Fréttatíminn - 14.01.2017, Side 36
8 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA
Samstarf við kakóbændur
á Fílabeinsströndinni
Nói Siríus á í ábyrgu samstarfi við Cocoa Horizons,
samtök sem styðja við kakóbændur með fræðslu og stuðla
að betri framleiðsluháttum og bættri lífsafkomu þeirra.
Unnið í samstarfi við Nóa Siríus
Nói Siríus hefur í nærri 100 ár séð Íslendingum fyrir góðgæti á gleði-stundum. Súkkulaði er
aðalframleiðsla fyrirtækisins og
hráefnið er að hluta innflutt frá
suðrænum löndum. Auðjón Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
markaðs- og sölusviðs Nóa, segir
að kakósmjörið sem notað er í
súkkulaðið komi frá Fílabeins-
ströndinni. Þar á fyrirtækið í
ábyrgu samstarfi við Cocoa
Horizons, samtök sem hafa að
markmiði að styðja við sjálfbær-
an kakólandbúnað og stuðla að
fræðslu, framsæknum fram-
leiðsluháttum og bættri lífs-
afkomu kakóbænda. En hvað
þýðir slík samvinna um samfé-
lagsábyrgð fyrir fyrirtæki eins og
Nóa Siríus.
„Nói Siríus er í grunninn fjöl-
skyldufyrirtæki sem hefur verið í
eigu sömu fjölskyldna í nærri 100
ár. Það er byggt á þeim grunni
að þetta snúist ekki bara um að
stunda viðskipti heldur sé hluti
af lífinu sem þýðir að fyrirtækið
þurfi að sýna ábyrgð í verki og
skila þeirri sýn áfram til næstu
kynslóðar.“
Fullorðinsfræðsla og jákvæð
áhrif á lífsafkomu
Auðjón segir að samstarfið við
Cocoa Horizons hafi komið til í
kjölfar langrar yfirlegu og heim-
sóknar til kakóbænda.
„Við flytjum inn kakó og
kakósmjör, sem er aðalhráefnið
okkar, frá Fílabeinsströndinni.
Við völdum að starfa með Cocoa
Horizons eftir ítarlega skoðun
þar sem teymi frá okkur fór til
Fílabeinsstrandarinnar og fór vel
yfir það sem verið er að vinna að
þar. Þetta samstarf hefur reynst
ákaflega vel og við sjáum að hag-
ur fyrirtækisins og framleiðend-
anna fer þar saman.“
Cocoa Horizons stendur meðal
annars fyrir fullorðinsfræðslu til
bænda. Auðjón segir að sú nálgun
samtakanna sé stór hluti af því að
Nói hafi valið að vinna með þeim.
„Í dag er hægt að velja úr
margs konar vottunum og sam-
starfsleiðum til að stuðla að
samfélagslegri ábyrgð. En það
sem sannfærði okkur um Cocoa
Horizons var sú langtímahugs-
un sem birtist í starfinu. Þetta
er ekki bara hefðbundin fram-
leiðsluvottun heldur hefur það að
markmiði að bændurnir hagnist
á samstarfinu og að það sé ýtt
undir sjálfbærni og þróun, bæði
í kakóframleiðslunni sjálfri og í
samfélaginu í heild. Það sem við
sáum á staðnum var að þetta ver-
kefni hefur mikil og jákvæð áhrif
sem skila sér í betri lífsafkomu
fyrir bændur, meiri uppskeru og
betri afurðum.“
Markvisst unnið að því að
bæta samfélagið allt
Auðjón segir að það hafi kom-
ið á óvart hvað starfsemi Cocoa
Horizons sé víðtæk en að hún ein-
skorðist ekki við kakóframleiðsl-
una sjálfa.
„Það kom ánægjulega á óvart
að sjá hversu langt þetta starf
teygir sig. Það er unnið mjög
markvisst að því að bæta samfé-
lagið allt. Þar á ég til dæmis við
að það er verið að leggja mikið í
að bjóða upp á betri menntun og
tryggja aðgengi fólks að heil-
brigðisþjónustu, tryggja aðgang
að hreinu vatni með því að grafa
brunna, kenna bændum að nýta
landið betur og byggja upp inn-
viði samfélaganna. Við erum mjög
ánægð fyrir okkar leyti hjá Nóa
að geta lagt okkar af mörkum til
svona uppbyggingar. Það skiptir
líka miklu máli að allt þetta ferli er
mjög gagnsætt, þannig að það er
auðvelt að fylgjast með því í hvað
fjármunirnir fara og hvað er verið
að gera.“
Neytandinn á að geta keypt
vörur með góðri samvisku
En hvaða máli skiptir áhersla á
samfélagsábyrgð fyrir fyrirtækið
sjálft og ekki síður neytendur á
Íslandi?
