Fréttatíminn - 14.01.2017, Page 35

Fréttatíminn - 14.01.2017, Page 35
Þ ekking á sviði samfélags- ábyrgðar fyrirtækja hef- ur þróast mjög hratt á undanförnum árum út um allan heim. Segja má að sú þekkingarþróun hafi komist á verulegan skrið þegar menn fóru að reyna að mæla með tölulegum og heildstæðum hætti áhrifin sem rekstur fyrirtækja hefur á umhverf- ið annars vegar og hins vegar fé- lagslega þætti. Fyrir um 25 árum síðan hófu danskir fræðimenn að reyna að mæla siðferði fyrirtækja og settu upp siðferðileg reiknings- skil í þeim tilgangi. Banki á Jótlandi lenti í miklum álitshnekki vegna svika við viðskiptavini og í kjölfar- ið var reynt að setja honum rekstr- arleg markmið um að auka traust viðskiptavina og tiltrú á að bank- inn starfaði með sanngjörnum við- skiptaháttum. Gjafir mælikvarði ábyrgðar Á sama tíma á Íslandi var bankastjóri uppvís af því að hafa þegið boð um laxveiði frá við- skiptavini bankans og þegar gagn- rýni heyrðist var viðkvæðið að sið- ferði væri eitthvað sem hver og einn lærði í frumbernsku, eða færi eft- ir tíðarandanum og ekki þýddi að ræða með rökum til að auka þekk- ingu eða komast að sameiginlegri niðurstöðu. Á árunum upp úr alda- mótum varð samfélagsábyrgð fyrir- tækja á Íslandi síðan fyrst og fremst tengd því hversu dugleg þau voru til að gefa peninga til góðgerðamála. Fáum datt í hug að tengja samfélags- ábyrgð við hvernig fyrirtækin sjálf voru rekin. Er kjarnastarfsemin ábyrgð? Smám saman hefur þekking manna aukist á því hvernig meta má og mæla hvort fyrirtæki hafi skaðleg eða jákvæð áhrif með starfsemi sinni á náttúruna og þau samfélög sem þau starfa í. Alþjóðlegir staðlar og viðmið til að leggja mat á samfé- lagsábyrgð fyrirtækja hafa sprottið fram og taka nú örum breyting- um eftir því sem þekkingunni og mæliaðferðum fleytir áfram. Sameinuðu þjóðirnar Í tíð Kofi Annan settu Sameinuðu þjóðirnar á laggirnar sáttmála sem kallaður er Global Compact, þar sem fyrirtæki skrifa undir og meta árlega starfsemi sína út frá 10 við- miðum um samfélagsábyrgð. Ný- lega settu Sameinuðu þjóðirnar svo fram 17 heimsmarkmið sem ætluð eru til að samræma viðmið fyrir þjóðir heims, fyrirtæki og einstak- linga um sjálfbærni og samfélagsá- byrgð. Á næstu árum má búast við að þjóðir og fyrirtæki reyni að bera saman mælingar sínar á Heims- markmiðunum. Það gæti haft veru- leg áhrif á alþjóðavæðingu og sam- starf milli landa. Aukin þekking á Íslandi Festa – miðstöð um samfélagsá- byrgð hefur undanfarin ár staðið fyrir Janúarráðstefnu í samvinnu við Samtök atvinnulífsins. Þar er nýjasta þekking á sviði samfélags- ábyrgðar fyrirtækja rædd og hag- nýt dæmi frá fyrirtækjum er kynnt. Mikil og hröð þróun hefur átt sér stað í samfélagsábyrgð fyrirtækja á Íslandi á síðustu árum. Fleiri fyr- irtæki en nokkru sinni áður eru að vinna með markvissum hætti í að setja sér mælanleg markmið um samfélagsábyrgð. Loftslagyfirlýsing Festu og Reykjavíkurborgar er þar dæmi, og svo allur sá fjöldi fyrir- tækja tengd ferðaþjónustu sem ætla að setja sér markmið um ábyrga ferðaþjónustu. Frá Global Compact til Íslands Aðalræðumaður Janúarráðstefnu Festu í ár verður Georg Kell, fyrrum framkvæmdarstjóri Global Compact Sameinuðu þjóðanna. Hann starfar nú fyrir alþjóðlegan fjárfestingasjóð sem hefur þróað leiðir til að reikna saman ótal mælikvarða um samfé- lagsábyrgð og sjálfbærni fyrirtækja fyrir fjárfesta. Þeir hafa sýnt fram á að fjárfestingar í sjálfbærum verk- efnum og fyrirtækjum skilar meiri ávöxtun og hefur minni áhættu í för með sér en aðrir fjárfestingakostir. Það verður spennandi að sjá hvaða tækifæri Georg Kell telur að felist í því fyrir íslensk fyrirtæki í að inn- leiða samfélagsábyrgð í kjarnastarf- semi sína. Ketill Berg Magnússon Höfundur er framkvæmdastjóri Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð. Hröð þróun samfélagsábyrgðar Georg Kell, fyrrum framkvæmdarstjóri Global Com- pact Sameinuðu þjóðanna, verður aðalræðumaður á ráðstefnu Festu í Hörpu síðar í þessum mánuði. Georg Kell, fyrrum fram- kvæmdarstjóri Global Compact, verður aðal- ræðumaður á ráðstefnu Festu í Hörpu síðar í mánuðinum. 