Morgunblaðið - 31.12.2016, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Jólahald Kúbverja var með talsvert
öðrum og lágstemmdari blæ nú en
mörg undanfarin ár. Bylting-
arleiðtoginn Fidel Castro lést 25.
nóvember og fyrstu níu dagana þar
á eftir ríkti fyrirskipuð þjóðarsorg í
landinu.
Umferðin á götunum varð hægari,
opinberum samkomustöðum var lok-
að, hljóðfæraleikararnir á götum
höfuðborgarinnar Havana héldu sig
til hlés og á öldum ljósvakans á
Kúbu, á sjónvarpsstöðvum ríkisins,
var dagskráin helguð lífi og sögu
Castro, sem ríkti sem valdamesti
maður Kúbverja í áratugi. Þjóðlífið
hefur raunar enn ekki náð sama
krafti og var fyrir fráfall Castro,
sem segir sitt um arfleiðina.
Tefla, spila og dansa salsa
„Að vera á Kúbu dagana í kring-
um fráfall Castro var ansi merkileg
reynsla. Þarna fann ég og sá nánast
svart á hvítu þau sterku ítök sem
þessi forystumaður hafði í þjóðlífinu.
Hann naut virðingar enda komust
mörg góð mál til framkvæmda á
langri stjórnartíð. Á flestan hátt er
þjóðfélagsgerðin á Kúbu vel heppn-
uð, segir Björn Halldórsson. Hann
er 32 ára og hefur frá árinu 2013
dvalist mikið í þessu eyríki Karab-
íska hafsins, þar sem Castro komst
til valda í byltingu árið 1959. Hann
hélt völdum til ársins 2006 en sté þá
til hliðar vegna veikinda og eftirlét
Raul bróður sínum forystu-
hlutverkið, sem hann heldur enn.
„Ég kom þarna fyrst til þess að
kynnast hinu margrómaða rommi,
eðaldrykk Kúbverja. Svo vaknaði
áhugi hjá mér á fleiru í landinu. Á
Kúbu eru sterkar hefðir og fólkið
skemmtilegt. Þarna kunna allir á
hljóðfæri, að tefla, spila dómínó og
dansa salsa. Í fyrstu heimsóknum
mínum til Kúbu nálgaðist ég menn-
inguna, staðina og fólkið eins og túr-
isti.
Eftir því sem ég kynntist að-
stæðum og innfæddum betur breytt-
ist þetta; mér þótti samfélagið þarna
einkar áhugavert. Í Havana eru lög-
reglumenn víða á götum úti og mað-
ur skynjar sig strax öryggan,“ segir
Björn sem telur þetta hluta af þeirri
sterku félagslegu velferð sem til
staðar sé á Kúbu. Í landinu er öllum
tryggð lágmarksframfærsla, heil-
brigðisþjónusta, grunnmenntun og
annað slíkt í krafti hinnar sósíalísku
stefnu sem fylgt hefur verið í land-
inu nú í 57 ár. Þessir stjórnarhættir
viðrast ekki á undanhaldi.
Víða er Wi-Fi
Á sinn hátt er táknrænt fyrir
hægfara breytingar á Kúbu að flest-
ir þar eru nú komnir með farsíma og
Wi-Fi staðir víða um borgina. Þar
hópast fólk hópast saman og fer á
netið, mest til að tala við ættingja er-
lendis og skoða samfélagsmiðla. Í
Havana eru veitingastaðir og smá-
verslanir nú gjarnan í fjölskyldu-
rekstri en fram á allra síðustu ár var
ríkið allsráðandi á þessum markaði.
„Samkeppnin hófst 2011 með
stefnubreytingu Raul Castro. Það
hefur hefur skilað að því að veitinga-
húsin og matseðilinn þeirra verður
betri með hverri ferð minni til Kúbu.
Mér finnst samt sennilegt að breyt-
ingar á Kúbu verði hægar. Kúbverj-
ar sjá að hlutirnir eru að breytast,
en það tekur tíma. Þetta er mjög
nægjusamt fólk sem veit að grasið er
ekki endilega grænna í öðru landi og
landið er á réttri leið.“
Heilbrigðisþjónustan er örugg
Björn Halldórsson og Yasney,
kúbversk unnusta hans, eignuðust
dóttur 15. september. Björn dvalist
því á Kúbu í allt haust og var með
þeim mæðgum í þriggja mánaða for-
eldraorlofi. Eftirlit á meðgöngu var
mjög mikið. Til dæmis fór móðirin
þrisvar sinnum í alnæmipróf, sam-
kvæmt hefðum þar í landinu, og að-
búnaður á fæðingardeild var allur
hinn besti.
„Ég fann það ef til vill best þegar
dóttir mín fæddist hve vel er búið að
fólkinu. Heilbrigðisþjónustan er
örugg, hlutfall ungbarnadauða með
því lægsta sem þekkist og enginn
þarf að líða skort. Í því efni má nefna
Kúbverjar eru nægjusamir og
Heillaðist af fjarlægu ríki Kúba í Karíbahafinu er land romms og vindla Sósíalísk
stefna hefur ríkt í 57 ár en samfélagið er nú að breytast Sumir sakna Fidels Castro
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Tónlist Havana er skemmtileg borg og víða á fjölförnum stöðum eru hljóð-
færaleikarar sem galdra fram skemmtilega tónlist sem hrífur alla.
Líflegt Dæmigerð sjón á Kúbu
þar sem tónlistarmenn eru á
götuhornum og spila fyrir
gangandi vegfarendur. All-
staðar er lifandi tónlist.
Sýn Fráneygður horfir til framtíðar undir fallbyssukjaftinum.
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum farsældar
á nýju ári. Þökkum viðskiptin
á liðnum árum.
Starfsfólk Eignamiðlunar
S í ð u m ú l a 2 1 · S . 5 8 8 9 0 9 0 · w w w . e i g n a m i d l u n . i s
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
farsældar á nýju ári
Bæjarlind 4 , 201 Kópavogur, 512 3600, tingholt.is