Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 25
| 25FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016
„Dejà vu“
Oftast er erfiðast að finna jólagjöf
fyrir makann sem slær í gegn, en
hún Sigrún Drífa Jónsdóttir taldi
sig sannarlega hafa þetta á hreinu
eitt árið. Annað kom þó á daginn.
„Ég var búin að hugsa mikið hvað
ég gæti gefið Árna, þetta var alltaf
jafn erfitt. Ákvað svo að ég ætlaði
að gefa honum ákveðið úr sem ég
hafði séð. Ég var virkilega ánægð
með mig og þessa ákvörðun þar
sem ég var búin að taka eftir því að
hann vantaði úr. Þetta úr var mjög
flott. Ég hafði því litlar áhyggjur af
þessu og fór á Þorláksmessukvöld
að kaupa úrið. En þar sem ég stóð
í biðröð í úrabúðinni og það var
alveg að koma að mér á kassanum
fékk ég „dejá vu“. Mér fannst ég
allt í einu hafa staðið í nákvæm-
lega sömu sporum áður. Þá mundi
ég það. Ég hafði raunverulega ver-
ið í þessari sömu búð jólin áður og
keypt úr handa honum í jólagjöf!
Ég hringdi meira að segja í hann
til að fá það staðfest og komst þá
að því að hann hafði gefist upp á
að nota það eftir nokkra daga því
hann fílar ekki að ganga með úr.
Þar sem mér fannst úrið svo fallegt
og röðin loks komin að mér, ákvað
ég í staðinn að kaupa kvenútgáf-
una staðinn handa sjálfri mér. Ég
lét pakka því inn fyrir mig og setti
undir tréð. Ég hef gengið með það
daglega síðan.
Árni fékk voða fína ullarpeysu
þau jólin sem ég fann í næstu búð
og var mjög ánægður með hana.“
Sigrún Drífa Jónsdóttir upplifði undarlega tilfinningu í biðröð við
kassa þegar hún ætlaði að kaupa jólagjöf fyrir makann. Mynd | Rut
Laugavegi 15 og Kringlunni - sími 511 1900 - www.michelsen.is
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is
Verð frá 89.900
ARVA snjóóðavörurnar þekkir allt útivistarfólk
og nú hafa þeir kynnt til sögunnar snjóóða-
bakpokann Reactor. Glæsilegir og vel hannaðir
snjóóðapokar fyrir snjósleða- eða fjallaskíðafólk
með tveim belgjum niður með síðum sem lyftir
líkamanum upp í efsta lag snjóóðsins.
Vertu öruggur á fjöllum með ARVA.
ARVA Reactor
snjóóðabakpoki