Morgunblaðið - 31.12.2016, Síða 50
50 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016
M. Lipton 1965
Hvítur leikur og mátar í 2. leik
Lausn: 1. Bf5
a) 1. … Kxb5 2. Rc3 mát; b) 1. …
axb5 2. Rxc5 mát. c) 1. … Kxb3 2.
Rxc5 mát.
H.D.O. Bernand 1903
Hvítur leikur og mátar í 2. leik.
Lausn: 1. Ha1
a) 1. … Kf5 2. Db1 mát; b) 1. … d5
2. Bd3 mát. c) 1. … e6 2. Rxd6 mát.
d) 1. … e5 2. Rxd6 mát.
W. Shinkman 1877
Hvítur leikur og mátar í 2. leik
Lausn: 1. Ba4
a) 1. … Kxd5 2. Bb3 mát; b) 1. …
d6 2. Rbc7 mát; c) 1. … f6 2. Rdc7
mát; d) 1. … f5 2. Dg8 mát.
1. O. Würzburg 1896
Hvítur leikur og mátar í 3. leik
Lausn: 1. Bh3
a) 1. … a5 2. Da6+ Kxa6 3. Bc8
mát; b) 1. … e4 2. Dg4 og 3. Dc8
mát;; c) 1. … Ka8 2. Dg4 og 3. Dc8
mát; d) 1. … Kb8 2. Dg4 og 3. Dc8
mát; e) 1. … Kc7 2. Dg4 e1) 2. …
Kd8 3. Dd7 mát; e2) 2. … Kb8 3. Dc8
mát.
A. Kraemer 1936
Hvítur leikur og mátar í 3. leik
Lausn: 1. Hb1 Kg7 2. Db7+
a) 2. … Kh8 3. Db2 mát; b) 2. …
Kh6 3. h8(D) mát; c) 2. … Kf6 3. Hb6
mát; d) 2. … Kf8 3. h8(D) mát.
E. Pogosjants 1964
Hvítur leikur og vinnur.
Lausn: 1. Kf6 Kh6 2. d6 Re8+!
Góð vörn. Eftir 2. … e3 3. d7 e2 4.
Bxe2 Re8+ 5. Ke7 vinnur hvítur
auðveldlega.
3. Bxe8 e3 4. d7 e2 5. d8(R)! e1(R)
Ekki 5. … e1(D) 6. Rf7+ Kh5 7.
Re5+ og svartur verður mát eða
drottningin fellur; 7. … Kh6 8. Rg4
mát eða 7. … Kh4 8. Rf3+ og síðan
9. Rxe1. Endataflið með kóng, bisk-
up og riddara gegn kóngi er fræði-
lega unnið þó að góða tækni þurfi til.
6. Rc6 riddaraleikur 7. Re7 ridd-
araleikur 8. Rg8 mát.
Lausnir
á jólaskákþrautum
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Síðasti þátturinn
Ágætu brids-
spilarar og aðrir
lesendur. Þetta
er síðasti brids-
þátturinn er ég
hefi umsjón með
og er það eflaust
mál margra að
það sé kominn
tími til. Ég hefi
haldið honum úti
allt frá árinu 1972
og er hann nú orðinn barn síns tíma.
Þessi tímasetning er einnig tengd
því að núverandi ríkisstjórn hefir
ákveðið að um áramótin megi eldri
borgarar ekki lengur vinna sér inn
aukakrónur til að drýgja tekjurnar.
Þá má og nefna að bridsfélögin og
bridsspilarar eru að mestu hætt að
senda þættinum nótu.
Ég vil þakka mínum tryggu blaða-
fulltrúum fyrir samstarfið og óska
þeim alls góðs. Bridsíþróttin á um
þessar mundir undir högg að sækja
og ef fer fram sem horfir munu
bridsfélög í mörgum stærri bæj-
arkjörnum landsins leggjast af og er
það miður. Vonandi kemst brids aft-
ur í tízku ef svo má orða það og taka
þá nýir menn við með nýjum áherzl-
um.
Takk fyrir mig. Gleðilegt nýtt ár.
Arnór Guðjón
Ragnarsson
Fyrir jólin kom út í
Þýskalandi bókin Nor-
ræn jól (Skandinav-
ische Weihnachten) hjá
Oetinger-forlaginu í
Hamborg. Þar er meðal
annars að finna þýðingu
Florence Groizier á Jól-
unum hans Hallgríms
eftir Steinunni Jóhann-
esdóttur, með myndum
Önnu Cynthiu Leplar. Í bókinni er
auk þess birt Jólasveinakvæði Jó-
hannesar úr Kötlum með myndum
Erlu Siguðardóttur og sagan Jólin í
Hælavík eftir Jakobínu Sigurð-
ardóttur, myndskreytt af Imke Sönn-
ischen.
Norræn jól er vegleg bók, um 220
síður í stóru broti og ríkulega mynd-
skreytt. Þar eru mikilvægustu nor-
rænu jólasögurnar sagðar af höf-
undum eins og Astrid Lindgren,
Selmu Lagerlöf, H.C. Andersen, Ell-
en Reumert, Jo Tenfjord, Tor Åge
Bringsværd, Tove Jansson, Zach-
arias Topelius og fleiri, ásamt mynd-
um Elsu Beskow, Katrin Enkelking,
Sven Nordqvist, Carola Sturm og
fleiri listamanna. Einn-
ig er greint frá ýmsu
sem tengist jólahaldi og
aðventu á Norðurlönd-
unum. Íslenskir jóla-
sveinar, Grýla, Leppa-
lúði og skötuilmur á
Þorláksmessu koma við
þá sögu.
Bók Steinunnar Jó-
hannesdóttur opnar
sýn að jólum á tíð Hall-
gríms Péturssonar. Í
Hallgrímskirkju var bæði í desember
2015 og 2016 tekið á móti barnahóp-
um og þeim kynnt jólahald á tíð hins
unga Hallgríms sem Steinunn segir
svo frábærlega vel frá. Jóladreng-
urinn Hallgrímur Pétursson er nú í
þýsku jólaúrvali Norðurlanda. Það er
magnað og fagnaðarefni.
Eftir Sigurð Árna
Þórðarson
» Saga Steinunnar Jó-
hannesdóttur um
jóladrenginn Hallgrím
Pétursson er nú í þýsku
úrvali norræns jólaefnis.
Höfundur er Hallgrímskirkjuprestur.
Jólin hans Hallgríms
í Þýskalandi
Sigurður Árni Þórðarson
mbl.is
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gleðilegt ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig