Fréttatíminn - 14.01.2017, Síða 42
Árið 2015 hentum við 35 tonnum minna af sorpi en árið 2014 með til-
stuðlan verkefnisins Minni sóun.
• Með markvissri vinnu náði Nettó að minnka sorp sem annars
hefði verið urðað og brennt um 50 tonn árið 2016 og stefnan er að
minnka sorpið um 100 tonn árlegra.
• Árið 2016 gaf Nettó viðskiptavinum sínum 125 milljónir í afslátt af
vörum
sem annars hefðu líklega
lent í ruslinu.
• Árið 2014 björguðum við 10500 trjám með því einu
að setja 620 tonn af pappa
í endurvinnslu
• Farið hefur verið yfir sorpflokkun allra verslana og er full flokkun
(almennt sorp – lífrænt – pappi og plast) innleidd þar sem það
er mögulegt.
• Markmið í sorpflokkun eru: 40% pappi/plast,
50% almennt sorp &
10% lífrænt
Skipting í öllu fyrirtækinu er:
• 55% almennt sorp (800 tonn)
• 5% lífræn flokkun (vantar Norðurland og þá væri þetta 10%) (75
tonn)
• 40% pappi og plast til endurvinnslu (550 tonn)
• Samkaup skrifuðu undir yfirlýsingu árið 2015 um aðgerðir í loftlags-
málum.
• Verið er að skoða LED lýsingu í verslanir sem sparar orku.
• Allir frystar sem keyptir verða eru með lokum og verið er að loka
eldri frystum í verslunum sem leiðir til 40% minni orkunotkunar.
• Tilraunarverkefni í lokuðum kælum verslana sem leiðir til 20% minni
orkunotkunar.
• Orka sem kemur frá
kælivélum er nýtt til
húshitunar ef kostur er.
• Remake orkumælingarkerfi er í innleiðingu sem getur leitt til 10%
minni rafmagnsnotkunar.
• Burðarpokar verslana innihalda minna plast en hefðbundnir pokar
og fjölnotapokar hafa verið
teknir í notkun.
• Árleg þjálfun í umhverfismálum á sér stað í verslunum í samvinnu
við þjónustuaðila Samkaupa.
• Rafræn samskipti í bókhaldi og reikningshaldi, Edi samskipti eins
og kostur er.
Helstu staðreyndir um sorpmál Samkaupa:
Helstu staðreyndir í umhverfismálum:
14 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA
Stuðla að minni
matarsóun og
flokkun úrgangs
Árið 2016 gáfu Samkaup viðskiptavinum sínum 125 milljónir
í afslátt af vörum sem annars hefðu líklega lent í ruslinu.
Unnið í samstarfi við Samkaup
Samkaup eiga og reka versl-unarkeðjurnar; Nettó, Kjör-búðina, Krambúð, Samkaup Strax og Samkaup Úrval.
Frá árinu 2007 hefur starfsfólk
Samkaupa stöðugt stigið ný skref
í umhverfismálum. Allt frá sorp-
flokkun og endurnýtingu til orku-
sparnaðar og endurnýtingar orku.
Í upphafi árs 2015 var umhverfis-
stefna fyrirtækisins uppfærð og
um mitt ár 2015 tóku Samkaup
upp átakið Minni Sóun – Allt nýtt,
en tilgangur átaksins er að kynna
fyrir viðskiptavinum og starfsfólki
hvað unnt sé að gera til að stuðla
að minni sóun, flokkun úrgangs og
ýmiss konar orkusparnaði.
„Því miður hendum við gríðarlega
miklu magni af matvöru og sorpi í
okkar nútímasamfélagi. Við ákváð-
um að sporna við þessu og höfum
nú þegar unnið að því að minnka
sorp í okkar fyrirtæki. Við höfum
unnið að alls kyns orkusparnaði á
síðustu árum með sérstökum lok-
um á allar frystikistur í verslunum
okkar. Nú bætist við Minni Sóun –
Allt nýtt – átakið þar sem áherslan
er á aukna flokkun og minni sóun
matvæla,“ segir Gunna Egill Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri versl-
unarsviðs Samkaupa.
Nettó býður nú stigvaxandi af-
slátt af vörum sem nálgast síðasta
söludag. Vöruverð lækkar eftir því
sem líftími vöru styttist og stuðlar
þetta að minni sóun matvöru. Allt
þetta er undir slagorðinu Keyptu í
dag – njóttu í dag!
„Það felst mikill sparnaður í að
nýta allt, minni sóun á sér stað og
það er betra fyrir umhverfið. Einfalt
er að temja sér innkaup þannig að
þú kaupir matvöru til að nota hana
samdægurs. Ef við leggjumst öll
á eitt þá getum við hlúð betur að
jörðinni – við eigum jú bara eina,“
segir Gunnar.
Nettó selur mikið af umhverfi-
svænni og lífrænni matvöru og
ýmis konar sérvöru en, það eru
vöruflokkar sem hafa vaxið gríðar-
lega á síðustu árum. Þá nýtir fyr-
irtækið ýmis tækifæri til að vekja
athygli á matarsóun á frumlegan og
skemmtilegan hátt.
Á Menningarnótt árið 2016 stóð
verslunarkeðjan Nettó, sem er í
eigu Samkaupa, til að mynda fyrir
súpueldhúsi í Hljómskálagarðinum
til að vekja athygli á matarsóun og
hvetja fólk til að sporna við henni.
Súpan var elduð úr hráefni sem
var annað hvort að renna út eða var
útlitsgallað en samt vel ætilegt.
Fjölmiðlakonan Tobba Marinós
var ein þeirra sem stóð vaktina í
súpueldhúsi Nettó, enda mikil bar-
áttukona gegn matarsóun. „Sjálf
þurfti ég að læra að versla upp á
nýtt og hætta að kaupa vöru með
sem lengstan fyrningardag ef ég
ætlaði að nota vöruna samdæg-
urs. Við þurfum að taka ábyrgð á
umhverfi okkar. Eftir að ég tók eftir
afsláttarkerfinu hjá Nettó fór ég að
hugsa betur út í hvenær ég ætla að
nota tiltekna vöru. Mér finnst frá-
bært að Nettó taki þátt í þessu og
sýni samfélagslega ábyrgð og gott
fordæmi. Ég vona að þetta veki fólk
til umhugsunar,“ segir Tobba.
Nýtum allt & spörum!
Nettó stuðlar að minni sóun og býður stigvaxandi
afslátt af vörum sem nálgast síðasta söludag.
Vöruverð lækkar eftir því sem líftíminn styttist.
20% afsláttur af þurrvöru sem er
á dagsetningu eftir 30 daga og fersk-
vöru sem á 2 daga í síðasta söludag.
30% afsláttur af þurrvöru sem er á
dagsetningu eftir 15 daga og fersk-
vöru sem á einn dag í síðasta söludag.
50% afsláttur af þurrvöru sem er á
dagsetningu eftir 7 daga og ferskvara
sem er komin á síðasta söludag.
20%
AFSLÁT
TUR
5 6945
21 60
5438
20%
AFSLÁTTUR
5 694521 605438
3
20%
AFSLÁTTUR
5 694521 605438
5
www.netto.is | Mjódd · Grandi · Salavegur · Búðakór · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |
Tobba Marinós vaknaði til vitundar eftir að
hún tók eftir afsláttarkerfi Nettó og kaupir
nú frekar vörur þar sem fyrningardagur
nálgast ef hún ætlar að nota þær strax.