Lystræninginn - 01.04.1978, Page 3
TIL LESENDA
Þetta tölublað Lystræningjans er íllmusett og því
vandaðra á ytra borði en fyrri blöð. Filmusetning
eykur útgáfukostnað nokkuð en hann var ærinn
fyrir. Póstgjöld hafa margfaldast og svo má lengi
telja. Því neyðumst við tilað hækka áskriftargjaldið
í 3000 krónur fyrir árið 1978. Semsagt; að fá
Lystræningjann Ijórum sinnum í heimsókn á ári
kostar jafnmikjð og að skreppa tvisvar í leikhús.
Ljóðabækur þær er við gáfum út á síðasta ári
hafa selst sæmilega. Við höfum því ákveðið að
halda áfram útgáfu ljóðabókaílokks Lystræningj-
ans og gefa út tvær ljóðabækur árlega. A þessu ári
gefum við út nýjar ljóðabækur eftir Jón frá Pálm-
holti og Jónas Svafár. Fyrsta útgáfa þeirra verður
árituð og tölusett og prentuð í 150 eintökum. Þeir
sem þess óska geta gerst ákskrifendur að ljóða-
bókaflokk Lystræningjans en lítið er eftir af fyrstu
úts^áfu fyrri bóka ílokksins.
I þessum mánuði mun fyrsta leikrit í leikrita-
safni Lystræningjans koma út. Er það Skáld-Rósa
eftir Birgi Sigurðsson. Ætlunin er að gefa eitt leikrit
í þessum llokki út árlega og geta menn gerst ákskrif-
endur að flokknum og fá þá leikritin tölusett og
árituð.
Ársrit okkar um erótískar bókmenntir kemur út í
byrjun júní og skiptist í þrjá meginkafla: nýbók-
menntir íslenskar, nýbókmenntir erlendar (banda-
rískar að þessu sinni) og sígildar erótískar bók-
menntir (austurlenskar að þessu sinni). Við höfum
fullan hug á að gefa út fleiri ársrit, þarsem hægt er
að fjalla rækilegar um ólík efni en í tímariti ogværi
£*ott að fá ábendingar frá lesendum um efnisflokka.
Ársrit þessi verða kiljur í helmingi minna broti en
Lystræninginn.
Lystræninginn flytur nú inn hljómplötur frá
SteepleChase í samvinnu við annan aðila. Bjóðum
við áskrifendum okkar hljómplötur á heildsölu-
verði. Vonandi getum við boðið uppá íjölbreytt-
ara úrval tónlistar í framtíðinni en þetta er þó
byrjunin.
Og að lokum: greiðið áskriftargjaldið sem fyrst,
íjárhagur blaðsins er þröngur en mikið útgáfustarf
framundan.
LYSTRÆNINGINN
9. hefti, apríl 1978.
RITSTJÓRN:
Ólafur Ormsson
Vernharður Linnet (ábm.)
Þorsteinn Marelsson
UPPSETNING:
Margrét Aðalsteinsdóttir
PRÓF ARK ALESTUR:
Ingis Ingason
FORSÍÐA:
Forsíðumynd ARONSKAN
eftir Valdísi Óskarsdóttur.
FILMUSETNING:
Prentsmiðja Arna Valdemarssonar hf.
FILMUGERÐ:
Prentþjónustan hf.
PRENTUN OG BÓKBAND:
Hólar hf.
Gerist áskrifendur að Lystræningjanum. Áskriftar-
gjald fyrir 4 hefti eru 3000 krónur, þeir er gerast vilja
áskrifendur að blaðinu eða fá efni birt hringið í
eitthvert þessara símanúmera: 91-25753 (Ólafur),
ðl-71060 (Þorsteinn) 99-3733 (Vernharður) eða
skrifið blaðinu: Lystræninginn - Pósthólf 104-815
Þorlákshöfn.
Ritstjórn.
3
L