Morgunblaðið - 31.12.2016, Page 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016
hennar, afa og ömmu og jafnvel
langömmu og langafa. Án þess að
segulbandsupptökurnar séu nokkurt
sérstakt atriði í sögunni má lesand-
anum vera ljóst að þar kynnist hann
hinum óvenjulega og viðkvæma afa
sínum Guðgeiri, sem tekur loforð
sem hann gefur Guði afar hátíðlega
svo úr verður ólýsanlegur harm-
leikur fyrir alla fjölskylduna. Arndís
amma hans og Regína móðir hans
sitja uppi með þær afleiðingar og
eiga í erfiðu sambandi þar sem gildi
mismunandi kynslóða hafa mikla
núningsfleti og harmurinn sem
fylgir þeim er erfitt að fella inn í líf-
ið.
Álfrún er sögumaður af guðs náð
og nær að segja mikla og breiða
sögu, með ríkri skírskotun til Ís-
lands ólíkra tímabili í fáum senum.
Ný skáldsaga ÁlfrúnarGunnlaugsdóttur ogjafnframt hennar sjö-unda, segir sögu ólíkra
íslenskra tíma í lífi fimm kynslóða.
Hjónin Guðgeir og Arndís tilheyra
tímum þegar íslenskir heildsalar
högnuðust á seinna stríði, næsta
kynslóð er dóttir þeirra Regína, sem
fór út í nám, eignaðist barn og kom
einsömul og
óhamingjusöm
heim, og nútím-
inn er sonur Reg-
ínu og rithöfund-
urinn Magni, í
miðju hruni þar
sem eiginkona
hans missir starf
sitt og þau þurfa
að endurskoða líf-
ið við krappari kjör þar sem þó er
nóg af flestu. Foreldrar Guðgeirs
koma einnig við sögu, einkum þó
móðir hans Sólborg og unglingarnir,
börn Magna, eru þarna á sveimi.
Hver kynslóð þarf að takast á við
erfiðleika sem litar líf þeirrar næstu
á eftir og hefur mikil áhrif á sam-
skipti og hamingju allra yfir langan
tíma.
Magni er í forgrunni sögunnar en
á háaloftinu hefur hann fundið sögur
fjölskyldunnar á segulbandsspólum
sem móðir hans hafði safnað saman.
Þær gefa honum innsýn inn í líf
Hlutskipti húsmóðurinnar á fyrri
hluta 20. aldar, sem fannst kannski
aldrei raunverulega gaman að elda
mat en varð að gera það, og svo Ís-
land nútímans þar sem húsbóndinn
getur sinnt því í stað eiginkonunnar
sem vinnur utan heimilis.
Álfrún þarf enga saumnál til að
fara ofan í hvert spor sem þessi fjöl-
skylda steig og í raun er ótrúlegt hve
stórum og djúpristum myndum hún
nær af persónum án mikils útsaums.
Þá er mjög þægilegt aflestrar
hvernig sögunni er skipt upp í kafla
út frá sjónarhorni aðalpersóna sem
hafa allar ákveðinn sjarma þrátt fyr-
ir breyskleika.
Síðast en ekki síst er Fórnarleikar
ákaflega spennandi og ófyrir-
sjáanleg saga, dramatísk en
skemmtileg í senn.
Morgunblaðið/Ófeigur
Höfundur Álfrún þarf enga saumnál til að fara ofan í hvert spor sem þessi
fjölskylda steig og í raun er ótrúlegt hve stórum og djúpristum myndum
hún nær af persónum án mikils útsaums,“ segir í rýni.
Ísland ólíkra kynslóða
Skáldsaga
Fórnarleikar bbbbn
Eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur.
Mál og menning, 2016. 216 bls.
JÚLÍA MARGRÉT
ALEXANDERSDÓTTIR
BÆKUR
Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju,
sem staðið hefur yfir síðan í byrjun
desember, lýkur í kvöld með Hátíð-
arhljómum við áramót – árlegum tón-
leikum sem nú eru haldnir í 24. skipti.
Þar verður venju samkvæmt leikið á
trompet, pákur og orgel.
Á tónleikunum koma fram tromp-
etleikararnir Ásgeir H. Stein-
grímsson, Eiríkur Örn Pálsson og
Einar St. Jónsson, Eggert Pálsson
pákuleikari og Björn Steinar Sól-
bergsson organisti.
Tónleikarnir hefjast kl. 16.30 og
flutt verða hátíðarverk eftir C.P.E.
Bach, Händel, Clarke, Gigout, Mou-
ret, J.S. Bach og Albinoni. Þá frum-
flytur Björn Steinar umritun sína
fyrir orgel á Víkivaka Sveinbjörns
Sveinbjörnssonar. „Sveinbjörn samdi
verkið upprunalega fyrir píanó en
það kemur mjög skemmtilega út að
leika það á orgel. Hljóðfærið gefur
kost á ótal litbrigðum,“ sagði Björn
Steinar við Morgunblaðið í gær. „Síð-
an verður leikið hvert glæsinúmerið á
fætur öðru fyrir trompetana. Þessi
samsetning; orgel, trompet og pákur
er mjög hátíðleg,“ sagði organistinn.
Hátíðarhljómar við áramót hafa
notið mikilla vinsælda frá upphafi, en
þeir fyrstu fóru fram fljótlega eftir að
Klais orgel kirkjunnar var vígt árið
1992. Alla tíð hefur verið fullt út úr
dyrum í Hallgrímskirkju á gaml-
ársdag en vakin er athygli á því að
tónleikarnir eru ekki á sama tíma
dags og venja er. „Mjög sterk hefð
hefur skapast fyrir tónleikunum og
stemningin jafnan gríðarlega góð.
Hér hefur reyndar verið mjög góð að-
sókn á alla viðburði jólatónlist-
arhátíðarinnar sem lýkur með þess-
um tónleikum,“ sagði Björn Steinar.
Aðgangseyrir er 3.900 krónur,
hálfvirði fyrir meðlimi Listvinafélags
Hallgrímskirkju, öryrkja og nem-
endur. skapti@mbl.is
Hátíðlegt Frá Hátíðarhljómum í Hallgrímskirkju fyrir réttu ári síðan.
Hátíðarhljómar í
Hallgrímskirkju
Listvinafélagið býður upp á lúðra,
pákur og orgel í 24. skipti um áramót
2D ÍSL TAL - SÝND KL. 1.45, 3.50, 6
2D ENS TAL - SÝND KL. 5, 8 SÝND KL. 2, 8.15, 10.25
TILBOÐ KL 1:45
TILBOÐ KL 2
ATH: LOKAÐ 31. DESEMBER - TÍMAR OG TILBOÐ GILDA 1. JANÚAR 2017
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
TILBOÐ KL 2
SÝND KL. 8, 10.50 SÝND KL. 10.25 SÝND KL. 2, 5
Munið að slökkva
á kertunum
Best er að kæfa eldinn
þegar slökkva á í útikerti
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?