Morgunblaðið - 31.12.2016, Qupperneq 43
19.2. | Ólafur B. Schram
Hingað og ekki lengra
Fyrir þessa upplifun borgar
fólk, hvort sem er í skipu-
lögðum ferðum eða á eigin
vegum. Nú erum við að tapa
þessum perlum og þessum
möguleikum vegna nokkurra fífla sem
kunna ekki að meðhöndla þetta frelsi.
22.2. | Þór Ingi Daníelsson
Fatlaðir starfsmenn Ásgarðs
undirbúa stofnun norræns
handverksskóla í Svíþjóð
Það eru stórhuga menn sem
hafa byggt VÖLU handverks-
skóla og vilja bæta heiminn
og láta drauma sína rætast í
leiðinni.
24.2. | Ásta S. Helgadóttir
Frá umsókn til samnings á
nokkrum mánuðum
Málsmeðferðartími nýrri
mála er í engu samræmi við
það sem þekktist á upphafs-
árum embættisins.
25.2. | Árni Tómas Ragnarsson
Sjálfstæðir sérfræðilæknar
Það skýtur því skökku við að
Sjúkratryggingar hafa nú tek-
ið fyrir það að nýir sér-
fræðilæknar fái að hefja störf
á þessum vettvangi og að
landlæknir skuli vega að starfsemi sjálf-
stætt starfandi sérfræðilækna.
26.2. | Marinó Muggur Þorbjarnarson
Ferðamenn niðurgreiða og efla
menntun íslenskra barna
Ég spyr, ætlum við að bölva
því að fullt sé af ferðamönn-
um á kaffihúsum borgarinnar
eða ætla íslenskar náms-
stofnanir að nýta þau öflugu
verkfæri sem þeim nú bjóðast til að efla
komandi kynslóðir?
29.2. | Sigurður Áss Grétarsson
Á að fresta smíði
ferju og hvað svo?
Er ekki skynsamlegra að
smíða ferju og ljúka verkefn-
inu eins og lagt var af stað
með það? Ferju sem hentar
Landeyjahöfn betur en nú-
verandi ferja.
1.3. | Þórunn Sveinbjörnsdóttir
Aldrei meiri hækkun
til eldri borgara?
Uppbygging samfélagsins á
síðustu öld er svipuð og
margar þjóðir hafa farið í
gegnum á tveim öldum. Lær-
um af þessu og sýnum eldri borgurum
þessa lands virðingu í samræmi við hvað
þeir hafa gert fyrir land og þjóð.
2.3. | Guðmundur Guðbjarnason
Misbeiting valds
Er hægt að líta fram hjá þeirri
staðreynd að yfirheyrslur og
vitnaleiðslur á rannsókn-
arstigi voru byggðar á spurn-
ingum er vörðuðu ólöglegar hleranir?
3.3. | Þorbjörn Guðjónsson
Þar sem óskhyggjan
ríður röftum
Hærra hlutfall landsfram-
leiðslu (11%) í heilbrigðismál
leiðir til aukinnar skatt-
heimtu/niðurskurðar nema
til komi hagvöxtur og það er
ekki hræðsluáróður.
4.3. | Björgvin Ingi Ólafsson
Markaðsstarf snýst um við-
skiptavininn, ekki auglýsingar
Stafræn tilvera, með tilheyr-
andi gagnagnótt, hefur
breytt stjórnun og þar er
markaðsstarfið í miðri hring-
iðunni.
5.3. | Bergþór Ólason
Hverjir gerðu baktjalda-
samkomulagið?
Hvers vegna fékk almenn-
ingur ekkert að vita? Hvers
vegna sögðu forystumenn
Samfylkingar og VG ekki frá
því að slíkt samkomulag
hefði verið gert? Jóhanna, Össur, Árni Páll,
Steingrímur J. og Katrín Jakobsdóttir.
7.3. | Pétur Magnússon og
Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir
Samfélagið standi vörð um
hagsmuni aldraðra sem þurfa á
þjónustu að halda
Á sama tíma og
þess er vænst að
aldraðir láti lítið fyr-
ir sér fara er einnig
ætlast til að þeir
standi við skyldur sínar gagnvart samfélaginu.
