Fréttatíminn - 14.01.2017, Síða 2

Fréttatíminn - 14.01.2017, Síða 2
Hrannar Már Gunnarsson er stjórnandi leigjenda- aðstoðar Neytenda- samtakanna. Pétur Markan er sveit­ arstjóri Súðavíkur­ hrepps. 2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 14. janúar 2017 Hólmfríður Bjarnadóttir, eða Hófý eins og við flest þekkjum hana, verður á skrifstofu Bændaferða 16. - 20. janúar milli kl. 11:00 - 16:00. Kíktu við í kaffi og fáðu upplýsingar um ferðir ársins frá einum vinsælasta fararstjóra Bændaferða. Hófý, fararstjóri Bændaferða verður á skrifstofunni 16. - 20. janúar Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK sp ör e hf . Ráðningar Umboðsmaður Al­ þingis setur ofan í við Lánastofn­ un íslenskra námsmanna fyrir að brjóta á starfsmanni sem sagt var upp störfum. Stofnunin réði sumarstarfsmann til að sinna 12 mánaða verkefni sem hinn rekni hefði hæglega getað sinnt. Sá sem var rekinn frétti af málinu á með­ an hann vann uppsagnarfrestinn og leitaði þá til umboðsmanns Alþingis. Hjálmar Friðriksson hjalmar@frettatiminn.is Umboðsmaður telur að LÍN hafi ekki verið heimilt að ráða sum- arstarfsmann án auglýsingar til verkefnisins. Meðalhófsreglu hafi ekki verið fylgt við uppsögn fast- ráðna starfsmannsins, sem var rekinn vegna skipulagsbreytinga. Í nýlegu áliti umboðsmanns kem- ur fram að báðir starfsmenn hafi unnið við afgreiðslu og skjalahald hjá LÍN. Sumarstarfsmaðurinn hafði þó fyrst og fremst unnið við átaksverkefni við að skila inn gögnum úr skjalageymslum LÍN til Þjóðskjalasafns Íslands. Það verkefni hafi dregist og því var ákveðið að ráða sumarstarfs- manninn til áframhaldandi starfa í eitt ár. Umboðsmaður gagnrýnir LÍN sérstaklega fyrir reka umrædd- an starfsmann þegar það lá fyrir að hluti skipulagsbreytinga væri að fá bókasafns- og upplýsinga- fræðing til að sinna skjalavörslu og skilum á gögnum til Þjóð- skjalasafnsins. Brottrekni starfs- maðurinn sé menntaður í þeim fræðum og hafi starfið, sam- kvæmt umboðsmanni, fallið vel að menntun hans og þekkingu. Umboðsmaður telur að í ljósi meðalhófsreglu hefði LÍN átt að meta hvort draga ætti uppsögn starfsmannsins til baka eða bjóða honum tímabundna starfið. Um- boðsmaður tekur ekki afstöðu til þess hvort tilefni sé fyrir fyrrver- andi starfsmann- inn til að höfða mál á hendur LÍN. LÍN braut gegn starfsmanni Hrafnhildur Ásta Þor­ valdsdótt­ ir er fram­ kvæmda­ stjóri LÍN. Stefnu um laxeldi áður en tjón verður á náttúru Laxeldi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs­ ráðherra segir að það sé brýnt verkefni að móta stefnu fyrir Ísland í laxeldi. Fyrirhugað er að tífalda framleiðslu Íslendinga á eldislaxi og verða firðir eins og Ísafjarðardjúp og Arnarfjörður þaktir eldiskvíum. Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is „Mér finnst skipta miklu máli að við tökum tillit til umhverfisins. Við þurfum ávallt að hafa það í huga þegar við erum að koma að því að byggja upp nýja atvinnu- grein. Við verðum að byggja mat okkar á rannsóknum á lífríkinu og umhverfinu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, að- spurð um hvaða skoðanir hún hafi á stórfelldri aukningu á laxeldi í fjörðum Íslands. „Við þurfum svo að skoða það hvað möguleikar eru fyrir hendi til að byggja upp öfluga atvinnugrein án þess að ógna þessu lífríki.