Morgunblaðið - 31.12.2016, Side 45
30.6. | Magnús Rannver Rafnsson
Landsnet: Hver segir ósatt?
Við þurfum svör
Hvað ætli þátttakendum í
hinni alþjóðlegu arkitekta-
samkeppni Landsnets finnist
um að dómnefndarformaður
og ráðgjafi hafi sjálfir hreppt
hnossið?
45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016
2.7. | Ísólfur Gylfi Pálmason
Skógasafn – lifandi
menningarstarfsemi
Skógasafnið er dæmi um sjálf-
bæra menningarstarfsemi
sem hvílir á traustum grunni
og fær það til sín vaxandi
fjölda gest á hverju ári.
4.7. | Sigmundur Guðbjarnason
Nýsköpunarhugmyndir fyrir
sumarið
Ýmis úrgangsefni falla til á
landinu, t.d. við fiskvinnslu,
sem hægt er að nýta í áhuga-
verðar vörur. Mörg dæmi eru
um að slíkt hafi tekist með
góðum árangri.
5.7. | Melkorka Mjöll Kristinsdóttir
Í tilefni nýrra
laga um útlendinga
„Alþjóðleg vernd snýst um ör-
yggi fyrir fólk sem er að flýja
ofsóknir eða sætir á annan
hátt vanvirðandi meðferð.“
7.7. | Helga Árnadóttir
Það er 5 milljarða
króna hola í veginum
Fyrir ferðaþjónustuna er
vegakerfið grundvöllur þess
að dreifa ferðamönnum um
landið svo allir landshlutar
njóti góðs af fjölgun þeirra.
9.7. | Jón Steinar Gunnlaugsson
Bara á Íslandi
Það hefur meðal annars vakið
athygli að margir menn fagna
þessum dómum. Þeir eiga
ekkert betra skilið. Á bak við
slíkar athugasemdir er greini-
leg fáviska um þau skilyrði sem nauðsyn-
legt er að uppfylla til þess að unnt sé að
sakfella menn fyrir refsiverða háttsemi og
dæma þá til fangelsisvistar.
11.7. | Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Ungt fólk vill raunverulegt val
Með afskiptum sínum kemur
hið opinbera í veg fyrir að ein-
staklingar hafi nokkurt valfrelsi
í húsnæðismálum. Þannig er
grafið undan möguleikum okk-
ar á að verða fjárhagslega sjálfstæð.
12.7. | Birgir Loftsson
Varnir Íslands enn
í höndum Bandaríkjamanna
Þetta segir að Íslendingar
hafa ekkert að segja um varn-
ir landsins á ófriðartímum, við
verðum að treysta á að
Bandaríkjamenn beri hag
landsins fyrir brjósti sér.
14.7. | Ögmundur Jónasson
Þörf á yfirvegaðri
umræðu um flóttafólk
Spurningin stendur: Ætlum
við að veita öllum hælisleit-
endum sem hingað koma
landvist, óháð því hvort þeir
njóta réttar til alþjóðlegrar
verndar eða ekki?
16.7. | Óðinn Sigþórsson
Afurð málamiðlunar
Þessi afurð málamiðlunar til
stjórnskipunarlaga, svo gölluð
sem hún er, getur varla orðið
óbreytt að stjórnlögum, enda
er þá hvor tveggja misþyrmt,
stjórnarskránni og íslensku máli.
19.7. | Sigríður Ásthildur Andersen
og Haraldur Benediktsson
Endurheimt votlendis
Hér er tækifæri
fyrir bændur og
landeigendur því
einstaklingar og
fyrirtæki vilja í
auknum mæli geta kynnt starfsemi sína
sem kolefnishlutlausa.
21.7. | Guðríður Arnardóttir
Ekki er allt sem sýnist
Launahækkanir framhalds-
skólakennara á síðustu miss-
erum þarf að skoða í sam-
hengi við launasetningu
samanburðarhópa og lengra
aftur en til ársins 2006.
