Fréttatíminn - 14.01.2017, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 14.01.2017, Blaðsíða 26
26 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 14. janúar 2017 Mikilvægt að tala við kindurnar Silja Jóhannesdóttir þreytir frumraun sína í fjárbúskap sem afleysingabóndi í tuttugu daga. Það hefur komið henni á óvart hvað það fer mikil vinna í bústörfin og hvað kindurnar eru miklir karakterar. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@frettatiminn.is Silja Jóhannesdóttir hóf nýtt ár í öðrum aðstæðum en hún er vön. Hún tók að sér að vera bóndi í afleys-ingum í tuttugu daga á bænum Ærlæk ásamt föður sínum á meðan ábúendur á bænum eru í fríi í Mexíkó. Þó Silja hafi búið á bæ rétt fyrir utan Akureyri þegar hún var barn, þá voru þar engin dýr, svo þetta er frumraun hennar í fjárbúskap með 550 kindur. „Það er búið að vera ótrúlega gaman að vera í sveitinni og læra handtökin, ég hef alveg verið í sveit en aldrei unnið sveitastörf eða gefið,“ segir Silja, en á bænum eru líka fjórir hestar, fjórtán end- ur, hundur, köttur og kanína. „Það skemmtilegasta sem ég hef gert er að hleypa öndunum út. Þær vagga út úr húsi, ótrúlega skítugar og glaðar, svo synda þær á vatn- inu í smá tíma og vagga aftur inn hreinar og fínar. Það er svo brjál- æðislega gaman að sjá þær vagga svona,“ segir hún hlæjandi. Þá finnst henni líka mjög gaman að fá að keyra traktor. Áhætta að sinna bústörfum Það sem hefur komið Silju hvað mest á óvart í sveitinni er hvern- ig heyið nær að dreifast út um allt, inn í öll hús, og vinnan við bústörfin. „Maður heldur að það þurfi bara að henda smá heyi í garðana, en svo þarf að flytja til rúllurnar og skera utan af þeim. Það er nú áhættuatriði út af fyrir sig að fara upp á rúllurnar og skera þær í sundur. Maður þarf að hoppa upp á einhvern skera og þetta er spurning um styrk, jafnvægi og almenna útsjónarsemi,“ segir hún og af lýsingunum að dæma hefur hún lagt sig í hættu við þessa að- gerð. Silja og faðir hennar voru tvö ein í sveitinni yfir áramótin, ásamt dýrunum, og segir hún það hafa verið mjög notalegt. Silja er ekki mjög hrifin af flugeldum svo hún var fegin að vera laus við þann gauragang þessi áramótin. Gott lambalæri ekki sjálfgefið Aðspurð segist Silja ekki geta hugs- að sér að verða bóndi eftir þessa reynslu, en hún væri alveg til í að búa í sveit. „Þetta er skemmti- leg vinna upp að vissu marki, en ég held ég væri ekki til í að vera bundin svona yfir dýrunum og að sinna þessari miklu vinnu sem fylgir þeim á hverjum degi.“ Silja segir í gríni að það ætti jafnvel að skikka alla þá sem borða lamba- kjöt til að sinna fjárbúskap í smá tíma. „Ég hef alltaf verið báðum áttum varðandi styrki til land- búnaðar, en ég held að fólk myndi skilja styrkina betur og bera meiri virðingu fyrir atvinnugreininni ef það prófaði að vera í sveit. Gott lambalæri verður ekki til úr engu, það er ótrúlega vinna á bak við þetta. Það þarf að sinna dýrunum vel, enda eru þetta skepnur með skyn. Maður þarf að vera góður við þær og tala við þær. Það sem er magnað við kindurnar, og kom mér líka á óvart, er hvað þær eru miklir karakterar.