Fréttatíminn - 14.01.2017, Side 4

Fréttatíminn - 14.01.2017, Side 4
Systurnar Jó- hanna og Guðrún Kristjánsdæt- ur hafa rekið Systrasamlagið á Seltjarnarnesi en bærinn vill ekki gera langtímaleig- usamning um húsnæðið. Mynd | Hari 4 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 14. janúar 2017 Óljóst hvort Amir megi giftast íslenskum manni Hælisleitendur Sýslumaðurinn í Reykjavík krefst þess af hæl- isleitanda að hann framvísi nýrra vottorði um hjúskap- arstöðu sína, þrátt fyrir að skilríkin séu gild í hans heimalandi. Það þýðir að hann getur hugsanlega ekki gifst kærasta sínum. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is „Við erum núna að keppa við tímann,“ segir kærasti Amir Shokrogozar, íransks hæl- isleitanda sem vísað verð- ur úr landi innan skamms. Amir flúði heimalandið fyrir nokkrum árum síðan vegna kynhneigðar sinnar, en nú býr hann með íslenskum manni og hafa þeir átt í ástarsambandi í y f ir ár. Nú vinna þeir í því að gift- ast, en vandinn er sá að Amir þarf að útvega vottorð í Íran um að hann sé ógiftur. „Aftur á móti er slíkt vottorð að- eins gefið út einu sinni á lífsleiðinni,“ segir kærasti Amir og bætir við að það sé ekki mögulegt í Íran að fá nýtt vottorð sem sýni fram á að viðkom- andi sé ógiftur. Hann segir aftur á móti fjölskyldu mannsins hafa stað- fest það við lögmann þeirra að hann sé ógiftur og því liggi umsóknin fyrir hjá sýslumanni í Reykjavík en von er á svari innan skamms. Nái þeir ekki að gifta sig mun Amir verða vísað til Ítalíu, en þar var honum hópnauðgað í flóttamannabúðum fyrir nokkrum árum síðan. Í úrskurði Útlendinga- stofnunar kemur fram að ekki sé efast um frásögn Amirs af brotinu. Eins kemur fram að Amir hafi þurft að framfleyta sér með vændi á Ítalíu áður en hann kom hingað til lands. Samtökin ´78 hafa meðal annars ályktað gegn brottvísun Amirs og segja vinnubrögð Útlendingastofn- unar forkastanleg. „Nú bíðum við eftir svari frá sýslu- manni, presturinn er bara í biðstöðu og við viljum giftast,“ segir kærasti Amirs sem segir vinnubrögð sýslu- manns þunglamaleg og þar gæti skilningsleysis á íranskri menningu þegar kemur að umræddum vott- orðum. Amir Shokrogozar frá Íran horfir fram á að það vera vísað úr landi, en hann fær hugsanlega ekki að giftast kærasta sínum. Í rússneskum áróðursmiðli Hannes Hólmsteinn var í viðtali við skoskt útibú rússneska áróð- ursmiðilsins Sputnik News í vikunni. Hann sagði að Panamaskjöl- in væru ekkert hneyksli og enginn glæpur hefði verið framinn. „Heldur hefði Sigmundi Davíð verið gerð fyr- irsát og hann ekki brugðist heppilega við,“ skrifar Hannes á Facebook. Sputnik News er í eigu rússneska ríkisins og hefur ítrekað verið bent á að fréttaflutningur miðilsins litist af áróðursstríði Pútíns við Vesturlönd. Pútín og hans menn voru fyrirferðar- miklir í Panamaskjölunum. | hjf Systrasamlagið boðið velkomið í Garðabæ Bæjarstjórinn í Garðabæ hringdi í Systrasamlagið og bauð þeim að- stoð ef þær vildu flytja sig í sveitar- félagið. Seltjarnarnesbær vill ekki gera langtímaleigusamning um hús- næði verslunarinnar vegna mögu- legra áforma um bílakjallara. Seltjarnarnesbær vill ekki gera langtímaleigusamning við eiganda skúrsins sem hefur hýst Systra- samlagið, litla heilsuveitinga- sölu við íþróttamannvirki Sel- tjarnarness. Skúrinn er aðeins nokkrir fermetrar en þar hafa Jó- hanna og Guðrún Kristjánsdætur selt umhverfisvænar heilsuvörur og notið mikilla vinsælda í hverfinu. „Mér finnst áhugavert hvað þær hafa verið að gera, stuðla að jóga- iðkun, hugleiðslu og betri lífsstíl. Ég fann til með þeim að þurfa að fara úr húsnæðinu og sagði að ef þær vildu líta til Garðabæjar, þá gæt- um við hjálpað. Við fögnum öllum góðum fyrirtækjum,“ segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ. „Það er greinilega gott hjarta á bak við verslunina og íbúarnir finna að það verður vont að missa þær.“ Undirskriftasöfnun var hrund- ið af stað af Seltirningum eftir að ljóst varð að Systrasamlagið þyrfti að víkja fyrir bílakjallara. Björn Leifsson, eigandi World Class, vill hafa systurnar áfram og sagði bíla- kjallarann, sem bærinn er með á deiliskipulagi, algjörlega ónauðsyn- legan. Systurnar hafa hinsvegar í hyggju að opna verslunina við Óð- insgötu eftir hálfan mánuð. | þt Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garða- bæ. Birna Bragadóttir var ósátt með AFS skiptinemasamtökin. Skiptinám Mæðginin Birna Braga- dóttir og Sindri Ingólfsson segja að skiptinemasamtökin AFS hafi selt Sindra dýrt skiptinám til Kína með fögrum fyrirheitum. Loforð um skólamat, kínverskunám, ferðalag og fjölskyldu í viðunandi aðstæðum, hafi ekki verið efnd. Samtökin í Kína snerust gegn Sindra með undarlegum hætti og viðbrögð starfsmanna á Íslandi voru að fara í vörn og efast um orð hans. