Fréttatíminn - 14.01.2017, Qupperneq 46

Fréttatíminn - 14.01.2017, Qupperneq 46
• SÍBS hefur rekið Múlalund frá árinu 1959 með dyggilegum stuðningi Happdrættis SÍBS. • Múlalundur á í samvinnu við Reykjalund, sem er einnig rek- inn af SÍBS. • Múlalundur og Vinnumála- stofnun vinna vel saman með hagsmuni starfsmanna að leiðarljósi. Vinnumálastofnun aðstoðar fyrirtæki við að taka í vinnu fólk með fötlun sem hefur lokið starfsendurhæf- ingu hjá Múlalundi, auk þess sem Múlalundur ræður fólk sem er á biðlistum hjá Vinnu- málastofnun. Múlalundur í 58 ár 18 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA Vandaðar vörur sem skapa störf Múlalundur er elsta og stærsta öryrkjavinnustofa landsins en þar fer fram sala og framleiðsla á almennum skrifstofuvörum, auk þess sem starfsmenn taka að sér ýmis sérverkefni. Framkvæmdastjóri Múlalundar segir stuðning viðskiptavina skipta öllu máli fyrir starfsemina. Unnið í samstarfi við Múlalund Eitt af því sem mér finnst svo frábært við Múlalund er að hér fær fólk, sem er með skerta starfsorku í kjölfar til dæmis slyss eða veik- inda, tækifæri til að sýna hvað í því býr með því að spreyta sig á fjölbreyttum verkefnum, skapa verðmæti og þannig að leggja sitt af mörkum til atvinnulífsins. Það er ekki bara gott fyrir einstak- linginn sjálfan heldur samfélagið í heild sinni,“ segir Sigurður Vikt- or Úlfarsson framkvæmdastjóri Múlalundar, vinnustofu SÍBS. „Viðskiptavinir panta hjá okk- ur vörur og við sendum þær til þeirra daginn eftir. Þetta er í raun einfaldasta samfélagsver- kefni sem hægt er að hugsa sér því fyrirtækin eru að kaupa skrif- stofuvörur hvort eð er,“ segir Sigurður. Múlalundur var stofnaður árið 1959 og er því elsta vinnustofa sinnar tegundar á landinu. Frá upphafi hefur markmiðið verið skýrt: Að veita fólki með skerta starfsorku atvinnu, en þannig hafa þúsundir Íslendinga feng- ið annað tækifæri. Bæði er um að ræða störf til lengri tíma, auk þess sem boðið er upp á vinnuprufur fyrir fólk sem hef- ur verið án vinnu lengi, í þeim tilgangi að aðstoða það við að komast aftur af stað. Á síðasta ári fengu því alls um 80 einstak- lingar tækifæri til að spreyta sig á Múlalundi. Sigurður segir stuðn- ing viðskiptavina mikilvægan starfseminni. „Það er ekkert launungarmál að starfssemin stendur og fellur með viðskipta- vinum okkar. Að hún er háð því að fyrirtæki, stofnanir og einstak- lingar kaupi af okkur.“ En hann segir sífellt fleiri gera það, ekki síst vegna þess að þeir skilji hvaða jákvæðu áhrif það hefur. „Þeir gera sér einfaldlega grein fyrir því að meiri viðskipti skapa fleiri verkefni og störf hjá okkur. Að með því að versla við okkur eru þeir leggja sitt á vogarskál- arnar í því að fólk fái vinnu. Hver króna skiptir máli. Margir standa sig vel í því að axla þessa samfé- lagslegu ábyrgð.“ En hvers konar vörur framleið- ir Múlalundur? „Þegar stórt er spurt,“ svarar Sigurður og bros- ir. „Ja, í stuttu máli sagt seljum við allt fyrir skrifstofuna, allt frá möppum og plastvösum yfir í penna og ritföng; bæði eigin framleiðsluvörur og vörur sem við kaupum annars staðar frá. Þær eru Múlalundi mikilvægur fjárhagslegur styrkur. Almennt erum við samkeppnishæf í verð- um, stundum ódýrari en gengur og gerist, og vöruúrvalið það gott að hér eiga viðskiptavinir að finna allar almennar skrifstofuvörur.“ Verkefnin og viðskiptavinirnir eru af ýmsum toga og segir Sig- urður innflytjendur, bílaumboð og ferðaþjónustu vera að koma sterkt inn. Þannig framleiði Múla- lundur vandaðar kápur utan um prófskírteini útskriftarnema fyrir framhaldsskóla og háskóla, vörur fyrir flugfélög og hótel, svo sem upplýsingamöppur fyrir hótelher- bergi, plastkápur utan um ferða- bækur og ferðakort og líka kápur utan um matseðla svo fátt eitt sé nefnt. Auk þess taki starfsmenn að sér ýmis önnur verkefni. „Við pökkum inn, plöstum og póst- leggjum – í raun allt sem krefst mikillar handavinnu,“ segir hann. Þá skipti langtímaverkefni sköpum en í því samhengi bend- ir Sigurður á að árlega framleiði Múlalundur til dæmis sýnapoka fyrir Landspítalann ásamt því raða fylgigögnum með greiðslu- kortum Landsbankans í umbúðir. Þessum verkefnum hafi vinnu- stofan sinnt um árabil og þau séu því starfseminni mikilvæg. Hann segir Múlalund ávallt opin fyrir nýjum verkefnum. „Við erum alltaf tilbúin að taka að verkefni sem kalla á handavinnu og jafn vel hluta úr framleiðslu fyrir- tækja, bæði til lengri og skemmri tíma. Nýlega hófum við að líma íslenskar leiðbeiningar og strik- amerki á vörur fyrir Stillingu og henta slík verk okkur vel. Við erum í raun alltaf að leita nýrra leiða til að styrkja starfsemina og ég vill taka það fram að við erum mjög þakklát þeim sem versla við okkur. Þeir gera okkar fólki kleift að leggja sitt af mörkum til at- vinnulífsins.“ Nánar á www.mulalundur.is. Sigurður Viktor Úlfarsson segir tækifæri til vinnu mikilvægan enda markmiðið að koma sem flestum út á vinnumarkaðinn. Í því samhengi skiptir stuðningur viðskiptavina sköpum. „Fyrirtæki eru að versla þessa vöru hvort sem er, en með því að kaupa hana hjá okkur eru þeir að leggja mikilvægu samfélagsverkefni lið. Þetta er afskaplega einföld leið til að láta gott af sér leiða.“

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.