Fréttatíminn - 14.01.2017, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 14.01.2017, Blaðsíða 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 14. janúar 2017 Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.is Greinin birtist í nýjasta tölublaði vefritsins Stjórnmál og stjórn-sýsla en hana rita Örn Daníel Jónsson, pró- fessor í nýsköpunarfræðum við við- skiptafræðideild Háskóla Íslands, og Bjarni Frímann Karlsson sem er lektor við sömu deild. Þeir Örn og Bjarni greina ákveðin tímamót í orkusögu landsmanna og stóriðjustefnu stjórnvalda með lagningu hornsteins að Þeista- reykjavirkjun í september síðast- liðnum. Viðburðurinn marki eins konar rof við fortíðina sem greina megi af þremur þáttum. Nú taki jarðvarmi við af fallvatnsorku sem helsta uppspretta framtíðarorku í landinu, samið hafi verið við nýja stórnotendur orkunnar (United Sil- icon, Silicor og Thorsil) án nægi- lega traustrar áreiðanleikakönnun- ar og samningar gerðir án þess að tryggt sé að það náist að afhenda rafmagnið á réttum stað og á rétt- um tíma. Síðastnefnda atriðið helst bæði í hendur við orkuöflunina og orkudreifingarkerfi landsins, en um framtíðaruppbyggingu þess eru uppi stórar hugmyndir eins og allir vita. Það er mat höfunda að fyrir- ætlanir um sölu jarðvarmaorku til stórnotenda geti reynst „dýrkeypt tálsýn og framleiðsluferlið illvið- ráðanlegt,“ eins og segir í grein- inni. Hagnaður Fram til þessa hefur stóriðja á Ís- landi byggst á aðgengi að orku sem framleidd er með vatnsafli en hún er nánast fullnýtt ef miðað er við núverandi rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Nú er í auknum mæli litið til jarð- varma sem er talinn ósjálfbærri og óáreiðanlegri orka, auk þess sem jarðvarminn mengar meira. Stíflugerð við Kárahnjúka fyrir tólf árum. Mynd | Getty/Árni Sæberg Virkjað fyrir land og þjóð? Er hægt að segja að stóriðjustefna stjórnvalda á síðustu árum og áratugum hafi verið góð viðskipti fyrir íslenska þjóð? Þessari spurningu og fleiri er varða nýtingu íslenskrar orku velta tveir fræðimenn við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands fyrir sér í nýlegri grein. Þar fjalla þeir um virkjanamál, orkudreifingu, stóriðju og arð þjóðarinnar af henni. Bent er á að beinn hagnaður sem myndaðist við sölu fallvatnsorku til stóriðju hafi reynst óverulegur og hann hafi fyrst og fremst farið í að greiða niður skuldir orkufyr- irtækjanna. Þrátt fyrir að unnið hafi verið í að lækka þær voru sam- anlagðar skuldir Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur og HS Orku um mitt síðasta ár 487,3 milljarðar króna. Það jafngildir nærri hálfri annarri milljón á hvert mannsbarn í landinu. Höfundar greinarinnar tiltaka að í allri sögu Landsvirkjunar, sem stofnuð var árið 1965, hafi uppsafn- aðar arðgreiðslur fyrirtækisins til eigandans, íslenska ríkisins og þar með þjóðarinnar, aðeins numið tæpum 20 miljörðum króna. Beinn arður ríkisins að orkusölunni hef- ur því að takmörkuðu leyti nýst til að byggja upp aðra þætti í ís- lensku samfélagi, heilbrigðiskerfi, menntun og samgöngur, svo eitt- hvað sé nefnt. Því er ólíklegt að bein auðlindarenta í ríkissjóð af orkuauðlindum þjóðarinnar komi til nema í óvissri framtíð, þegar tek- ið er mið af skuldsetningu Lands- virkjunar. Allt hitt Afleidd áhrif af starfsemi stóriðj- unnar eru líka dregin í efa í grein- inni. Stóriðjugeirinn er sagður í litlum tengslum við aðra atvinnu- starfsemi og margföldunaráhrifin því takmörkuð. Jafnframt hafi stór- iðjan í auknum mæli lagt áherslu á kjarnastarfsemi sína á síðustu árum þegar rekstarskilyrði, til dæmis þróun álverðs, hafi versnað. Uppbygging raforkuvera er mannaflsfrek starfsemi. Eftir fram- kvæmdatímann við orkuöf lun vinna um 1700 manns hjá stóriðju- fyrirtækjunum fimm, sem er innan við 1% starfa í landinu. Fyrirtækin nota nær 85% af þeirri orku sem seld er í landinu. Skuldsetning ál- veranna þriggja hefur líka gert það að verkum að hagnaður, sem lengi vel var af starfsemi þeirra, skilaði ekki nema óverulegum tekjuskatti í ríkiskassann, ef litið er framhjá sérstökum orkuskatti sem var lagð- ur á tímabundið frá 2009 til 2015. Að öðru leyti hafa skattaleg tengsl stóriðjunnar einkum komið fram við kaup fyrirtækjanna á aðföngum til reksturs. Greinarhöfundar taka undir orð sem komu fram í skýrslu ráðgjafa- fyrirtækisins GAMMA frá árinu 2013 þar sem því er haldið fram að það felist „einfaldlega mjög lítil skynsemi í því að niðurgreiða raf- orku til stórfyrirtækja til þess eins að skapa störf.