Fréttatíminn - 14.01.2017, Síða 21
Núvitund bætir
árangur stjórnenda
Opni háskólinn í HR býður námskeiðið Mindful Leadership – Google aðferðin,
sem eflir leiðtogafærni með nýjustu aðferðum í leiðtoga- og stjórnendafræðum.
Unnið í samstarfi við
Háskólann í Reykjavík.
Aðferðin sem þróuð var af verkfræðingi hjá Google er talin leika stórt hlutverk í velgengni fyrirtækisins, og
hafa mörg nútímaleg fyrirtæki til-
einkað sér þessa aðferð.
„Hjá fyrirtækjum eins og Google
eru gríðarlegar kröfur gerðar til
starfsfólks um árangur sem getur
vakið upp kvíða, efasemdir, ákveðið
stjórnleysi og streitu. Við þær að-
stæður dregur smám saman úr
færni starfsfólks til að standa sig vel
og var Google aðferðin hönnuð til
að sporna gegn þeirri þróun með því
að beina athyglinni meðal annars að
núvitund,“ segir dr. Þórður Víking-
ur Friðgeirsson, verkfræðingur og
leiðbeinandi á námskeiðinu Mind-
ful Leadership. Hann er jafnframt
einn helsti sérfræðingur landsins í
verkefnastjórnun og ákvörðunar-
fræðum. Námskeiðið kennir hann
ásamt Ásdísi Olsen sem er viður-
kenndur kennari á sviði núvitundar,
eða Mindfulness, og hefur sérhæft
sig í núvitund fyrir stjórnendur og
innleiðingu á vinnustaði. Mindful
Leadership miðar að aukinni hæfni
til að halda einbeitingu og skapa
rými til forystu í flóknu og krefjandi
starfsumhverfi nútímans. Mörg af
öflugustu fyrirtækjum heims og
framsæknar stofnanir á borð við
Google, Apple, Nike, General Mills,
bandaríska herinn, dönsku rík-
isstjórnina og Harvard Business
School hafa tekið Mindful Leaders-
hip í þjónustu sína með árangri sem
eftir er tekið um allan heim.
„Við munum ekki stjórna fyrir-
tækjum framtíðarinnar með hug-
myndafræði fortíðarinnar. Mörg
nútímaleg fyrirtæki, og ekki síst
þau sem við höfum sem okkar fyr-
irmyndir, hafa tileinkað sér þær
viðhorfsbreytingar sem er undir-
staða Google aðferðarinnar. Kröfur
fara vaxandi um árangur, samkeppni
er mikil og stjórnendur og leiðtogar
eru settir undir meiri pressu með
árangur. Þá er vinnan sífellt meira
byggð upp, meiri sveigjanleiki og að
geta aðlagast hratt á tímum hraða
og breytinga. Meiri áhersla er því
lögð á manninn velferð hans og
við tölum núna kinnroðalaust um
hugtök eins og hamingju, hvernig
maðurinn skapar og lætur gott af
sér leiða,“ segir Þórður.
Fjöldi rannsókna sýnir einstakan
ávinning af aðferðafræði Mindful
Leadership sem er bæði hagnýt
og áhrifarík og miðar að aukinni
hugarró, einbeitingu, skýrleika,
sjálfsþekkingu, sjálfsstjórn, sam-
skiptafærni, vellíðan og sátt.
„Félagsleg færni og tilfinninga-
greind er ekki öllum í blóð borin en
það er vel hægt að læra það og til-
einka sér,“ segir Þórður. „Sem dæmi
þá má leiða að því líkur að Google sé
ekki endilega samsett af starfsfólki
sem sé sérstaklega félagslega fært
frá náttúrunnar hendi heldur hugs-
analega frekar tæknisinnaðir nördar.
Samt tókst Google með aðferðinni
sem er kennd á námskeiðinu að
ala á samkennd og er gjörsamlega
ósigrandi á sínu sviði,“ segir Þórður
Víkingur.
Meðal þeirra sviða sem þátttak-
endur mega vænta mikilla framfara
við er hvernig fólk kemur fram við
sjálft sig, hvernig það vinnur með
streitu og stjórnar orku. „Heilt yfir
vill fólk verða betri stjórnendur
og það gamla viðhorf að deila og
drottna víkur fyrir meiri samskipt-
um til að leysa verkefni fyrirtækis-
ins. Stóra skrefið í að bæta stjórnun
fyrirtækja er að starfsfólkið sé í lagi
og sé sátt við sjálft sig. Þá kemur
árangur í rekstri í kjölfarið.“
Dr. Þórður Víkingur Friðgeirsson, verkfræðingur
og leiðbeinandi á námskeiðinu Mindful Leadership
í Opna háskólanum í HR. Hann er einn helsti
sérfræðingur landsins í verkefnastjórnun og
ákvörðunarfræðum.
volundarhus.is · Sími 864-2400
GARÐHÚS 14,5 m²
www.volundarhus.is
Vel valið fyrir húsið þitt
RÝMINGARSALA
20% aukaafsláttur af öllum
GARÐHÚSUM
á meðan byrgðir endast
V
H
/1
6-
05
GARÐHÚS 4,7m²
44 mm bjálki / Tvöföld nótun
GARÐHÚS 4,4m²
GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs
GARÐHÚS 9,7m²
50% afsláttur
af flutningi á
GARÐHÚSUM og
GESTAHÚSUM
á allar þjónustu-
stöðvar Flytjanda.
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Sjá fleiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
· Allt á að seljast
· Fyrstur kemur fyrstur fær
· Ekki missa af þessu
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu
okkar volundarhus.is
og í síma 864-2400.