8.3. | Skafti Harðarson
Hagsmunagæzla ársins
Eins og áður segir er það mat
þessara hagsmunasamtaka
að frelsi í viðskiptum skuli
ávallt í heiðri haft enda segir í
umsögn þeirra að félagið
styðji markaðs- og versl-
unarfrelsi á öllum mörkuðum, líka áfeng-
ismörkuðum.
10.3. | Bragi Jósepsson
Um listamanna-
laun og stéttarfélag
rithöfunda
Ég tel að setja eigi þak á
fjölda ára sem sami rithöfundur fær lista-
mannalaun, t.d. miðað við fjögur ár og
takmarka eigi greiðslur til listamanna við
sex mánuði í senn.
12.3. | Steinar Berg Ísleifsson
Eru alþingismenn
leiðitamar heybrækur?
Stóðum að lokum með tár í
augum og sting í hjarta
frammi fyrir napurleika
stjórnsýslunnar og rétt-
arkerfisins ásamt fimm millj-
óna króna málskostnaði.
14.3. | Ingibjörg Jóhannsdóttir
Sköpunarkrafturinn drepinn?
Við þurfum að hampa því
sem vel er gert, örva og
þakka því frábæra fólki sem
á hverjum degi gengur til
vinnu sinnar í skólum lands-
ins fyrir vel unnin störf.
15.3. | Sveinn Guðjónsson
Grái herinn blæs til sóknar
„Tryggjum öldruðum
áhyggjulaust ævikvöld á ekki
að vera innantómt slagorð
heldur íslenskur veruleiki í
framtíðinni.
16.3. | Einar Sigurbjörnsson
Hættum að karpa -
Byggjum
Hættum aðkarpa um stað-
setninguen hefjumst handa
umað reisa nýjan spítalaþar
sem helstu sérfræðingum
hefur sýnst vænlegast að
byggja hann.
17.3. | Sindri Sigurgeirsson
Öflugur landbúnaður
er allra hagur
Samkvæmt skýrslum OECD
hefur opinber stuðningur við
landbúnað á Íslandi lækkað
úr 5% af landsframleiðslu á
tímabilinu 1986-88 niður í
1,1% á tímabilinu 2012-14.
18.3. | Helgi Hjörvar
Þegar skorið var undan Alþingi
Forsætisráðherra reynir nú
að láta landsmenn ræða hvar
Landspítalahúsið eigi að
vera, svo þeir hætti að ræða
lélegan aðbúnað á spít-
alanum, biðlista eftir heil-
brigðisþjónustu, fjárskort og óhóflegan
kostnað sjúklinga.
19.3. | Páll Magnússon
Til hamingju með 100 ára
afmælið! Eða hvað?
Í heila öld hefur þessi hreyf-
ing ekki verið í hraklegra
ástandi en einmitt nú. Búin
að týna sjálfri sér og reikar
um án erindis eða áfangastaðar; huglaus,
duglaus, hugmyndalaus, hugsjónalaus og
hauslaus.
22.3. | Hjalti Jón Sveinsson
Framhaldsskóli í
rekstrarvanda hver á sökina?
Útreikningar okkar og grein-
argerðir til ráðuneytis, sem
fylgt hafa fjárhagsáætlun,
hafa ekki fengið umfjöllun og
engin svör um úrbætur hafa
verið gefin heldur þvert á móti spurt hvað
skólinn hyggist gera í málinu.
23.3. | Jónína Benediktsdóttir
Nokkur orð um manninn minn
Embætti Sérstaks saksókn-
ara hefur nóg annað að gera
en að rannsaka fjöl-
skylduerjur, afbrýðisemi og
valdasýki.
24.3. | Guðrún Hafsteinsdóttir
Kraftur og bjartsýni
í íslenskum iðnaði
Fyrir fámenna þjóð sem er að
eldast hratt er nauðsynlegt
að fá liðsauka til að hjól at-
vinnulífsins geti snúist eins
hratt og vænst er.
26.3. | Halldór Torfason
Gæði malbiks á
höfuðborgarsvæðinu
Meginástæða fyrir slæmu
ástandi gatnakerfisins um
þessar mundir eru allt of lág-
ar fjárveitingar til viðhalds
slitlaga í fjöldamörg ár.
30.3. | Axel Kristjánsson
Hryðjuverk friðþæging
Ég vil ekki, að íslensk þjóð
glati sjálfstæðri tilveru sinni í
mannhafi því, sem nú býr á
jörðinni og telur yfir 6 millj-
arða.
