Fréttatíminn - 14.01.2017, Síða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 14. janúar 2017
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Við erum mjög góðar vinkonur og erum líka búnar að þekkjast mjög lengi. Ég á mikið af bar-bídóti og okkur finnst
skemmtilegast í barbí,“ segir Ólöf
Amelía Einarsdóttir um samband
sitt við vinkonur sínar, þær Löru
og Fatimu Al Saadi.
Þó Ólöfu finnist þær hafa ver-
ið vinkonur í heila eilífð eru samt
ekki nema þrír mánuðir síðan þær
kynntust. Lara og Fatima fluttu
hingað til lands frá Sýrlandi ásamt
foreldrum sínum og systkinum
í október og eru í hópi þeirra 55
kvótaflóttamanna sem fengu hér
hæli á síðasta ári.
Þakklát áskorun
„Það var rosalega sætt hvernig
stelpurnar náðu saman rétt eft-
ir að fjölskyldan kom til lands-
ins. Við ákváðum að fara saman í
Smáralindina og Ólöf tók þá strax
í höndina á Löru og þær slepptu
ekki hvor annarri alla ferðina. Svo
gengu stelpurnar saman fremstar í
flokki og leiddu okkur hin áfram,“
segir móðir Ólafar, Elísabet Magn-
úsdóttir.
Elísabet er ein þeirra sem átti
erfitt með að fylgjast vanmátt-
ug með afleiðingum átakanna í
Sýrlandi heiman úr stofu. Þegar
hún heyrði af komu sýrlenskra
kvótaf lóttamanna til landsins
skráði hún sig og fjölskylduna sem
stuðningsfjölskyldu hjá Rauða
krossinum. Elísabet, sem er
fjögurra barna móðir og tveggja
barna amma í fullu starfi á ferða-
skrifstofu, neitar því ekki að þetta
hafi verið áskorun. Hún er þó fyrst
og fremst full þakklætis yfir að
geta hjálpað átta manna fjölskyldu
að koma hér undir sig fótunum.
„Þetta er yndislegt fólk. Og þau eru
alveg ótrúlega jákvæð, þrátt fyrir
allt. Það er ekki hægt að ímynda
sér hvernig er að vera rifinn svona
upp með rótum og þurfa að hugsa
heim til fólksins sem varð eftir,“
segir Elísabet.
Farin að treysta hvert öðru
Mousa og Manal Al Saadi eru á fer-
tugsaldri og eiga sex börn á aldr-
inum tíu mánaða til fjórtán ára,
þau Nour, Yasmin, Fatimu, Löru,
Mohammed og Moutasim. Þar sem
fjölskyldan er stór eru stuðnings-
fjölskyldur hennar fjórar og segir
Elísabet ekki aðeins hafa myndast
sterk tengsl við Mousa, Manal og
börnin þeirra sex heldur líka hin-
ar stuðningsfjölskyldurnar. „Það
erum við mæðurnar sem höldum
utan um skipulagið og gerum flest
allt en svo hóum við í eiginmenn-
ina þegar við þurfum á þeim að
halda.“
Börn þekkja engin landamæri
Þrátt fyrir að vera ekki eldri en fimm ára, veit
Ólöf að vinkonur hennar, Lara og Fatima,
þurftu að flytja til Íslands vegna þess að
sprengjur eyðilögðu húsið þeirra. Móðir
Ólafar, Elísabet Magnúsdóttir, ákvað að
fjölskyldan myndi gerast stuðningsfjölskylda
kvótaflóttamanna og lærði í kjölfarið að börn
þekkja engin landamæri.
Ólöf, Lara og Fatima.
Stelpurnar kynntust fyrir
þremur mánuðum en Ólöf
segir þær hafa þekkst mjög
lengi. Þeim finnst skemmti-
legast að leika sér í barbí.
Myndir | Hari
„Þau koma úr miklu
sterkara fjölskyldusam-
félagi en við og vilja helst
alltaf hafa fólk í kringum
sig. Eftir að hafa kynnst
þeim þá upplifi ég mig og
mitt heimili mjög prívat.“
Við hreinsum og endurnýjum
sængur og kodda