríkismálum geri hann að leiksoppi erlendra ríkja, sem gætu mögulega skaðað lang- tíma hagsmuni landsins. Mótmælendur flykktust út á götur þegar í ljós kom að hann hafði ráðið sér sérstakan pólitískan ráðgjafa að nafni Stephen K. Bannon en sá rak um tíma öfga-hægrisinnuðu fréttaveituna Breitbart News. Á milli þess sem Trump húðskammar leikarann Alec Baldwin á Twitter fyrir að vera ósanngjörn eftirherma sín í spaugstofuþætti þeirra Bandaríkjamanna, Saturday Night Live, eða tekur snúning á umræðum um tilgang lífsins með söngvaranum Kanye West á gulli þöktu heimili sínu í New York borg, ræður hann æðstu yfirmenn landsins í margvísleg embætti og rífur kjaft á Twitter við stórveldi heimsins. Hjá okkur færðu þýsk gæðatæki frá Siemens, Bosch og Gaggenau. Fyrir jólin bjóðum við fjölda glæsilegra tækja á sérstöku jólaverði. Komdu til okkar og gerðu frábær kaup þér og öðrum til ánægju. Bosch Matvinnsluvél MCM 3110W 800 W. Tvær hraðastillingar og ein púlsstilling. Tætir, sneiðir, rífur og sker. 2,3 lítra skál. Örugg í notkun: Fer aðeins í gang þegar lok er í læstri stöðu. Fullt verð: 11.900 kr. Jólaverð: 9.500 kr. Bosch Blandari MMB 42G0B Einstaklega hljóðlátur. 700 W mótor. Fullt verð: 16.900 kr. Jólaverð: 11.900 kr. Bosch Gufustraujárn TDA 102411C Öflugt, 2400 W. Slekkur sjálfkrafa á sér. Fullt verð: 9.900 kr. Jólaverð: 7.500 kr. Siemens Espressó-kaffivél TE607203RW Hraðvirk upphitun. Einstök bruggtækni. Bruggar og útbýr tvo bolla í einu af kaffi, cappuccino og Latte Macchiato. 19 bara þrýstingur. Fullt verð: 189.900 kr. Jólaverð: 139.900 kr. Bosch Ryksuga BGL 25MON5 Orkuflokkur A. Parkett og flísar, flokkur A. Átta metra vinnuradíus. Fullt verð: 20.900 kr. Jólaverð: 15.900 kr. Rommelsbacher Vöfflujárn WA 1000/E Glæsilegt 1000 W vöfflujárn úr burstuðu stáli. Viðloðunarfrítt yfirborð. Fullt verð: 13.900 kr. Jólaverð: 10.900 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.