„Það skiptir tvímælalaust mjög
miklu máli. Í fyrsta lagi skiptir það
miklu máli fyrir fyrirtækið sjálft,
eins og ég nefndi áðan, ekki bara
út frá rekstri eða slíku heldur
vegna þess að það er og hefur
verið skýr sýn hjá eigendum fyr-
irtækisins í áratugi að leggja sitt
af mörkum.
Í öðru lagi eru neytendur í nú-
tíma samfélagi orðnir meðvitaðari
um ábyrgð fyrirtækja gagnvart
svona hlutum og vilja að þær vör-
ur sem þeir kaupa endurspegli
þeirra vilja til að byggja upp en
ekki skaða.
Neytandinn á að geta keypt
vörur með góðri samvisku, ef við
getum orðað það svo, þá meina
ég að hluti af loforði Nóa til neyt-
andans er að neysla hans verði
ekki öðrum til skaða. Þetta kemur
líka inn á frjálst val neytandans
á vöru. Samfélagsábyrgð virkar
þess vegna í báðar áttir því að
ábyrgð fyrirtækisins og neyt-
andans liggja saman. Fyrirtækið
gefur neytandanum val og neyt-
andinn veitir fyrirtækinu aðhald.
Hvort tveggja er mikilvægt.
Í þriðja lagi þá er það einnig
út frá persónulegum nótum góð
tilfinning að vera starfsmaður
hjá fyrirtæki sem lætur gott af
sér leiða og vinnur að jákvæðum
og uppbyggilegum hlutum sem
varða samfélagið.“
Minnka sóun af umbúðum
Áhersla Nóa Siríus á samfélagsá-
byrgð kemur einnig fram í starf-
semi fyrirtækisins hér á landi en
á undanförnum árum hefur fyrir-
tækið styrkt fjölda verkefna með
ýmsum hætti ásamt því að því að
bæta aðra þætti varðandi vörur
fyrirtækisins.
„Við höfum til dæmis verið að
vinna að því að minnka sóun sem
verður af umbúðum, bæði innan
fyrirtækisins og af vörunum sjálf-
um. Umhverfismál skipta okkur
miklu máli og þau krefjast þess
að við séum sífellt að horfa á það
hvernig við getum gert betur. Við
veljum vistvænni umbúðir um-
fram aðrar og veljum framleiðend-
ur sem skilja eftir sig sem minnst
kolefnisspor í umbúðaframleiðsl-
unni.“
Auðjón segir að íslensk fyrir-
tæki séu almennt að standa sig
vel þegar kemur að samfélags-
legri ábyrgð.
„Í heildina tel ég að fyrirtæki
séu orðin vel vakandi gagnvart
þessu. Það er kannski í þessu eins
og öðru að það kemst hratt í um-
ræðuna þegar eitthvert sinnuleysi
hjá fyrirtækjum kemur upp á yfir-
borðið. Mín upplifun er sú að flest
fyrirtæki séu að sýna ábyrgð, en
það eru hins vegar alltaf umbóta-
tækifæri og möguleikar hjá öllum
á að gera betur.
Þetta er sífelld vinna sem að
hættir aldrei, en það er það sem
gerir þetta áhugavert og krefjandi
og ýtir undir viljann til að gera
betur. Og það er að sjálfsögðu
mjög jákvætt.“
Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Markaðs- og sölusviðs Nóa: „Hluti af
loforði Nóa til neytandans er að neysla
hans verði ekki öðrum til skaða.“
Starfsmenn Nóa Síríus fóru til Fílabeinsstrandarinnar til að kynna sér starfsemi samstarfsfyrirækis síns, Cacao Horizons. „Þetta er ekki
bara hefðbundin framleiðsluvottun heldur hefur það að markmiði að bændurnir hagnist á samstarfinu og að það sé ýtt undir sjálfbærni og
þróun, bæði í kakóframleiðslunni sjálfri og í samfélaginu í heild.“