Morgunblaðið - 31.12.2016, Blaðsíða 59
ÍSLENDINGAR 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016
þar lék hann í þrjú ár. Hann sá um
Stunda okkar, ásamt Gunnari
Helgasyni leikara 1994-96 en þeir
hafa síðan brallað margrt saman,
gefið út ótal mynddiska, geisladiska
og kassettur með barnaefni.
Felix fór ti London 1997 og í
kjölfarið stofnaði hann leikhópinn,
Á senunni, ásamt Kolbrúnu Hall-
dórsdóttur, 1998. Fyrsta verkefni
hópsins var verk eftir Felix, Hinn
fullkomni jafningi, sem var frum-
sýnt í Gamla bíói í ársbyrjun 1999,
en þau áttu eftir að ferðast með þá
sýningu víða um lönd. Meðal ann-
arra verkefna hópsins var Kvetch
sem hlaut Grímuna 2003 sem besta
sýning ársins og var auk þess síð-
asta sýning sem Edda Heiðrún
Bachmann lék í áður en hún hætti
að leika: „Leikhópurinn A senunni,
var mjög virkur 2000-2007 og hefur
í raun aldrei verið lagður niður,
formlega. Þetta voru skemmtileg ár
og mikil reynsla fyrir ökkur öll að
halda slíkum hópi gangandi. Við
settum m.a. upp stórar sýningar á
borð við söngleikinn Caparett og
barnaverkið Abba babb! sem hlaut
Grímuna sem besta barnaleikrit
ársins 2007.“
Felix hefur svo starfað mikið í
fjölmiðlum frá 2005, tók þátt í ýms-
um sjónvarpsþáttum, s.s. Popp-
punkti, með Doktor Gunna og Jú-
róvisionþátturinn Alla leið að
ógleymdum útvarpsþáttunum
Bergson og Blöndal á Rás tvö.
Felix gaf út sólaplötuna Þögul
nóttinn, 2011, og Borgin, árið 2014.
Á seinni plötunni eru eingöngu
textar eftir Felix en báðar plöt-
urnar vann hann í samvinnu við Jón
Ólafsson, vin og samstarfsfélaga
frá því á Verslunarskólaárunum.
Þegar leiklist og þáttagerð slepp-
ur er Felix mikill KR-ingur og Liv-
erpoolaðdándi. Hann er pólitískur,
ekki síst í borgarpólitík og Evrópu-
pólitík, og er eins og fleiri gefinn
fyrir ferðalög: „Við höfðum farið
nokkuð víða og fórum t.d. í
eftirminnilegar ferðir með börn-
unum okkar til Afríku og Suður-
Ameríku.
Ég hlusta töluvert á tónlist en
líklega ekkert mikið meira en geng-
ur og gerist. Og ég er enginn sér-
vitringur í tónlist. Kannski fyrst og
fremst poppari sem hlustar á allt
popp þó aldurinn segi mér að ní-
undi áratugurinn hljóti að hafa ver-
ið blómaskeið popptónlistarinnar.“
Fjölskylda
Eiginmaður Felix er Baldur Þór-
hallsson, f. 25.1. 1968, prófessor
við HÍ. Foreldrar hans eru Þór-
hallur Ægir Þorgilsson, f. 13.9.
1939, rafvirkjameistari á Ægissíðu í
Rangárþingi Ytra, og Þorbjörg
Hansdóttir, f. 8.2.1939, d. 15.10.
2013, kaupmaður á Ægissíðu.
Fyrrv. eiginkona Felix er Ásdís
Ingþórsdóttir, f. 21.2.1967, arkitekt.
Börnin eru Guðmundur Fel-
ixsson, f. 6.4. 1990, sviðslistamaður
í Reykjavík en kona hans er Þur-
íður Blær Jóhannsdóttir leikari, og
Álfrún Perla Baldursdóttir, f. 30.1.
1992, stjórnmálafræðingur í
Reykjavík en maður hennar er Árni
Freyr Magnússon sagnfræðinemi.
Systkini Felix eru Þórir Helgi
Bergsson, f. 16.12.1968, mat-
reiðslumaður í Reykjavík; Sig-
urþóra Steinunn Bergsdóttir, f.
21.3. 1972, sálfræðingur í Reykja-
vík; Guðbjörg Sigrún Bergsdóttir,
f. 5.9. 1982, félagsfræðingur í
Reykjavík.
Foreldrar Felix eru Bergur Fel-
ixsson,, f. 14.10. 1937, fyrrv. skóla-
stjóri og síðar framkvæmdastjóri
Leikskóla Reykjavíkur, Reykjavík,
og Ingibjörg Sigrún Guðmunds-
dóttir, f. 8.2. 1942, hjúkrunarfræð-
ingur í Reykjavík.
