Fréttatíminn - 14.01.2017, Blaðsíða 33

Fréttatíminn - 14.01.2017, Blaðsíða 33
5 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA að fyrirtækin axli ábyrgð á þeim afleiðingum sem rekstur þeirra hefur á umhverfið og samfélagið, en boðið verður upp á stuðning og fræðslu um hagnýtar leiðir að ábyrgri ferðaþjónustu. Eimskip hefur í gegnum árin fylgst mjög náið með þróun nýrra orkugjafa til að knýja skipa- og bílaflota félagsins. Nú þegar hefur verið tekinn í notkun nokkur fjöldi rafmagnsbíla hjá félaginu til að sinna þörfum þess á höfuðborgar- svæðinu. Undir lok síðasta árs skrifaði Eimskip undir samning um kaup á norsku skipafélagi sem hefur yfir að ráða skipum sem eru knúin fljótandi gasi (LNG) og eru mun umhverfisvænni en olíuknúin skip. Ef kaupin á norska félaginu ganga eftir, að fengnu samþykki norskra samkeppnisyfirvalda, verða þetta umhverfisvænstu skip í flota íslenskt félags. Umferð á vegum mengar mikið og er slítandi fyrir vegi. Árið 2014 hóf Eimskip að sigla til fleiri hafna á Íslandi til að auka þjónustu við viðskiptavini, draga úr umferð á vegum og flytja þungavöru af vegum yfir á sjó. Þessi breyting hefur gefist vel. Þegar umhverfismál eru skoðuð út frá hagkvæmni kemur oftar en ekki í ljós að það er hagur allra að vinna á sem umhverfisvænstan hátt. Fyrirtækin og samfélagið hagnast á því. Forvarnarstarf verður að teljast eitthvað það mikilvægasta sem fyrirtæki geta tekið þátt í þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð og hefur Eimskip í gegnum árin lagt áherslu á forvarnarstarf í sínum samfélagsverkefnum. Fé- lagið hefur frá árinu 2004 átt í samstarfi við Kiwanis á Íslandi um að gefa öllum sex ára börnum reiðhjólahjálma til að auka öryggi þeirra. Þessi gjöf hefur á þeim tíma sem verkefnið hefur verið í gangi margsinnis sannað gildi sitt og mikilvægi þess að nota hjálm, hvort sem er á hjólum eða á hættulegum vinnusvæðum. Á hverju ári hefur reiðhjólahjálm- ur bjargað barni frá alvarlegum meiðslum. Eimskip og starfsmenn þess eru afar stoltir af því að taka þátt í verkefni sem ber svo ríku- legan ávöxt. Það lætur nærri að Eimskip og Kiwanis hafi fært um 60 þúsund börnum hjálma frá því verkefnið hóf göngu sína. Eimskip var heiðrað af alþjóðlegu Kiwan- ishreyfingunni fyrir þetta framtak sitt og hlaut alþjóðlegu nafn- bótina Samfélagsfyrirtæki ársins árið 2013. Forvarnir eru einnig stór þáttur í starfsemi Eimskips. Á stórum vinnustað leynast oft hættur og því afar mikilvægt að starfsmenn séu upplýstir og með- vitaðir um þær og að þeir kunni rétt viðbrögð við slysum. Mikil- vægur þáttur í þessari fræðslu er kennsla í notkun á öryggisbúnaði. Íþróttastarf er mikilvæg- ur þáttur í forvörnum. Eimskip er einn stærsti einstaki stuðn- ingsaðli íþrótta á Íslandi. Eim- skip hefur með stuðningi sín- um við íþróttastarf ávallt lagt á það ríka áherslu að stuðningur félagsins renni til uppbyggingar á barna- og unglingastarfi fé- laganna. Það er afar mikilvægt að börn og unglingar finni sig snemma í áhugamálum sínum og með því má koma í veg fyrir að þau leiðist út í neyslu áfengis og annarra vímuefna. Fíkniefni eru einhver mesta ógn sem stafar að samfélagi okkar og með samstarfi við íþróttafélög, ásamt því að vinna náið með tollayfirvöldum og lögreglu til að koma í veg fyrir að fíkniefni berist sjóleiðina til lands- ins, vonast Eimskip til þess að það setji þunga sinn á vogarskál- ina í baráttunni. Svo fleiri dæmi séu tekin þá hefur Eimskip styrkt starfsemi Rauða krossins á Íslandi frá árinu 2009 með samstarfssamningi á sviði fatasöfnunar og flutninga á fatnaði til landa sem á þurfa að halda. Með fatasöfnuninni er endurnýting verðmæta höfð að leiðarljósi um leið og stutt er við gott málefni. Þá hefur Eimskip um margra ára skeið styrkt Skógrækt ríkisins til að stuðla að frekari skógrækt í landinu og Slysavarna- skóla sjómanna til fræðslu til að draga úr slysum og auka öryggi á sjó. Á komandi árum verða æ fleiri verkefni og áskoranir sem takast þarf á við í samfélags- og um- hverfismálum, en það er skylda fyrirtækja að leggja sitt að mörk- um í þeim efnum. Samfélags- og umhverfismálin eru langtíma- verkefni sem unnið verður að um ókomna tíð hjá félaginu og mun Eimskip áfram leggja sig fram um að vera í fararbroddi er varðar samfélagslega ábyrgð. Með tækni frá Marorku má draga úr útblæstri og brennslu olíu. Forvarnir eru mikilvægar, 60.000 börn hafa fengið hjálma frá Kiwanis og Eimskip. Eimskip styður við starfsemi Rauða krossins.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.