31.3. | Árni Árnason
Sérfræðingur í að
sá fræjum óvildar
Með gamalli dæmisögu af
byggingarferli Alþingishúss-
ins reynir Helgi af lævísi
nöðrunnar að koma inn þeirri
hugsun að forsætisráðherra
eigi hagsmuna að gæta varðandi staðarval
Landspítala.
1.4. | Kristinn Andersen
Dagur verkfræðinnar
Á vordögum huga vænt-
anlegir ný- stúdentar fram-
haldsskólanna að frekara
námi á háskólastigi og þar
eru verkfræðigreinarnar
áhugaverður kostur fyrir jafnt ungar konur
sem karla.
2.4. | Snorri Baldursson
Niðurstaða rammaáætlunar
styður við þjóðgarð
á miðhálendinu
Góðu tíðindin eru að tillaga
verkefnisstjórnar staðfestir í
raun eindregið mat þessara
samtaka að miðhálendið sé
mun verðmætara villt en
virkjað.
4.4. | Stefán Svavarsson
Rekstur tryggingafélaga
Miklu varðar að skýrar og
trúverðugar upplýsingar liggi
fyrir um starfsemi trygginga-
félaga, eins þýðingarmikill
hluti og þær eru í innviðakerfi
þjóðarinnar í fjármálum.
5.4. | Eyþór Heiðberg
Grímsstaðir á Fjöllum
Eru það menn sem hugsa
ekkert um þjóðerni og er ekki
annt um nokkurn skapaðan
hlut nema peninga, sem ráða
ferðinni í okkar landi?
6.4. | Jón V. Jónmundsson
Áskorun til alþingismanna
Bændur verða að bera af sér
slyðruorðið. Þeir þurfa nýja
forystu. Þeir eiga ungt og öfl-
ugt fólk til þeirra starfa, sem
fullfært er um að móta fram-
tíðarsýn íslensks landbúnaðar. Gerið
þetta, bændur!
7.4. | Jón Steinar Gunnlaugsson
Aðför
Fréttamennirnir sem stóðu
fyrir þessari uppsetningu
leggja gjarnan áherslu á að
menn segi satt. Hvað um þá
sjálfa?
12.4. | Jón Hjaltason
Eru vinstrimenn þjóðin?
Hver gefur þessu orðljóta
frekjugengi rétt til að helga sér
þjóðina? Að mínu mati hefir
ríkisstjórnin verið álíka farsæl
og sú síðasta var ólánsöm.
13.4. | Kristján Hall
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Ég býst ekki við því að nokk-
ur maður vilji færa til baka,
það sem af störfum Sig-
mundar Davíðs hefur áunn-
ist, eða greiða til baka.
14.4. | Sigríður Anna Þórðardóttir
Enn um umhverfisráðuneytið
Íslendingar geta verið stoltir
af því að umhverfismálin eiga
nú heima á einum stað í
stjórnsýslunni þó vissulega
megi taka undir það sjón-
armið Hjörleifs Guttormssonar og Elínar
Pálmadóttur á sínum tíma, að sú skipan
hefði mátt komast á miklu fyrr en raun ber
vitni.
15.4. | Katrín Olga Jóhannesdóttir
Allir eiga að borga sína skatta
Þrátt fyrir að gagnastuldur
sé lögbrot og full ástæða til
að fordæma sem slíkt rétt
eins og önnur afbrot hefur
hann dregið ýmis álitaefni
fram í dagsljósið sem vert er að ræða.
16.4. | Sigríður Ólafsdóttir
Ágætu Íslendingar
Það hefur oft verið rætt um banana-
lýðveldi undanfarið. Banana-
lýðveldi myndi fyrst verða til í
mínum huga ef mótmæli hluta
þjóðarinnar yrðu til þess að
lýðræði allra færi forgörðum.
19.4. | Þórður Sverrisson
Að forherðast í vitleysunni!
Nauðsynlegt er að Lífeyr-
issjóður verzlunarmanna til-
einki sér nú vandaðri stjórn-
arhætti ásamt opinni og
gagnsærri stjórnsýslu eins
og eðlileg krafa er um hjá þessari hálf-
opinberu stofnun.
43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016
Morgunblaðið/Golli
Nýir ráðherrar Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson kynntu nýja ráðherraskipan á tröppum viðbyggingar Alþingis í vor.