“ Silja segir mikilvægt að sinna kindunum vel og vera góður við þær. Það er ekki auðvelt að vinna með heyrúllurnar og krefst það mikillar útsjónarsemi. Harpa Rut stofnaði facebook- hópinn Jákvæður janúar til að hvetja Íslendinga til jákvæðni og kenna þeim að elska sjálfa sig. Fyrir sjö árum var hún sjálf frekar neikvæð týpa og óham- ingjusöm í eigin skinni, en tók sig á með góðum árangri. Nú vill hún hjálpa öðrum. „Hugmyndin kviknaði þegar ég var að velta fyrir mér hvað ég gæti gert til að fá Íslendinga til að vera jákvæðari og læra að elska sjálfa sig um leið,“ segir Harpa Rut Heiðars- dóttir, fangavörður og einkaþjálfari, sem stofnaði í ársbyrjun facebook- -hópinn Jákvæður janúar, sem nú telur um þúsund meðlimi. Harpa Rut segir hópinn vera fyrir alla þá sem eru að leita sér að jákvæðri hvatningu, hvort sem það er í daglegu lífi, eða tengda heilsu og lífsstíl. Hún tekur þó fram að hópurinn sé alls ekki bara fyrir nei- kvætt fólk sem þurfi að sjá jákvæðu hliðarnar á hversdeginum. „Svo innilega ekki. Þessi hópur á að hvetja meðlimina til að vera jákvæðir og fá þá til að smita út frá sér jákvæðnina. Ég vil alls ekki að þessi flotti hópur sé stílaður inn á neikvætt fólk, því að allir sem eru í honum eru þar á sömu forsendum, að byrja árið með bros á vör, sama hvort þeir eru vanir að gera það eða ekki. Ég allavega held að eitt bros smiti frá sér fleiri bros,“ segir Harpa sem er dugleg að skrifa hvetjandi og jákvæð innlegg í hópinn til að minna fólk á það góða í lífinu. Þá minnir hún fólk á að hrósa, bæði sjálfu sér og öðrum. Og þetta virðist vera að virka því hún hefur fengið fjölmörg skilaboð þar sem fólk tjáir henni hvað þetta hefur gert því gott. Sjálf hefur hún ekki alltaf verið jákvæða týpan, svo sannarlega ekki. „Fyrir um sjö árum var eins og það kviknaði á ljósaperu hjá mér og ég sá hversu neikvæð manneskja ég var. Ég var allt of þung líkamlega og andlega. Allt of óhamingjusöm í mínu eigin skinni. Ég tuðaði yfir öllu og sá aldrei jákvæðu hliðarn- ar á hlutunum. Ég dró mig niður með neikvæðu tali og þar fram eftir götunum. Þar til einn daginn, þá fannst mér ég bara leiðinleg og mig langaði ekki að vera leiðinleg manneskja. Hvað var til ráða? Jú, að breyta sjálfri mér. Það var eitthvað sem ég þurfti að gera sjálf, því það gerir það enginn fyrir mann. Ætli ég vilji ekki kveikja á fleiri ljósaperum og halda ljómanum í þeim sem nú þegar er kveikt á.“ Harpa heldur úti líflegum og skemmtilegum snapchatreikningi ásamt kærastanum sínum, Vigfúsi Dan Garshorn Christiansen, þar sem jákvæðnin er í fyrirrúmi: lifs- stillharpa. | slr Hvetur til jákvæðni í janúar Harpa og Fúsi taka sig ekki of hátíðlega og reyna að lifa lífinu jákvæð og glöð. 20-70% AFSLÁTTUR Vetrarmarkaður ELLINGSEN Mikið úrval af gönguskóm ZAMBERLAN VIOZ PLUS VERÐ ÁÐUR 49.390.KR 30% AFSLÁTTUR VERÐ NÚ 34.573.KR SCARPA MOJITO VERÐ ÁÐUR 22.990.KR 20% AFSLÁTTUR VERÐ NÚ 18.392.KR Með því að velja hráefnið af kostgæfni, nota engin aukaefni og hafa verkhefðir fyrri tíma í hávegum, framleiðum við heilnæmar og bragðgóðar sjávarafurðir. Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Kostur, Iceland verslanir, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin. Bláu húsin Faxafeni | S. 555 7355 | www.selena.is | Selena undirfataverslun ÚTSALAN ER HAFIN Undirföt Sundföt Náttföt

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.