“ Þarfir nets og kerfis Grein sína í vefritinu Stjórnmál og stjórnsýsla kalla þeir Örn og Bjarni Þarfir netsins, sem vísar í þann vanda sem Landsnet og Landsvirkj- un hafa lýst yfir að steðji að orku- dreifingarkerfi landsmanna ef ekki komi til stórfelld uppbygging. Að öðrum kosti geti stefnt í orkuskort í landinu. Segja má að heiti greinarinnar vísi líka í það hvernig virkjanir og orkuveita hafi orðið að sérstakri atvinnugrein hér á landi, atvinnu- grein „þar sem arðsemi er mikil- vægari en að lækka orkukostnað neytenda sem eru einnig eigendur virkjanna og veitna.“ Rafvæðing er vitanlega verk- fræðilegt úrlausnarefni og upp- byggingarkerfi orkuiðnaðarins fer fyrir rest að snúast um hug- myndir um vöxt og arðsemi og þar með fyrst og fremst um sjálft sig, í stað þess leitað sé svara við þeirri spurningu hvað sé almenningi fyr- ir bestu. Mikil færni hefur byggst upp á sviði vatnsaflsvirkjana og rafveitu á Íslandi á síðustu hálfri öld eða svo. Á síðustu árum hefur síðan bæst hratt við þá færni og þekk- ingu sem myndast hefur vegna jarðvarmanýtingar. Sú starfsemi er allt annars eðlis en vatnsaflið, þekkingin sem til verður er stað- bundnari og erfiðara að flytja hana frá einu verkefni til þess næsta. Bent er á að nú um stundir sé dreifing raforkunnar það sem skipti orkuiðnaðinn mestu máli og þá er sérstaklega rætt um hvernig koma eigi orkunni til stórnotenda á með- an staðbundnari lausnir á dreifingu til almennings og minni fyrirtækja sitji að mestu á hakanum. Til framtíðar litið er úrlausna á dreifingarkerfinu ýmist leitað með uppbyggingu byggðalínu og hring- tengingar dreifikerfisins eða með hálendislausnum. Eins og á við um alla þessa starfsemi eru náttúru- verndarsjónarmið áleitin og einnig hafa álitamálin hafa tekið stakka- skiptum, til dæmis með aukinni ferðaþjónustu í landinu og vægi hennar í efnahagslegu tilliti. Tilvistarkreppa Í heild má segja að þeir Örn og Bjarni lýsi í grein sinni ákveðinni tilvistarkreppu sem orkuiðnaður- inn á Íslandi á við að etja um þess- ar mundir. Orkufyrirtækjunum er ætlað að standa við gerða samninga en við dreifingu raforkunnar eru fjölmargir flöskuhálsar. Spennan milli fyrirætlana yfirvalda og stór- kaupenda orkunnar annars vegar og framkvæmdarinnar hins vegar fara því vaxandi. Þrýstingur frá orkugeiranum um nýja nýtingar- kosti mætir sífellt meiri andstöðu um leið og efasemdir um arðsemi stefnunnar verða almennari. Höfundarnir vara einnig við því að orka frá fallvötnum og jarð- varma sé lögð að jöfnu þegar kem- ur að áætlunum um að selja hana til stórnotenda. Ólíkt eðli og eig- inleikar orkulindanna spila þar inn í. Jarðvarminn sé einfaldlega ekki eins fastur í hendi. Að mati höfunda er upphaflegur tilgangur stóriðjustefnunnar, að efla iðnað í landinu og auka fjölbreytni útflutn- ings þjóðarinnar, löngu gleymdur. „Til hvers er virkjað?“ spyrja höf- undar í greininni og telja forgangs- röðunina í dag ranga. „Gert er ráð fyrir að setja milljarða króna af almannafé í það að leggja stórnet þvers og kruss yfir landið til þess að afhenda ótryggum kaupend- um vöru sem ekki er til.“ Á meðan sitji staðbundnar lausnir við orku- dreifingu, sem snúa að almenningi og almennri atvinnustarfsemi, á hakanum. Hægt er að lesa greinina Þarfir netsins eftir Örn Daníel Jónsson og Bjarna Frímann Karlsson í vefritinu Stjórnmál og stjórnsýsla bæði á ís- lensku og ensku á slóðinni irpa.is Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, lagði hornstein að jarðvarmavirkjun á Þeistareykjum í september síðastliðnum. Hér nýtur hann aðstoðar Einars Erlingssonar staðarverkfræðings. Bygging virkjunarinnar markar tímamót í íslenskri orku- og stóriðjusögu. Mynd | Landsvirkjun. Munndreifitöflur 250 mg Pinex® Smelt H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 5 1 1 0 7 2

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.