Fréttatíminn - 14.01.2017, Síða 30

Fréttatíminn - 14.01.2017, Síða 30
Fyrirtækin axli ábyrgð á afleiðingum af rekstri sínum Ferðamenn sem koma til Íslands eru að leita að óspilltri náttúru, ör- uggu umhverfi og jákvæðri upplif- un. Langflestir eru ánægðir þegar þeir snúa aftur heim á leið, með stjörnur í augum yfir náttúrufegurð landsins og yfir sig hrifnir af gest- risni og vinsemd Íslendinga. Þó eru dæmi um að ferðaþjónustuaðilar beri ekki virðingu fyrir viðkvæmri náttúru, tefli öryggi ferðamanna í hættu, brjóti á starfsfólki eða noti ferðamannastaði heimamanna án þess að þar verði eftir neinn virð- isauki. Þessi dæmi um óábyrgu svörtu sauðina koma óorði á Ísland sem ferðamannastað valda skaða. Yfirlýsing um ábyrga ferðaþjón- ustu var staðfest af forsvarsfólki yfir 270 fyrirtækja í Háskólan- um í Reykjavík þann 10. janúar að viðstöddum forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, sem er verndari verkefnisins. Það eru Festa – miðstöð um samfélagsá- byrgð og Íslenski ferðaklasinn sem standa að verkefninu í samstarfi við Ferðamálastofu, SAF, Íslands- stofu, Stjórnstöð ferðamála, Mark- aðsstofur landshlutanna, Höfuð- borgarstofu og Safetravel. Ábyrg ferðaþjónusta er hvatn- ingarverkefni um að fyrirtæki tengd ferðaþjónustu sammælist um nokkrar skýrar og einfaldar að- gerðir um ábyrga ferðaþjónustu. Áhersluþættirnir eru: 1. Ganga vel um og virða náttúr- una. 2. Tryggja öryggi gesta okkar og koma fram við þá af háttvísi. 3. Virða réttindi starfsfólks. 4. Hafa jákvæði áhrif á nærsam- félagið. Fyrirtækin þurfa að setja sér markmið um þessa þætti, mæla árangurinn og birta hann reglu- lega. Þeim býðst í kjölfarið að taka þátt í fræðsludagskrá allt þetta ár þar sem gefin eru hagnýt ráð til að setja fram markmið og aðgerðir um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Fyrirtæki af öllum stærðum geta tekið þátt í Ábyrgri ferðaþjón- ustu. Lítið fjórhjólafyrirtæki getur sett sér markmið um að aka ekki utan slóða á viðkvæmum jarðvegi, fara ekki af stað með ferðamenn í norðurljósaferð ef veður er tvísýnt eða þungskýjað, greiða starfsfólki fyrir allt vinnuframlag þess og taka þátt í árlegum hreinsunardegi í fjörunni í nálægð þar sem ekið er með ferðamenn, eða styðja við stefnumótun í bæjarfélaginu og sýna þannig ábyrgð í nærsamfé- laginu. Ferðaþjónusta til sóma Söguleg yfirlýsing 270 fyrirtækja um ábyrga ferðaþjónustu. Skinnfiskur ehf. | Hafnargata 4a | 245 Sandgerði | www.skinnfiskur.is Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð, segir að fyrirtæki séu farin að huga meira að því hvernig þau skapa tekjur í stað þess að einblína á gróðann. S amfélagsleg ábyrgð fyrirtækja er málefni sem alltaf hefur verið til en hefur verið meira og meira í umræðunni á undanförnum árum,“ segir Ketill Berg Magnússon, fram- kvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð. Ketill hefur verið fram- kvæmdastjóri Festu í fjögur ár en hann er jafnframt stundakennari í viðskiptasiðfræði og samfélagsá- byrgð við Háskólann í Reykjavík. Hann er fyrst spurður að því hvað samfélagsábyrgð fyrirtækja sé. „Með einföldum hætti má segja að samfélagsábyrgð fyrirtækja snúist um það að fyrirtækin axli ábyrgð á afleiðingum af rekstri sínum. Taki ábyrgð á afleiðing- um af rekstrinum á umhverfið og náttúruna og samfélagið, það er að segja fólk,“ segir Ketill. Hann segir að öll fyrirtæki hafi áhrif. Þau áhrif eigi til að mynda við um hliðaráhrif eins og þau að nota vegi. „Í einhverjum tilvikum menga þau og skilja þannig eftir áhrif. Þetta snýst mikið um það að fyrirtæki hugsi ekki bara um að græða peninga fyrir eigend- urna heldur líka um hvaða áhrif reksturinn hefur á samfélagið sem þau starfa í.