Morgunblaðið - 31.12.2016, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016
NÚGETUR
ÞÚ SPARAÐ
ERLENDIS
Kynntu þér málið betur á vib.is eða
hjá VÍB ráðgjafa í síma 440 4900
VÍB er eignastýringarþjónusta Íslandsbanka
Sími 440 4900 | vib@vib.is | facebook.com/VIB.stofan | @vibstofan
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Sjötugur Renault Juvaquatre, ár-
gerð 1946, fer brátt aftur á götuna.
Eigandi hans er Sigurjóna Guðna-
dóttir í Garði. Hún vann bílinn í
happdrætti SÍBS vorið 1948, þá
þriggja ára gömul, og hefur átt hann
síðan. Bíllinn var skráður á nafn föð-
ur hennar, Guðna Ingimundarsonar,
en nú er Sigurjóna skráður eigandi.
Ásgeir M. Hjálmarsson, eigin-
maður Sigurjónu, er búinn að gera
bílinn upp og nú stendur hann glans-
andi fínn suður í Garði.
Keypti síðasta miðann
„Ég var að vinna við að rífa fimm
hermannabragga á Keflavíkur-
flugvelli og þurfti að fá leyfi á vissri
skrifstofu til að fara með efnið út af
vellinum,“ sagði Guðni, faðir Sigur-
jónu. Hann átti hertrukk með krana-
bómu og loftpressu og gerði þessi
tæki út í 50 ár. Þar sem hann beið af-
greiðslu komu þrjár stúlkur inn á
skrifstofuna. Þær voru að selja
happdrættismiða fyrir SÍBS en ver-
ið var að afla fjár til byggingar
Reykjalundar. Ein spurði Guðna
hvort hann vildi ekki kaupa miða?
„Ég keypti af henni tvo miða, ann-
an fyrir mig og hinn fyrir konuna, og
setti þá í veskið. Ég fór út að bílnum
og var að athuga hvort böndin sem
héldu draslinu væru ekki vel
strekkt. Þá kom stúlkan og sagði að
hún ætti einn miða eftir í heftinu og
spurði hvort ég vildi ekki kaupa
hann, þótt ég væri búinn að kaupa
tvo? Ég sagði henni að ég ætti svo
mikið af miðum heima. Hún svaraði
að það munaði ekkert um að bæta
einum við. Þá datt mér í hug hvort
ekki væri rétt að kaupa miða handa
Sigurjónu dóttur minni, sem þá var
þriggja ára, og keypti miðann.“
Guðni stakk miðanum í brjóstvas-
ann og hugsaði ekki meira um hann.
Dregið var í happdrættinu 15. maí
1948 og voru tíu bílar í vinning.
Greint var frá vinningsnúmerunum í
Morgunblaðinu og fleiri blöðum.
„Systir konunnar var stödd hjá
henni og þær voru að fara yfir núm-
Varð bíleigandi þriggja ára
Sigurjóna Guðnadóttir í Garðinum vann Renault-bíl, árgerð 1946, í happdrætti vorið 1948 Bíll-
inn var gerður upp árið sem hann varð 70 ára Renaultinn hefur aldrei glansað jafn mikið og nú
Morgunblaðið/RAX
Feðginin Sigurjóna Guðnadóttir og Guðni Ingimundarson voru ánægð að geta aftur sest inn í 70 ára gamla Renault-bílinn sem Sigurjóna vann í happdrætti 1948.
Renault Juvaquatre Verksmiðjurnar sendu 195 bíla til landsins á einu bretti en umboðið mátti flytja inn fjóra bíla.