Morgunblaðið - 31.12.2016, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016
K RANSÆÐA -
BÓK IN
Ritstjórar: Guðmundur Þo
rgeirsson & Tómas Guðb
jartsson
Guðmundur Þorgeirsson
og Tómas Guðbjartsson,
ritstjórar og útgefendur
Kransæðabókarinnar.
FRÆÐSLURIT
UM KRANSÆÐA-
SJÚKDÓM
Við þökkum frábærar viðtökur við Kransæða-
bókinni sem nú er uppseld hjá útgefendum.
Ný prentun er væntanleg í lok janúar.
UPPSELD!
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Á landsvísu er árið 2016 eitt þriggja
hlýjustu ára frá upphafi mælinga
hér á landi, samkvæmt útreikning-
um Trausta Jónssonar veðurfræð-
ings. Meðalhiti í byggð reiknast 5,0
stig, en reiknaðist 5,1 stig árin 2014
og 2003, en munurinn er ómark-
tækur. Tíðarfar ársins var lengst af
hagstætt.
Meðalhiti í Reykjavík í ár er 6,0
stig og hefur aldrei verið marktækt
hærri, reiknaðist þó 6,1 stig 2003,
hækkað úr 6,06 stigum. Á Akureyri
er meðalhitinn um 4,9 stig og hefur
aðeins þrisvar verið hærri, síðast
2014. Í Stykkishólmi er villumeð-
ferð ekki lokið, en hugsanlegt er að
árið verði þar það hlýjasta frá upp-
hafi mælinga, 1846, segir á vef Veð-
urstofunnar.
Aðeins hálf sólskinsstund
29 fyrstu dagana í desember
Fyrstu 29 daga desembermán-
aðar mældist aðeins hálf sólskins-
stund í Reykjavík. Sól er ekki hátt
á lofti á þessum árstíma, en þetta
er með því minnsta sem mælst hef-
ur.
Fyrstu tveir mánuðir ársins voru
heldur kaldari en venjulegast hefur
verið á undanförnum árum og því
var lengi vel talið ólíklegt að árið í
heild yrði jafnhlýtt og raun ber
vitni. Með marsmánuði hlýnaði og
síðustu mánuðir ársins voru sér-
staklega hlýir, ekki síst þó metmán-
uðurinn október.
Um landið sunnanvert var úr-
koma lengst af undir meðallagi
fyrstu átta mánuði ársins, en síð-
ustu mánuðirnir urðu aftur á móti
mjög úrkomusamir, sérstaklega þó
október. Úrkoma í Reykjavík varð
um 15% ofan meðallags ársins í
heild. Á Akureyri var ársúrkoma
um fjórðungi ofan meðallags.
Vindhraði var neðan meðallags í
flestum mánuðum og illviðri færri
en algengast er.
Trausti fjallar á bloggsíðu sinni,
hungurdiskum, um meðalhita og
birtir graf sem sýnir meðalhitaröð
aftur til 1874. Hann segir að hún sé
töluverðri óvissu undirorpin fyrstu
50 árin, en batni síðan smám sam-
an.
Ekki sé sérstök ástæða til að
efast um hlýindin fyrir um 80 árum,
en þá hafi hæsta 10 ára meðaltalið
farið í 4,1 stig – fyrst 1928 til 1937,
en sé nú 4,4 stig. Munurinn tæplega
marktækur – en samt.
„Sé litið á tímabilið allt virðist hiti
hafa hækkað um ríflega 1,1 stig á
öld – en eins og venjulega hafa
leitnireikningar ekkert gildi sem
spár. Varla er ástæða til að búast
við öðru en að við munum halda
áfram að sjá stórar ára- og ára-
tugasveiflur áfram – sem fyrr.
Staðbundinn breytileiki
og hnattræn hlýnun
Eins og oft hefur verið fjallað um
hér á hungurdiskum áður virðist
staðbundinn breytileiki í hringrás
lofts við Norður-Atlantshaf (vind-
áttir og þrýstimynstur) ráða ríflega
helmingi breytileikans frá ári til
árs – áratugasveiflur eru óskýrðar
að mestu (þó ekki alveg) – en al-
menn hnattræn hlýnun getur skýrt
heildarleitnina – að öllu eða að ein-
hverju leyti. Við vitum hins vegar
ekki hvar á kvarðanum við liggjum
nú – hvert er vægi hagstæðrar ára-
tugasveiflu og hvert er vægi hnatt-
rænnar hlýnunar í þeim hlýindum
sem við höfum búið við að und-
anförnu.