“ Þorgerður Katrín mun taka við því verkefni fyrirrennara síns í ráðuneytinu, Gunnars Braga Sveinssonar, að hafa yfirumsjón með vinnu við stefnumörkun um stefnu Íslendinga í fiskeldi en sér- stök nefnd mun sjá um þetta ver- kefni. „Við þurfum að móta hér stefnu til framtíðar um fiskeldi. Þetta er eitt af því sem ég myndi leita til annarra stjórnmálaflokka með,“ segir hún. Íslendingar hafa framleitt 8 til 15 þúsund tonn af eldislaxi síðastliðin ár en stefnt er að því að um 100 þús- und tonn verði framleidd á ári. Því er um að ræða um það bil tíföldun á framleiðslunni. Eins og Fréttatím- inn greindi frá fyrir viku er með- al annars fyrirhugað að framleiða 25 þúsund tonn af eldislaxi í Ísa- fjarðardjúpi. En það eru fyrirtæk- in Artic Sea Farm, Fjarðalax og Háafell, dótturfélag útgerðarinnar Gunnvarar í Hnífsdal, sem munu framleiða laxinn í Djúpinu ef leyfi fást fyrir því. Þá hefur Arctic Sea Farm sótt um leyfi til að framleiða 4 þúsund tonn af laxi í Arnarfirði en sú framleiðsla bætist við það eldi sem Fjarðalax er með í firðin- um. Þá er einnig fyrirhugað aukið laxeldi á Austurlandi þar sem Fisk- eldi Austurlands er fjármagnað að miklu leyti af fjársterku norsku lax- eldisfyrirtæki, Midt Norsk-Havbruk. Fjarðalax er einnig fjármagnað af stóru laxeldisfyrirtæki að hluta, Sal- mar AS. Laxeldisfyrirtækin kynna fram- kvæmdir sínar til Skipulagsstofnun- ar með þeim hætti, meðal annars, að laxeldið geti snúið við neikvæðri byggðaþróun á þeim stöðum þar sem eldið er fyrirhugað. Háafell sagði til dæmis í sinni skýrslu að 30 þúsund tonna laxeldi í nágrenni við Ísafjörð gæti aukið íbúafjölda um 1000 í sveitarfélaginu. Þorgerður Katrín segir að þetta sé hennar prinsippafstaða en að hún eigi eftir að setja sig betur inn í málaflokkinn þar sem hún hafi einungis verið tvo daga í embætti sjávarútvegsráðherra. „Við erum í þeirri stöðu að geta gert þetta með öðrum hætti en Norðmenn. Norð- menn hafa komið með reglur um laxeldið en þeir hafa gert það eftir á, eftir að þeir hafa orðið fyrir tjóni. Við erum ennþá í þeirri stöðu að geta mótað stefnu á fyrstu stigum og áður en tjónið verður. Þetta er eitt af þessum knýjandi verkefnum sem við stöndum frammi fyrir,“ segir Þorgerður Katrín. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávar­ útvegsráðherra vill að Íslendingar stígi varlega til jarðar í framleiðslu­ aukningu í laxeldi svo náttúra landsins verði ekki fyrir skaða. Algengt að leigjendur þurfi að sinna viðhaldi Vefpressunni stefnt vegna skulda Hannes Alfreð Hannesson, fram- kvæmdastjóri Póstdreifingar, seg- ir að Vefpressan skuldi félaginu háar upphæðir. Póstdreifing hefur dreift þremur vikublöðum Vef- pressunar, Reykjavík, Garðabær og Hafnarfjörður. Félagið hefur stefnt Vefpressunni vegna skuld- anna og verður málið tekið fyrir við Héraðsdóm Reykjavíkur á föstudaginn í næstu viku. Vikublöðin þrjú hafa ekki komið út frá síðan í sumar. Eigandi Vef- pressunnar, Björn Ingi Hrafnsson, vildi ekki tjá sig um málið og vís- aði á lögmann félagsins, Sigurvin