Morgunblaðið - 31.12.2016, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016
Höfundur HuMu Jóhannes Erlingsson ásamt börnum sín-
um, Emblu Hlökk og Nökkva Styr, sem um nokkurt skeið
voru samtímis í leikskólanum Holtakoti.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Jóhannes Erlingsson er for-eldri og forritari. Hannstarfar að vísu ekki lengursem slíkur, en sér engu að
síður ýmsar lausnir með augum for-
ritarans. Þegar börnin hans tvö,
Nökkvi Styr og Embla Hlökk, voru
í leikskólanum Holtakoti á Álftanesi
árið 2013 segist hann ævinlega hafa
gleymt að fá upplýsingar um hversu
lengi þau sváfu, hvað hann ætti að
koma með fyrir þau eða hvað væri
yfirhöfuð að gerast í leikskólanum.
„Innandyra voru upplýsingar út um
allt, en ég gleymdi bara alltaf að gá
og rankaði ekki við mér að því leyt-
inu fyrr en ég var kominn heim og
þá var oft orðið um seinan að gera
eitthvað í málunum,“ segir Jóhann-
es.
Honum þótti trúlegt að svipað
væri upp á teningnum hjá öðrum
foreldrum og fékk þá hugmynd að
búa til ódýra og þægilega lausn fyr-
ir leikskóla og foreldra til að eiga
skilvirk samskipti sín á milli. Lausn-
in fólst í appi fyrir snjallsíma og
spjaldtölvur, sem hann byrjaði á
2015 og hefur verið með í þróun í
rúmt ár í samstarfi við Holtakot og
foreldra barnanna sem þar eru.
„Leikskólinn og foreldrar
barnanna hafa verið með appið upp-
sett í símum sínum um nokkurt
skeið og látið vel af. Sem virkir not-
endur hafa þeir bent mér á kosti
þess og galla og ég hef lagað bún-
aðinn eftir ábendingum þeirra,
breytt og bætt eftir þörfum,“ segir
Jóhannes.
Markmiðið að kerfið
verði sjálfbært
Appið er nú aðgengilegt og
ókeypis bæði á Android- og iOS-
tæki og hægt að hlaða því niður af
PlayStore og AppStore.
Því fer þó fjarri að Jóhannes
hafi – eða ætli sér – að sleppa af því
hendinni. Hann er enn að fínpússa
verkið og býst við að hafa um-
sýsluna á sinni könnu til frambúðar.
Markmiðið er að kerfið verði sjálf-
bært, en hann verði á vaktinni ef
eitthvað bjáti á og grípi þá inn í.
„Mér fannst mikilvægt að upp-
lýsingarnar bærust á rauntíma, en
það er frábrugðið því fyrirkomulagi
sem við eigum að
venjast. Foreldrum
verður oft hugsað
til barna sinna í
leikskólanum. Þeir
velta kannski fyrir
sér hvað þau hafi
borðað, hvort þau
hafi fengið lúrinn
sinn og öðru sem er
mikilvægt fyrir líð-
an þeirra. Með app-
inu geta foreldrar
fengið innsýn í líf
barnanna þann tíma
sem þau eru ekki í
þeirra umsjá.“
Jóhannes starfar
sem verkefnastjóri í
farsímaþróun hjá Me-
niga, en hefur unnið að
þróun appsins á kvöld-
in og um helgar. Hann
hefur engan fjárhags-
legan ávinning af fram-
takinu, enda segir hann
leikskólana undir-
fjármagnaða og því ólíklegt að app
sem þyrfti að borga fyrir þætti væn-
legur kostur. Aftur á móti eru aug-
lýsingar birtar í viðmóti foreldranna
til að greiða fyrir hýsingu og annan
slíkan kostnað, en planið er svo að
gera þeim foreldrum sem það kjósa
kleift að losna við auglýsingarnar
gegn vægu gjaldi. „Valdar auglýs-
ingar,“ áréttar hann. Inntur nánar
hvað í því felist segir hann að aug-
lýsingar á appinu þyrftu vitaskuld
að uppfylla ákveðin skilyrði. „Aug-
lýsingar um fjárhættuspil, ofbeldis-
leiki eða þvíumlíkt myndu ekki rata
þar inn,“ nefnir hann sem dæmi.
Fréttaveita leikskólans
Jóhannesi þótti vel við hæfi að
nefna appið HuMu sem er samsuða
úr nöfnum Hugins og Munins,
hrafna Óðins í norrænni goðafræði.
Eins og margir vita fór fátt framhjá
þeim hröfnum. „Þeir voru frétta-
veitur Óðins og báru honum tíðindi
um allt sem þeir höfðu séð og heyrt
yfir daginn, líkt og HuMu gerir fyr-
ir foreldra; flytur þeim fréttir af
börnunum á meðan þau eru í leik-
skólanum.
Sem dæmi um hagræðið segir
Jóhannes að foreldrum gæti þótt
gott að fá sendar, beint í símann,
áminningar um dótadaga eða hvort
það vanti bleiur, og upplýsingar um
hvað sé í matinn í leikskólanum svo
þeir kaupi ekki það sama og þar er
boðið upp á. Einnig geti starfs-
maður sem sér um matinn sett inn
matseðil fyrir vikuna eða mánuðinn
ef því væri að skipta. „Holtakot er
heilsuleikskóli, svokallaður græn-
fána-leikskóli, og því er mikil
áhersla lögð á göngutúra, vett-
vangsrannsóknir og þvíumlíkt.