Sveiflan mikla milli áranna 2014,
2015 og nú 2016 er að miklu leyti
skýranleg af vindáttum og loft-
þrýstimynstri,“ skrifar Trausti, en
setur þó fyrirvara með árið 2016
þar sem útreikningum sé ekki lok-
ið.
Eitt þriggja hlýjustu
ára frá upphafi mælinga
Meðalhiti í Reykjavík aldrei marktækt hærri Færri ill-
viðri en algengast er Mikil úrkoma síðustu mánuði ársins
Trausti Jónsson Vænta má stórra
ára- og áratugasveiflna áfram.
Landsmeðalhiti í byggð 1874 til 2016
1880 2016
6
5
4
3
2
1
0
Hitastig er skráð í gráðum á Celcius Heimild: Trausti Jónsson
leitni: 1,1°C/öld
einstök ár
10-ára keðja
1933
1979
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
Síðari hluti desember hefur verið
stormasamur en alla jafna var hita-
stig mánaðarins yfir meðallagi í takt
við árið í heild sinni. Upphaf nýs árs
verður með mild-
ara móti þrátt fyr-
ir sveiflur í hita-
stigi.
„Það verður
hækkandi loft-
þrýstingur suður
og suðvestur af
landinu og há-
þrýstivæði af
mildum uppruna.
Það gerir það að
verkum að hlé
verður á lægðum í bili og lát á þessum
skakviðrum. Á morgun (í dag) verður
hægviðri annars staðar en á Norð-
austurlandi þar sem verður strekk-
ingsvindur með éljum og skafrenn-
ingi. Strax á nýársdag er kominn
vestanstrekkingur og þá hlánar aftur
á láglendi,“ sagði Einar Sveinbjörns-
son veðurfræðingur í samtali við
Morgunblaðið. Annan janúar má bú-
ast við rigningu frá sömu hæð og 4-5
stiga hita. Þann þriðja kólnar síðan
vegna norðanáttar en hlýnar á nýjan
leik fjórða janúar.
Kalt loft frá Kanada
Fyrstu daga ársins er því ekki
von á illviðri eins og geisað hefur yfir
hátíðirnar en Ísland slapp ágætlega í
samanburði við nágrannalönd sem
urðu fyrir talsverðu tjóni vegna
veðurfarsins.
„Það er varla hægt að segja að
það hafi verið óvenjulegt, flesta vetur
fáum við einn og stundum fleiri kafla
þar sem hver djúpa lægðin rekur
aðra í grennd við okkur. Stundum í
janúar og jafnvel í mars eins og árið
2015. Á þessum köflum skapast hent-
ug skilyrði fyrir myndun lægða þegar
kalt loft ættað frá Kanada nær út á
sjó og kemur í veg fyrir hlýrra Atl-
antshafsloftið. Þá verða til þessar
lægðir sem breiða úr sér, eigna sér
Norður-Atlantshafið og valda storm-
um. Við sluppum þó vel miðað hve
djúpar og skeinuhættar lægðirnar
voru í Færeyjum, Skotlandi og Nor-
egi,“ sagði Einar.
Fádæma hlýtt framan af
Framan af desembermánuði
stefndi í methita þegar hlýir sunnan-
vindar voru allsráðandi en snörp um-
skipti á síðari hlutanum gerðu út um
allar vonir.
„Hann er talsvert hlýr en setur
engin met. Í Reykjavík stefnir í að
meðalhitinn verði 3,8 til 3,9 gráður
sem er rúmlega þremur og hálfri
gráðu yfir meðallagi. Það var fádæma
hlýtt fram yfir tuttugasta og stefndi
lengi vel í að þetta yrði hlýjasti desem-
bermánuðurinn en síðan kólnaði, við
fengum samfelldan illviðrakafla og þá
er meðalhitinn fljótur að falla. Þegar
búið er að mæla svona lengi þarf að
vera afbrigðileg tíð til að setja met.“
Spáð í veðurfarið á næstu dögum
Nýtt ár byrjar betur en því gamla lauk
Einar
Sveinbjörnsson
Morgunblaðið/Eggert
Stormur Yfir hátíðirnar hafa sumir átt erfitt með að komast leiðar sinnar.