Ólafsson. Sigurvin segir að um sé að ræða ágreiningsmál þar sem séu kröfur á báða bóga. | hjf Fjölmiðlar Skattamál Útsvarstekjur Súða­ víkurhrepps minnkuðu um tíu prósent á milli ára 2015 og 2016. Pétur Markan, sveitarstjóri Súða­ víkurhrepps, segir að eina leiðin til að skýra þessa miklu lækkun sé að íbúar feli einkaneyslu í hlutafélögum sínum. Hann segir að með því benda á þetta sé verið að vernda almannahag því ef tekj­ ur sveitarfélagsins lækka þarf að draga þjónustu við almenning. Pétur segir að vandamálið sé vel þekkt meðal stjórnenda sveitarfélaga en sé einskonar heit kartafla, lítið talað um það. „Þetta er vandamál í öll- um sveitarfélögum. Ég held að það átti sig allir á málinu þegar það er útskýrt. Þú ert með lítið einkahlutafélag með einum starfs- manni, til dæmis. Þetta félag getur átt hús, bíl og jafnvel rekið mötu- neyti. Þá ertu kominn ansi langt með það sem við meðaljónar erum að eyða laununum okkar í. Þessir sömu aðilar þrýsta svo laununum sínum niður, greiða sér minni laun, en taka svo meiri arð út úr félaginu í staðinn. En af því borga þeir fjár- magnstekjuskatt, sem er lægri, og sveitarfélög eiga enga hlutdeild í því,“ segir Pétur. | hjf Skattamál Skattaglufur skýra minna útsvar Leigumarkaður Það er orðið algengara að leigjendur þurfi að sinna viðhaldi á íbúð sem þeir leigja þrátt fyrir skýr ákvæði í lögum um að slíkt sé á ábyrgð leigusalans. Valur Grettisson Valur@frettatiminn.is Leigjendaaðstoð Neytendasamtak- anna birti í gær ársskýrslu þar sem fram kom að aldrei hafa fleiri leit- að sér aðstoðar samtakanna vegna ástandsins leigumarkaði. „Aukningin skýrist bæði af því að fólk er meðvitað um þjónustu okkar og vegna erfiðs ástands á leigumarkaði,“ segir Hrannar Már Gunnarsson, stjórnandi leigjenda- aðstoðarinnar. Samtökin hafa feng- ið um tíu þúsund fyrirspurnir frá árinu 2011. Undanfarin þrjú ár hafa fyrirspurnir verið yfir tvö þúsund á ári en langflestar snúa að ástandi og viðhaldi, og hvað þyki eðlilegt leiguverð. „Það koma oft fyrirspurnir um viðhald, til dæmis er farið fram á að leigjandi máli eða endurnýi eld- hústæki,“ útskýrir Hrannar Már en svo virðist vera að staða leigjenda sé orðin það slæm, að leigjendur fallist á skilmála sem stangast á við lög. „Aðrar fyrirspurnir eru frekar um ástandið á markaðnum,“ út- skýrir Hrannar en tæplega 700 fyr- irspurnir bárust á síðasta ári um annað en það sem viðkemur lög- um á leigjendamarkaði. Hann segir það sé til marks um að leigjendur séu ringlaðir vegna örra breytinga á markaði. Tónlistarkonan Magga Stína hef- ur síðan 2010 búið í þremur leiguí- búðum. Fyrir hálfu ári flutti hún úr einni íbúð sem hún hafði ítrekað óskað eftir viðhaldi á. Hún telur að á leigumarkaði ríki sú tilhneiging að viðhald íbúða sé háð gildismati leigusalans. Orð leigjandans vegi ekki jafn þungt. „Á mínum leigu- ferli hef ég ítrekað upplifað það að mitt mat á ástandi hússins hafi ekki verið tekið gilt. Lítið var brugðist við þegar ég benti á það sem var ábótavant.“ Magga Stína segir viðhald íbúða sé oftast háð gildismati leigusalans. Vefpressan er í eigu Björns Inga Hrafnssonar.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.