Fréttatíminn - 14.01.2017, Blaðsíða 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 14. janúar 2017
Sýnir ógnvekjandi
raunveruleika
á Íslandi
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
Við búum í litlu landi og það eru allskyns tabú í gangi og mér finnst spennandi að fjalla um eitthvað af þeim. Það er til allskon-
ar fólk á Íslandi eins og allstaðar
annarsstaðar í heiminum, það er
ekkert öðruvísi hér en annarsstað-
ar. Fólk vill oft búa sér til einhvern
íslenskan raunveruleika en hann er
ekki til,“ segir Þórsteinn Sigurðs-
son, nemi í Ljósmyndaskólanum.
Að sögn Þórsteins er mikilvægt að
eiga heimild
um alla kima
samfélagsins
og að mynda-
vél sé í raun
skráningar-
tæki. „Það
er einhver
rödd innra
með mér sem
segir að ég
eigi að segja
sögur. Allar aðstæður í myndunum
mínum eru raunverulegar, enginn
skáldskapur og ég er ekki að búa
neitt til. Mínar fyrirmyndir í ljós-
myndun eru þeir sem segja sögur
sem eru ekkert endilega fyrir fram-
an mann í hinu daglegu lífi.“
Þórsteinn leggur mikla áherslu
á rannsóknarvinnu áður en sjálf
myndin er tekin. „Ég byrja á því
að tala við allskonar fólk um hvort
leynist fjársjóður einhversstaðar í
samfélaginu. Það er hluti af þessu
að bera fram hugmyndirnar sínar
og vinna sér inn eitthvað ákveðið
traust og það er alveg jafn mikilvæg-
ur hluti af ferlinu
eins og að mynda
síðan að lokum.
Undirbúnings-
vinna að svona
myndum getur
tekið marga
mánuði og mað-
ur þarf bara að
sýna þolinmæði
og venjulega
kemur það sem
maður vill til manns eins og með
allt annað. Ég reyni að vanda mig og
sýna mínar bestu hliðar þegar ég er
að vinna að verkefnum.“
Er mikið um heimildaljósmyndun
á Íslandi?
„Það er lítið um það. Mjög fáir eru
að vinna að því að skoða samfé-
lagsleg vandamál og falinn raun-
veruleika. Það er fátækt hérna, dóp
og byssur. Þetta er alveg ógnvekj-
andi raunveruleiki og þess vegna
er mikilvægt að vita af tilvist þessa
heims. Þetta er áhugavert hér á
landi því það er enginn að vinna
þessa heimildavinnu hérna heima
og ef hún er unnin þá er hún oft
rosalega ritskoðuð. Ég er ekki að
vinna fyrir neinn, ég er bara að
vinna fyrir sjálfan mig og það er
enginn sem ritskoðar mig og ég get
bara gert það sem mér sýnist.
Til að sjá fleiri verk Þórsteins er
mælt með að kíkja á xdeathrow
á Instagram.
Þórsteinn Sigurðsson, sjálfsmynd.
Myndasería úr Breiðholti.
„Who are Beige Boys?“ Gengi á Íslandi.
Að sögn Þórsteins er mikilvægt
að eiga heimild um alla kima
samfélagsins.
Ljósmynd úr seríu um „underground
tattoo“ menningu á Íslandi.
Sniper, HNP. Graffiti i Reykjavík.
Ljósmyndarinn
Þórsteinn Sigurðsson
hefur ástríðu f yrir
heimildaljósmyndun
og finnst mikilvægt
að allir kimar sam
félagsins fái að sjást.7.499 kr.
KÖBEN f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - a p r í l 2 0 1 7
4.999 kr.
LONDON f rá
T í m a b i l : m a rs - a p r í l 2 0 1 7
7.999 kr.
BERLÍN f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - f e b rú a r 2 0 1 7
12.999 kr.
LYON f rá
T í m a b i l : j ú n í 2 0 1 7
8.499 kr.
BRUSSEL f rá
T í m a b i l : j ú n í 2 0 1 7
14.999 kr.
SALZBURG f rá
T í m a b i l : j a n ú a r 2 0 1 7
Hæ,
kíktu út!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.