7 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA Sýna ábyrgð í verki Hjá Endurvinnslunni hf. er horft til þess að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif af rekstrinum. Unnið í samstarfi við Endurvinnsluna hf. Endurvinnslan hf. var stofnuð 1989 og á þeim tíma var hlutverk hennar fyrst og fremst að losna við flöskur og dósir sem rusl í náttúrunni. Töluvert var þá um að það lægi á víð og dreif um landið. Leitast var við að endurvinna því sem var safnað. Á þessum tíma var lítið um endurvinnslu og því fékk fyrirtækið nafnið Endur- vinnslan hf. Út frá þessari hugsun og nafni hefur fyrirtækið leitast við að ná árangri í umhverfismál- um. Endurvinnslan hf. fékk um- hverfisvottun ISO 14001 árið 2015 og þar er verið að horfa til þess að lágmarka neikvæð umhverfis- áhrif af rekstrinum, meðal annars með því að lágmarka flutninga og endurvinna sem mest. Þannig eru allir plastpokar og pappír sem koma með efni til Endurvinnslunnar nú endurunnið. „Einnig viljum við kolefnisjafna reksturinn okkar og er það gert meðal annars með því að nota raf- magnsbíl, greiða samgöngustyrk sem gildir líka ef notaðir eru um- hverfisvænir bílar, gróðursetja við Heklurætur og styðja almennt við verkefnið Hekluskóga. Starfsmenn geta einnig sótt um styrk til kolefn- isbindingar. Þá verður að geta þess að um- hverfisáhrif þess að endurvinna plast og ál í stað þess að til dæmis urða það eru veruleg. Miðað við alþjóðlegar mælingar er kolefn- isbinding þess að endurvinna þær umbúðir samsvarandi kolefn- isbindingu um 6 milljón trjáa á ári. Endurvinnslan hefur reynt að taka á samfélagslegri ábyrgð eins og önnur fyrirtæki. Árið 2013 var til að mynda tekin upp jafnlaunavott- un VR og hugsunin með því hafi ekki einungis verið sú að greidd væru sömu laun óháð kyni, laun væri greidd án mismununar. Athygli hefur vakið að Endur- vinnslan hefur nýtt sér krafta fólks sem ekki hefur getað gengið að störfum vísum á almennum vinnu- markaði. „Við höfum reynt að fá sem okkar umboðsaðila þá sem hlúa að fólki á vernduðum vinnu- stöðum. Sem dæmi um okkar um- boðsaðila má nefna Þroskahjálp Suðurnesja, Fjöliðjuna, Plastiðj- una Bjarg og Vesturafl. Auk þeirra eru margir með starfsmenn frá vernduðum vinnustöðum eins og Skátarnir og Vestmannaeyjabær,“ en allir þessir staðir eiga það sam- eiginlegt að þeir einstaklingar sem þar vinna eru duglegir og sam- viskusamir, auk þess sem þeir eru mjög ánægðir með að vera í vinnu samfélaginu til gagns. „Þetta eru oft glöðustu starfs- menn sem þú færð í vinnu,“ segir Helgi. „Nýlega komu til vinnu tveir einstaklinga sem höfðu verið heima að spila tölvuleiki í mörg ár. Þeir voru svo spenntir að fá að mæta í vinnu að þeir sváfu ekki í margar nætur fyrir.“ Af öðrum aðilum sem nýta sér dósasöfnun í fjármögnun á sínum rekstri má nefna björgunarsveitir, íþróttafélög og RKÍ. Jón Þórarinsson vinnur í Endurvinnslunni í Knarrarvogi þrjá daga í viku. Hann nýtur vinnunnar og er glaður að fá að taka til hendinni. Samstarfsmenn Jóns í Endurvinnslunni bera honum afar vel söguna og segja að hann sé mjög duglegur í vinnu. Mynd | Hari

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.