22.7. | Hólmgeir Karlsson
Landbúnaðurinn og matvæla-
framleiðslan hagsmunir neytenda
Hlaupum ekki nú eftir skamm-
tímahagsmunum þeirra sem
ætla bara að græða á því að
veikja stöðu matvælavinnsl-
unnar og landbúnaðarins.
23.7. | Árni Þormóðsson
Verður Ríkisútvarpið
eyðilagt?
Greiðendur útvarpsgjalds
hljóta að eiga rétt á að njóta
auglýsinga í dagskrá sinna
miðla. Stöð 2 selur dagskrá
sína í áskrift og þar eru aug-
lýsingar hluti af dagskránni.
25.7. | Elín Hirst
Aðgerðir strax á sumarþingi
Ég tek undir með Guðna og
þakka honum kærlega fyrir
þessa þörfu brýningu til Al-
þingis um að láta ekki sparka
þjóðarflugvellinum burt úr
höfuðborginni.
25.7. | Sveinn Rúnar Hauksson
Óhugnanleg stefna
Ísraelsstjórnar
Nauðga má konum á stríðs-
tímum, segir nýr yfirrabbíi
Ísraelshers, Eyal Karim. Þetta
er haft til marks um óhugnað-
inn sem einkennir stefnu Net-
anyahu.
27.7. | Jens Garðar Helgason
Ríkislausn skilgreind
sem markaðslausn
Ég held að þegar almenningur
skilur hismið frá kjarnanum í
umræðunni um sjávarútveg á
Íslandi þá muni fólk ekki vilja
hverfa til fyrri tíma.
28.7. | Erla Bergmann
Nú er mælirinn fullur
Nú er mælirinn fullur. Ég
skora á eldri borgara þessa
lands að taka nú á honum
stóra sínum og refsa þeim
stjórnmálamönnum sem nú
eru við völd og á þingi og hafa hundsað
okkur. Nú kjósum við nýja flokka á þing því
þeir geta ekki orðið verri.
29.7. | Óskar Þór Karlsson
Forvalið í Leifsstöð
Síðan eru það svo hinir, sem
þola illa að heyra gagnrýni og
nota oft þau tækifæri sem
gefast til þess að klekkja á
gagnrýnandanum, jafnvel án
þess að sjá það sjálfir né viðurkenna.
2.8. | Ólína Þorvarðardóttir
Vandi hugarfarsins
stjórnarstefnan
Velferðar- og menntakerfi líða
fyrir skeytingarleysi stjórn-
valda, auðmannadekur og
einkavinavæðingu. Vandinn
liggur í hugarfarinu stjórn-
arstefnunni.
3.8. | Helgi Seljan
Ekki skyldi
skaðvaldinum gleymt
Góðu fregnirnar eru hins veg-
ar þær sem gleðja aldinn
huga, að færri unglingar
koma til SÁÁ með vandamál
af völdum áfengisneyzlu nú
en áður, blessunarlega vegna þrotlausrar
forvarnarvinnu svo margra sem hefur borið
þennan árangur.
4.8. | Árni Johnsen
Þoli ekki að sjá tækifæri Suður-
kjördæmis fara forgörðum
En hvað hefur þetta blessað
fólk gert síðastliðin þrjú ár í
skjóli ríkisstjórnarmeirihluta?
Ekki neitt, hreinlega ekki neitt
sem hefur komið Suður-
kjördæmi til góða.
5.8. | Bjarni Jónsson
Að sækja vatnið yfir bæjarlækinn
Gott aðgengi að heilbrigð-
isþjónustu er ein helsta for-
senda fyrir áframhaldandi
sterkri byggð um landið allt.
8.8. | Eyjólfur Eysteinsson
Mesta þörfin fyrir hjúkrunar-
heimili er á Suðurnesjum
Halda á íbúafund á Suð-
urnesjum í september til þess
að fylgja eftir kröfunni um
nauðsyn þess að fjölga hjúkr-
unarrýmum með byggingu
hjúkrunarheimilis.