Úr frændgarði Felix Bergssonar
Felix
Bergsson
Salvör María Friðriksdóttir
húsfr. í Vogum í Ísafjarðardjúpi
Guðjón Sæmundsson
b. í Vogum í Ísafjarðardjúpi
Guðbjörg Kristín Guðjónsdóttir
húsfreyja í Rvík
Guðmundur Jón Ludvigsson
forstj. Gísla J. Johnsen í Rvík
Ingibjörg Sigrún
Guðmundsdóttir
hjúkrunarfr. í Rvík
Sigrún Ó. Guðmundsdóttir
verkakona á Ísafirði
Ludvig A Einarsson
málaram. í Rvík
Ólafur Guðmundsson
smiður í Rvík
Guðmundur Ó. Ólafsson
pr. í Skálholti
Felix Ólafsson
pr. og trúboði
Helgi Guðmundsson
aktygjasmiður í Rvík
Ludvig Á. Guðmundsson
yfirlæknir á Reykjalundi
Guðjón Guðmundsson
rekstrarráðgjafi og fyrrv. form. KR
Sigurður Helgason
fyrrv. forstj. S. Helgason
Bjarney Ágústa
Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðbjörg Kristín
Ludvigsdóttir
læknir
Jón Gnarr
fyrrv.
borgar-
stjóri
Þorbjörn Sigurðsson
b. í Mjósundi í Villingaholtshr.
Sigurþóra S. Þorbjörnsdóttir
húsfreyja í Rvík
Felix Guðmundsson
framkv.stj. Kirkju-
garða Reykjavíkur
Bergur Felixson
framkv.stj. Leikskóla
Reykjavíkur
Guðný Jónsdóttir
húsfr. á Eyrarbakka
Guðmundur Felixson
verslunarm. á Eyrarbakka, systursonur
Gunnvarar, langömmu Egils Skúla
Ingbergssonar fyrrv. borgarstjóra
Anna Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Þórunn Jónsdóttir
húsfr. í Mjósundi
Gils Guðmundsson fæddist íHjarðardal innri í Önundar-firði 31.12. 1914, sonur Guð-
mundar
Gilssonar, útvegsb. í Hjarðardal,
og k.h., Sigríðar Hagalínsdóttur.
Foreldrar Guðmundar: Gils
Bjarnason á Mosvöllum og Guð-
mundína Jónsdóttir, systir Guð-
nýjar, ömmu Jónu, ömmu Ólafs Þ.
Þórðarsonar og Kjartans Ólafssonar
alþm. Foreldrar Sigríðar: Hagalín
Þorkelsson og Sólveig Pálsdóttir.
Kona Gils var Guðný Jóhannes-
dóttir en dóttir þeirra er Erna Sig-
ríður Gilsdóttir, kennari í Dan-
mörku. Stjúpsonur Gils er Úlfur
Árnason, doktor í Lundi.
Gils lauk kennaraprófi frá KÍ
1938, var sjómaður 1934-40, kennari
við Íþróttaskólann í Haukadal og við
unglingaskóla í Garði og Sandgerði,
rithöfundur frá 1942, blaðamaður og
ritstjóri 1943-56 og framkvæmda-
stjóri Menntamálaráðs og Bókaút-
gáfu Menningarsjóðs 1956-75.
Gils var alþingismaður Reykjavík-
ur fyrir Þjóðvarnarflokk Íslands
1953-56 og þingmaður Reykjanes-
kjördæmis fyrir Alþýðubandalagið
1963-79. Hann var formaður Þjóð-
varnarfélags Reykjavíkur 1953-54
og varaformaður Þjóðvarnarflokks-
ins 1960-62, formaður Rithöfunda-
sambands Íslands 1957-58 og for-
maður félagsins Ísland – Færeyjar.
Gils sat í Rannsóknaráði ríkisins,
var skipaður í endurskoðunarnefnd
laga um friðun Þingvalla og nátt-
úruvernd, var formaður fiskveiði-
laganefndar frá 1971, sat í Norður-
landaráði 1971-74, í verðlaunanefnd
Gjafar Jóns Sigurðssonar og í Þing-
vallanefnd. Hann sat á Allsherjar-
þingi SÞ 1970 og á hafréttar-
ráðstefnu SÞ 1974-75.
Gils samdi fjölda sagnfræðilegra
rita og skrifaði sögu ýmissa stéttar-
félaga. Má þar helst nefna Skútuöld-
ina, Togaraöldina og Vestfirska
sagnaþætti. Þá ritstýrði hann tíma-
ritum og bókum, s.s. bókunum Öldin
sem leið 1800-1900 og Öldin okkar,
frá 1900-1980.