“ Ketill segir að samfélagsábyrgð fyrirtækja sé í raun regnhlíf- arhugtak um marga þætti. Samfélagsábyrgðin snúi að um- hverfismálum, samfélagsmálum – hvernig komið sé fram við starfs- fólk og mannréttindamálum – að nærsamfélaginu og að vörum og þjónustu fyrirtækja – eru þau ábyrg og örugg og er nokkuð ver- ið að svína eða svindla á neytend- um? „Það sem er sérstakt við hug- myndafræðina á bak við samfé- lagsábyrgð fyrirtækja er að hún fjallar bæði um málefni sem tekið er á í lögum en líka málefni sem ekki er búið að setja lög og reglur um. Þetta er tengt umræðu um siðferði, hvernig er rétt að koma fram. Á Íslandi var umræðan á árunum fyrir hrun þannig að það fyrsta sem kom upp í hug þegar rætt var um samfélagsábyrgð fyr- irtækja voru styrkir til góðgerðar- mála. Menn létu sem þeir væru rosa góðir af því þeir gáfu til góð- gerðarmála. Þá var ekki verið að huga að starfseminni sjálfri. Undanfarið hefur þetta snúist meira yfir í það að fyrirtækin huga að því hvernig þau skapa tekjurnar, ekki hvernig þau eyða peningunum sem þau afla. Held- ur hvernig þau fara að því að starfa. Það er verið að reyna að skil- greina árangur fyrirtækja upp á nýtt. Í stað þess að mæla bara í krónum og aurum er árangur fyrirtækja líka mældur í þeim áhrifum sem þau hafa á náttúru og samfélagið.“ Hvernig er staðan á Íslandi? „Íslensk fyrirtæki hafa að mörgu leyti staðið sig vel en það er að ýmsu að huga og alltaf hægt að gera betur. Til dæmis í umhverfis- málum. Við búum við það að get- að notað endurnýtanlega orku og erum með mikið af ómengandi starfsemi. En við erum samt sem áður alltaf að sjá það betur og betur að við þurfum að fara afar vel með þessar náttúruauðlindir. Þetta er ekki sjálfgefið. Svo kemur að þessum félags- legu þáttum. Ísland er mjög fram- arlega þegar kemur að jafnfréttis- málum kynjanna en við erum samt sammála um að þurfum að gera enn betur. Dæmi um áhrifin eru að í vikunni fengum við nýja ríkisstjórn og það fyrsta sem nýr félagsmálaráðherra talar um er jafnlaunavottun. Það er gott dæmi um samfélagsábyrgð.“ Á þessu ári verður stór breyting hér á landi þegar í fyrsta skipti reynir á ný ársreikningalög sem skikkar fyrirtæki með 250 starfs- menn og fleiri til að gefa út sam- félagsskýrslu árlega. „Þá munu félög fjalla um áhrif sín á umhverfið og samfélagið í ársskýrslum sínum. Þetta verður í fyrsta skipti í ársskýrslunum sem koma á næstu mánuðum. Þetta verða miklar breytingar.“ Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri Festu, segir að íslensk fyrirtæki hafi að mörgu leyti staðið sig vel varðandi samfélagsá- byrgð sína en alltaf sé hægt að gera betur. Mynd | Hari Ísland er mjög framar- lega þegar kemur að jafnfréttismálum kynjanna en við erum samt sammála um að þurfum að gera enn betur. 2 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.