Fréttatíminn - 14.01.2017, Síða 45

Fréttatíminn - 14.01.2017, Síða 45
17 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA Fyrirtækið er hluti af samfélaginu Gagnkvæmur ávinningur markmiðið. Unnið í samstarfi við IKEA Hjá IKEA er lögð áhersla á að sinna samfélags-legri ábyrgð á fjöl-breyttan hátt. „Samfé- lagsleg ábyrgð fyrirtækja snýst í huga margra eingöngu um að veita styrki en hún er svo miklu meira. Undir hattinn „samfélag- ið“ í starfsemi IKEA á Íslandi falla viðskiptavinir, starfsfólk, umhverf- ið – bæði nærumhverfi og í víðara samhengi,“ segir Guðný Camilla Aradóttir, markaðs- og umhverfis- fulltrúi IKEA á Íslandi. „Að sýna samfélagslega ábyrgð snýst um að vera í góðu sambandi við sveitarfé- lagið sem við störfum í, ganga vel um umhverfið og stuðla að því að aðrir geri það líka.“ Fríar barnamáltíðir í 6 ár Að sögn Guðnýjar lítur IKEA svo á að fyrirtækið sé hluti af samfé- laginu og þurfi þannig að hafa sín- um rekstri þannig að það sé gagn- kvæmur ávinningur samfélagsins og fyrirtækisins af rekstrinum. „Við sinnum þessu nokkuð vel. Út á við veitum við styrki til ýmissa málefna og sú vinna er í gangi allt árið. Við höfum lagt áherslu á að styrkja sérstaklega málefni sem tengj- ast börnum, menningu og hönnun. Þetta eru málefni sem eru okkur kær, og börnin þá sérstaklega,“ segir Guðný og tiltekur sérstak- lega starfsemi Slysavarnahússins sem IKEA hefur stutt dyggilega um árabil. „Þar hefur náðst gríðar- lega góður árangur þannig að við erum afar stolt af því samstarfi.“ Eftir hrun, veturinn 2008, tók IKEA ákvörðun um að gefa barnamáltíðir á veitingastaðnum til að létta undir með barnafjölskyldum. „Þótt engin tímamörk hafi verið á tilboðinu, þá óraði engan fyrir að það myndi endast eins lengi og raun ber vitni, eða út ágúst 2014,“ segir Guðný. Gera daglegt líf þægilegra Vöruverði í IKEA er breytt einu sinni á ári, við upphaf nýs rekstr- arárs. „Nú hefur allt verð verið lækkað nokkur ár í röð. Rekstur- inn gengur vel og það hefur verið svigrúm til að taka þá afstöðu að sýna samfélagslega ábyrgð með því að lækka vöruverð. Við finn- um það að fólk veit af þessu og kann að meta þetta, þótt alltaf séu þeir sem sjá bara það neikvæða í öllu, en þeir eru í miklum minni- hluta. Grunnurinn að hugmynda- fræði IKEA er að gera daglegt líf þægilegra fyrir sem flesta og það er í raun og veru unnið að því í allri starfseminni, til dæmis með því að standa á þennan hátt með neyt- endum.“ Fjölmörg námskeið í boði Hjá IKEA starfa 350 manns frá 22 löndum í afar fjölbreyttum störf- um og Guðný leggur áherslu á að stór hluti af því að sýna samfé- lagslega ábyrgð sé að vera góður vinnustaður. „Það hefur verið lögð áhersla á að taka vel á móti er- lendum starfsmönnum og fá þeir til dæmis fría íslenskukennslu á vinnutíma. Það auðveldar þeim auðvitað að eiga samskipti við yf- irmenn og samstarfsfólk, en ekki síður að vinna sig upp ef áhugi er fyrir því,“ segir Guðný en fjölmörg námskeið eru í boði fyrir allt starfs- fólk IKEA og eru til dæmi um að fólk hafi umbylt lífi sínu með því að nýta sér það sem boðið er upp á gegnum fyrirtækið. 13. mánuðurinn borgaður IKEA var fyrsta fyrirtækið sem hlaut jafnlaunavottun VR. „Hér er enginn á lágmarkslaunum. Starfsfólkið hefur fengið að njóta þegar vel gengur og það hafa verið veittar nokkrar launahækkanir til viðbótar við lögbundnar hækkan- ir undanfarin ár. Nýjasta dæmið er svo greiðsla á 13. mánuðinum á næsta ári en tilkynnt var síðla á síðasta ári að starfsfólk IKEA fengi þrettánda mánuðinn greiddan í lok rekstrarársins næsta haust ef viss markmið næðust. Það stefnir allt í það og því má búast við að starfs- fólk njóti þess í haust,“ segir Guð- ný og bætir við að þess utan bjóði fyrirtækið upp á árlega heilsufars- skoðun, fría ávexti og hollan mat í mötuneytinu, svo eitthvað sé nefnt. Umhverfismálin skipta máli IKEA á Íslandi starfar samkvæmt umhverfisstefnu IKEA á heims- vísu, en hefur einnig sínar áhersl- ur. „Umhverfismálin eru auðvitað mikilvæg og markmiðið er alltaf að nýta vel hráefni og minnka sóun, hvort sem talað er um skrifstofu- pappír eða matvæli á veitinga- staðnum. Við höfum einnig komið upp hleðslustæðum fyrir rafbíla, bæði fyrir viðskiptavini og starfs- fólk, og enn stendur til að fjölga þeim í vor. Það er líka svolítil yfir- lýsing af okkar hálfu. Við bindum vonir við að bílafloti landsmanna sé að rafvæðast. Við setjum upp hleðslustæði til að segja að við telj- um að rafbílar eigi að vera hluti af þessu daglega lífi sem er okkar ær og kýr – að þeir eigi að vera fyrir alla,“ segir Guðný og undirstrikar að viðskiptavinir IKEA séu almenn- ingur þessa lands. Hleðslustæði fyrir rafbíla viðskiptavina. Guðný Camilla Aradóttir, markaðs- og umhverfisfulltrúi IKEA á Íslandi. Störfin í IKEA eru afar fjölbreytt.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.