Leikskólakennararnir hafa m.a. tek-
ið myndir af börnunum í leik og
starfi og hlaðið þeim jafnóðum í far-
símann. Einnig hafa þeir sent for-
eldrum mynd af gönguleiðinni sem
farin var og upplýsingar um vega-
lengd, en þeir hafa þá kortlagt hana
með öðru appi á sínum síma. Efalít-
ið munu starfsmenn reynast mis-
duglegir að setja inn myndir, kúnst-
in er að finna jafnvægið.
Megintilgangur appsins er að for-
eldrar séu í meira sambandi við
leikskólann en ella; séu meiri þátt-
takendur í því sem þar er að gerast
og upplifi leikskólann ekki sem
nokkurs konar geymslustað fyrir
börnin.“
Engar persónugreinandi
upplýsingar
Aðspurður segir Jóhannes að
notendur hafi í hendi sér
að senda prívat skila-
boð og myndir eða deila
á allan hópinn. Leik-
skólinn og foreldrar
þurfi einfaldlega að
koma sér saman um
stillingar og aðgangs-
stýringu. Engar per-
sónugreinandi upplýs-
ingar séu vistaðar og
engar kennitölur í kerf-
inu. „Foreldrar geta ekki
séð neinar upplýsingar
um önnur börn vegna þess
að þeir eru bara tengdir
sínu eigin barni,“ útskýrir
hann.
HuMu-appið er ekki
bara í þágu foreldranna,
starfsmenn Holtakots eru
ekki síður ánægðir að sögn
Jóhannesar. „Þeim finnst hagræði í
að geta sent foreldrum skilaboð og
líka að foreldrarnir láti þá vita
gegnum appið ef börnin eru veik,
hver sæki þau og ýmislegt fleira og
vera þannig ótruflaðir af stöðugum
símhringingum.“
Á vefsíðunni humu.is eru grein-
argóðar upplýsingar um notkunar-
möguleika appsins, en annars er
einfaldlega hægt að hlaða því niður
og prófa. Enda hugsaði Jóhannes
HuMu ekki bara fyrir Holtakot.
Hann segir að hæglega megi útfæra
hugmyndina fyrir frístundaheimili,
íþróttahreyfingar og fleiri bæði hér
heima eða erlendis. Þeir Huginn og
Muninn tala nefnilega tungum
tveim, annars vegar íslensku og
hins vegar ensku og stefnir Jóhann-
es að því að bæta við fleiri tungu-
málum. „Mér til mikillar undrunar
sá ég að leikskóli í Kanada var far-
inn að nota appið aðeins þremur
tímum eftir að ég gerði það að-
gengilegt,“ segir Jóhannes, sem nú
þegar hefur fengið fjölda fyrir-
spurna frá bæði leikskólastjórum og
foreldrum.
Huginn og Muninn flytja
tíðindi af leikskólabörnum
Splunkunýtt app, HuMu, er ókeypis og þægileg lausn fyrir leikskóla og foreldra til að eiga skilvirk samskipti sín á milli. Sérstaða þess felst
m.a. í að leikskólastarfsmenn og foreldrar nota sama forritið, þeir skrá sig sem notanda og geta samtímis byrjað að nota það. Þannig segir
höfundurinn, Jóhannes Erlingsson, foreldri og forritari, að foreldrar geti fylgst með börnum sínum í leik og starfi á rauntíma.
Leikskólinn Leikskólinn getur
haldið utan um upplýsingar um
daglegt líf barnanna og deilt
þeim með foreldrum.
Fyrir leikskóla:
HuMu gerir leikskólum kleift að halda utan um upplýs-
ingar um daglegt líf barnanna og deila þeim upplýsingum
með foreldrum, án mikillar fyrirhafnar. HuMu gerir leik-
skólum m.a. kleift að:
Halda utan um viðveruskráningu barna
Skrá fjölda og lengd lúra hvers barns
Skrá hversu vel börnin borðuðu
Senda skilaboð beint í síma foreldra
Deila myndum úr daglegu amstri með foreldrum
Minna foreldra á viðburði
Gefa foreldrum aðgang að viðburðadagatali
Gefa foreldrum aðgang að matseðli
Fá skilaboð frá foreldrum, m.a. um veikindi barna
og hver sækir
Upplýsingar um mataræði, óþol og ofnæmi allra
barna.
Fyrir foreldra:
Foreldrar fá upplýsingar um hvernig dagur
barnsins gengur fyrir sig
Hafa handhægan aðgang að matseðli dagsins
Hafa handhægan aðgang að upplýsingum um við-
burði í leikskólanum
Fá sendar upplýsingar beint í símann ef barnið
vanhagar um eitthvað
Eru minnt á viðburði eða annað sem fram fer
í leikskólanum
Geta með einföldum hætti látið leikskóla
vita ef barnið er veikt eða verður sótt af ein-
hverjum öðrum en venjulega
Margþætt notagildi
HUMU
Foreldrar Foreldrar
fá upplýsingar um
hvernig dagur barns-
ins gekk fyrir sig.