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is AFS skiptinemasamtökin hafa verið gagnrýnd í fjölmiðlum að undan- förnu, fyrir að tryggja ekki öryggi íslenskra ungmenna sem fara á þeirra vegum út í heim. Mæðginin Birna Bragadóttir og Sindri Ingólfs- son voru afar ósátt við AFS eftir að Sindri fór til Kína á þeirra vegum. Hann hafði lengi dreymt um að fara í skiptinám til útlanda og ákvað sautján ára gamall að nota um það bil alla peninga sem hann hafði eignast frá fermingu í að fjármagna skiptinámsdvöl í Kína. Birna segist hafa þekkt skiptinemakerfið af góðu einu og að þau hafi treyst alþjóðlegu samtökunum AFS til að standa vel að náminu. Sindri fór út til kínverskrar fjöl- skyldu árið 2013 og strax á fyrstu mánuðum dvalarinnar kom ýmis- legt í ljós sem ekki var í samræmi við þá mynd sem AFS hafði gefið. „Sem var allt í lagi. Ég var búinn undir að þetta yrði erfitt og alveg til í að takast á við það,“ segir Sindri. Þau segja að Sindri hafi ekki feng- ið kínverskukennslu eins og búið var að lofa, Birna hafi þurft að senda honum námsbækur í kínversku. Þá var samsetning fjölskyldunnar sem hann bjó hjá í fyrstu, allt önnur en samtökin höfðu kynnt fyrir þeim. Hann var sendur til stórefnaðs fólks sem vildi vel en hafði engan áhuga á að vera með skiptinema á heimilinu. Hann fékk því að skipta um fjölskyldu. „Og var þá sendur til fólks sem hvorki hafði vilja né aðstæður til að taka á móti skipt- inema. Síðustu mánuðina bjó hann á heimavist við hrörlegar aðstæð- ur. Sindri fékk ekki skólamáltíðir eins og um var samið og heldur ekki að fara í ferðalag með skipt- nemum AFS, sem einnig átti að vera innifalið. Að þeirra sögn var margt fleira sem ekki stóðst. Á heimavistinni var engin þvottavél og þegar Sindri lét vita af því, barst AFS á Íslandi ljós- mynd af þvottavél sem átti að sanna að Sindri færi með rangt mál. „Þessi þvottavél var alls ekki á heimavistinni en svona voru að- ferðirnar við að grafa undan mér.“ Sindr i seg ist ha fa ger t athugasemdir við kínverska tengil- ið AFS og Birna við AFS á Íslandi til að upplýsa þau um aðstæður hans. „Það þótti stórmál í Kína þegar ég skipti um fjölskyldu og það var þeim mikilvægt að fjölskyldurnar kæmu ekki illa út úr þessu. Ég gat alveg skilið það en fann þegar á leið, að ef ég gerði athugasemdir við AFS, varð allt verra. Svo fóru að berast upplognar sögur um mig frá skrif- stofunni í Kína til samtakanna á Íslandi, meðal annars um að kín- verska lögreglan hafi verið að leita að mér. Sagan var uppspuni frá upphafi til enda. Í kjölfarið var ég kallaður á teppið hjá yfirmanni AFS í Kína, þar sem mér var sýnt bréf sem ég átti sjálfur að hafa skrifað. Í því játaði ég að hafa brotið reglur AFS og lofaði bót og betrun. Bréf- ið var með minni undirskrift en ég hafði aldrei séð það áður. Mér var sagt að undirrita sérstakt skjal þar sem mér var veitt viðvörun, annars yrði ég sendur heim. Þarna rann upp fyrir mér að AFS vildi helst af öllu losna við mig, en af því að ég var staðráðinn í að klára dvölina, undirritaði ég bréfið þó ég hefði aldrei framið brotin,“ segir Sindri. Birna segist hafa furðað sig á við- brögðum íslensku starfsmannanna þegar hún leitaði til þeirra: „Viðmótið hér var alltaf draga í efa það sem Sindri sagði, þau stóðu aldrei með honum en reyndu þess í stað að verja samtökin í einu og öllu. Hann var sautján ára gamall, einn í Norð-austur Kína, fékk hvorki mat né kennslu sem hann átti að fá, bjó ekki hjá fjölskyldu eins og til stóð, og það var ekkert mark á hon- um tekið,“ segir Birna. AFS í vörn og stóðu ekki með skiptinemunum „Þetta var lærdómsrík- asta ár sem ég hef lifað en það var ekki AFS að þakka,“ segir Sindri Ingólfsson. Þau Birna Braga- dóttir, móðir hans, voru afar ósátt við AFS samtökin eftir að Sindri fór á þeirra vegum til Kína. www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is Ferðafélag Íslands á 90 ára afmæli 2017 og við hefjum afmælisárið sunnudaginn 15. janúar með göngu um Öskju- hlíðina og Nauthólsvík undir styrkri forystu Péturs H. Ármanns- sonar, arkitekts og landsins helsta sérfræðings um byggingasögu höfuðborgarsvæðisins. Pétur hefur um margra ára skeið leitt sérstakar borgargöngur á vegum Ferðafélags Íslands. Í þessari göngu verður hugað að uppbyggingu og skipulagi Öskjuhlíðarinnar og merkileg saga svæðisins rifjuð upp. Gangan hefst kl. 10.30 frá Perlunni í Öskjuhlíð. Gengin er 4-5 km hringur. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. við upphaf afmælisárs FÍ Borgarganga

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.