9.8. | Sigurbjörn Sveinsson
Einfalt heilbrigðiskerfi
eða tvöfalt?
Ráðstafanir stjórnvalda í þá
átt að ná fram hagræðingu
og mæta sparnaðar-
sjónarmiðum með takmarkaðri og ófull-
nægjandi heilbrigðisþjónustu er stærsti ein-
staki áhrifavaldurinn til að þróa
heilbrigðiskerfið í átt til tvöföldunar.
10.8. | Helgi Áss Grétarsson
Horfir uppboð á af
laheimildum til þjóðarheilla?
Þótt sumir vilji umbylta íslenska
fiskveiðistjórnkerfinu þá hygg ég
að leitin að farsælum umbótum
á því kerfi sé ekki að finna í
smiðju Færeyinga.
11.8. | Þórir N. Kjartansson
Vegamál í Mýrdal
Allt frá því að Mýrdalshreppur
varð til árið 1984 með samein-
ingu Hvamms- og Dyrhóla-
hrepps, hefur framsýnt fólk
unnið að því að fá láglendisveg
um Mýrdalinn með göngum í gegnum Reyn-
isfjall.
13.8. | Ragnheiður Elín Árnadóttir
Suðurkjördæmi stendur sterkt
Þessi mikli árangur í atvinnu-
uppbyggingu er grundvöllurinn
fyrir þeirri nauðsynlegu upp-
byggingu innviða samfélagsins
sem ráðast þarf í á komandi ár-
um og þeirri velferð sem að við viljum
tryggja í samfélagi okkar til framtíðar þar
sem allir, jafnt ungir sem aldnir, fá notið
bestu lífskjara.
16.8. | Ólafur Helgi Marteinsson
Færeyska leiðin? Nei, takk!
Ýmsir þeir sem mæla fyrir því
að bjóða upp aflaheimildir á Ís-
landi hafa áður boðað færeyska
leið í fiskveiði(ó)stjórn á Íslandi.
17.8. | Ragnhildur Elín Lárusdóttir
og Vigdís Sigurvaldadóttir
Nýjar reglur - Skattayfirvöld
fá upplýsingar um eignir
Íslendinga erlendis
Það er ljóst að
þessar reglur
munu veita ís-
lenskum skatta-
yfirvöldum víð-
tæka yfirsýn yfir eignir íslenskra aðila
erlendis en sífellt fleiri ríki bætast í hóp
þeirra sem hafa innleitt reglurnar.
18.8. | Sveinbjörn Dúason
Sjúkraflug, Landspítali og
mikilvægi Reykjavíkurflugvallar
Ekki er að sjá að hags-
munaaðilar sem hafa með málið
að gera séu að vinna í að finna
farsæla lausn heldur fljóta menn
sofandi að feigðarósi.
19.8. | Björn Bjarnason
EFTA/EES-aðild er
hagstæð fyrir Breta
Gagnrýni á aðild Breta að EES er
m.a. um rétt þeirra til að tak-
marka fjölda innflytjenda til
Bretlands. Þeir ættu að geta það
eins og Liechtensteinar.
20.8. | Júlíus Petersen Guðjónsson
Raunasaga ellilífeyrisþega TR
Hverjir kusu ykkur, auðvitað
eldri borgarar? Haldið þið að
eldri borgarar láti blekkjast í
næstu kosningum?
22.8. | Leifur Magnússon
Hvar er lagaheimildin?
Umrætt landsvæði á suðvest-
urhluta neyðarflugbraut-
arinnar hefur frá upphafi flug-
vallarins verið innan
flugvallargirðingar, og er svo
enn.
23.8. | Helga Ingólfsdóttir
Eðlilegt að lækka tryggingagjald
með minnkandi atvinnuleysi
Nú þegar umskipti hafa orðið á
vinnumarkaði og fyrir liggur að
vinnuafl skortir í mörgum
greinum er sjálfsagt að lækka
tryggingagjaldið.