Gils lést 29.4. 2005.
Merkir Íslendingar
Gils Guð-
mundsson
Gamlársdagur
85 ára
Guðrún Sjöfn Janusdóttir
Sveinn Jóhannesson
80 ára
Árni Valdimarsson
Einar Pétursson
Ester Rögnvaldsdóttir
Jón Ingólfsson
75 ára
Kristrún E. Kristófersdóttir
Lucita Elín Mendoza
Steindór Guðjónsson
Sverrir Kristjánsson
Valgerður Á. Franklín
70 ára
Birgir Grétar Ottósson
Bjarney Kristín Ólafsdóttir
Eva Hjördís Þorkelsdóttir
Gunnar Þórarinsson
Karl Nikulásson
Sigríður Bjarnadóttir
Sóley Gestsdóttir
60 ára
Aðalheiður Stefánsdóttir
Bryndís Anna Björnsdóttir
Helgi Eggertsson
Kári Ólafsson
50 ára
Dagný Björg Davíðsdóttir
Eygló Jónsdóttir
Friðþjófur Jónsson
Halldór Jón Halldórsson
Hanna Birna Björnsdóttir
Ingibjörg E. Sigurðardóttir
Ingólfur Guðbrandsson
Rúnar Baldur Róbertsson
Soffía Katrín
Sigurgeirsdóttir
Sveinn Árnason
40 ára
Arkadiusz Pluta
Hjördís Svan
Aðalheiðardóttir
Linda Bajraktari
Magna Huld
Sigurbjörnsdóttir
Slawomir Leszek Chojecki
Sólveig Stefánsdóttir
Þórdís Helga Helgadóttir
30 ára
Davíð Einarsson
Hörður Björn Karlsson
Ingvi Hrannar Jónsson
Lukasz Sylwester Pich
Marcin Siwicki
Rafal Jankowski
Sunna Þrastardóttir
Sylwia Burzykowska
Nýársdagur
95 ára
Ásta Árnadóttir
90 ára
Bjarni Skarphéðinsson
Guðrún Albertsdóttir
85 ára
Árdís Svanbergsdóttir
Haraldur Ármann
Hannesson
Sverrir Björnsson
80 ára
Ármann Gunnarsson
Guðbjörg Felixdóttir
Jóhann Hauksson
Kristbjörg Gunnarsdóttir
75 ára
Jakob Hálfdanarson
Sveindís Þórunn H.
Pétursdóttir
Tryggvi Finnsson
70 ára
Guðrún Ágústsdóttir
Halimo Ahmed Hassan
Harpa Geirdal
Guðmundsdóttir
Irena Wasielewska
Jytte Hjartarson
Katrín Gunnarsdóttir
Raiseh Agha
Skafti Sæmundur
Stefánsson
Stanislaw Lyczek
60 ára
Arngrímur Jónsson
Elsa Magnúsdóttir
Ingi Hans Ágústsson
Kristján Þórður Blöndal
Logi Úlfarsson
Mieczyslaw Duda
Steinunn M. Þórketilsdóttir
Tadeusz Kowalski
50 ára
Aðalsteinn Gunnarsson
Dagnija Karabesko
Felix Bergsson
Guðjón Skúlason
Guðrún Jóna Magnúsdóttir
Hnia Monir
Jón Arason
Jón Gísli Ragnarsson
Margeir Reynisson
Urszula Malgorzata Kolka
Valborg Halldóra
Gestsdóttir
Zophonías Oddur Jónsson
40 ára
Agata Beben
Brynjúlfur Jónatansson
Guðmundur Ragnar
Björnsson
Jóhanna Þorbjargardóttir
Kanda Kohyangphuak
Magdalena Kozak
Magnús Björnsson
Marcin Stanislaw
Dobrzynski
Marek Malecki
Stefán Fannar Stefánsson
Taoufik Jlida
Valgerður Dýrleif
Heimisdóttir
30 ára
Axel Fannar Borgarsson
Davíð Halldórsson
Gunnar Ingi Valdimarsson
Halla Björg Kolbeinsdóttir
Husamettin Kaymaz
Jovana Bjelivuk
Kristbjörg Smáradóttir
Hansen
Kristina Steinkross Nielsen
Óskar Gunnarsson
Ragnheiður Bjarnadóttir
Ragnhildur Pétursdóttir
Sardar Ali Alemi
Svala Konráðsdóttir
Þórey Elva Sverrisdóttir
Til hamingju með daginn
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Sorpkvarnir í eldhúsvaska
www.kvarnir.is
20 ÁRA
1996
2016
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði
sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Skoðaðu úrvalið á
kvarnir.is
20%afsláttur
af sorpkvörnum
út árið 2016
TILBOÐ