24.8. | Jóna Björg Sætran
Í skólanum, í skólanum
Skólasamfélagið í Reykjavík vinnur metn-
aðarfullt skólastarf en fjársvelti og sífelldur
niðurskurður hamlar mörgum
brýnum verkefnum.
25.8. | Páll Gunnar Pálsson
Samkeppni á dagvörumarkaði -
Í tilefni af grein Haraldar
Benediktssonar
Grein Haraldar er gott tilefni
til þess að rifja upp nokkrar
aðgerðir Samkeppniseftirlits-
ins á dagvörumarkaði.
27.8. | Steinunn Þóra Árnadóttir
Vandamálið Tyrkland
Fyllsta ástæða er til að hafa
sérstakar áhyggjur af hlut-
skipti tyrkneskra Kúrda við
ríkjandi aðstæður og er vert
að beina þeirri áskorun til
stjórnvalda í Tyrklandi að virða mannrétt-
indi og mannhelgi allra tyrkneskra borgara.
27.8. | Hildur Sverrisdóttir
Varðstaða um grunngildi
Í starfi mínu sem borg-
arfulltrúi hef ég oftar en ekki
tekið fyrir mál sem snerta
grunngildi eins og tjáning-
arfrelsi, eignar- og sjálfs-
ákvörðunarrétt.
29.8. | Áslaug Valsdóttir
og Hildur Kristjánsdóttir
Vegna fyrirhugaðra breytinga
á lyfjalögum
„Ljósmæður
hafa sótt það í
mörg ár að fá
leyfi til að ávísa
ákveðnum lyfjum
fyrir skjólstæðinga sína. Málið hefur aldrei
komist alla leið í reglugerð eða lög og ekki
ljóst hvers vegna svo er.“
30.8. | Orri Vigfússon
Ólafur Haraldsson genginn aftur
en hvar er Einar Þveræingur?
Ráðuneyti sjávarútvegs- og
umhverfismála eru granda-
laus og íslenskum skattgreið-
endum er ætlað að borga
ómældan kostnað við und-
irbúning, rannsóknir og allt eftirlit sem
framleiðslunni fylgir.
31.8. | Teitur Björn Einarsson
Beint frá býli í alvöru
Sóknarfærin til framfara og
verðmætasköpunar eru víða.
Ævintýralegur straumur
ferðamanna til landsins skap-
ar þannig fjölda tækifæra fyrir
bændur til að selja margvíslegar vörur sín-
ar og þjónustu.
1.9. | Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Selt undan flugvellinum
Annað getur því vart talist
forsvaranlegt en að rifta hin-
um ólögmæta samningi. Sú
riftun myndi vonandi marka
umskipti í baráttunni um
Reykjavíkurflugvöll og sýna að ríkisvaldið
sé reiðubúið að gera það sem þarf til að
stöðva tilraunir borgaryfirvalda til að fjar-
lægja flugvöllinn sneið fyrir sneið.
2.9. | Rúnar Gíslason
Landsbyggðin fyrir alla
Fólk heldur áfram að veikjast
á landsbyggðinni og sama
hversu hátæknilegt hátækni-
sjúkrahúsið er þá þarf að
vera hægt að veita fólki lág-
marks aðhlynningu í hverju byggðarlagi.
3.9. | Gunnar Einarsson
Lúpínan er íslensk
Þær plöntur sem vaxa á Ís-
landi tilheyra flóru Íslands.
Það á ekki síður við um lúp-
ínuna en aðrar plöntur.
5.9. | Dr. Eric Stubbs
Ísland myndi hagnast á
öðruvísi vaxtastefnu
Þótt það sé þægilegt og rétt-
lætanlegt að notast áfram við
útbreiddar hefðbundnar að-
ferðir þá kann að vera að þær
þjóni Íslandi ekki vel nú á tím-
um.
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðið snýr heim
Evrópumótið í knatt-
spyrnu setti stóran svip á
sumarið og var landsliðs-
mönnunum okkar ákaft
fagnað við heimkomuna
frá Frakklandi.