Lystræninginn - 01.04.1978, Blaðsíða 17
Öll völd til ráðanna!
Hungruðum brauð!
Bændunum land!
Fólkinu frið!
Öll völd til ráðanna!
Haust
fullt af rigningu, eðjan
berst með vinnuskóm
inn í salarkynni ballerínunnar, haust,
litríkir hattar
heíðarkvenna á flögri,
fallandi lauf, eðjan
berst með vinnuskóm
inn í skólastofur stássmeyja, haust
fullt af rigningu, fullt
af væntanlegum veruleika
kringum blágyllt hvolfþök
klaustranna,
kringum
síðustu dansspor ballerínunnar,
ráðherrar í stúkum, fólkið
milli verksmiðjunnar og
götunnar,
haust,
ljósakrónurnar í Vetrarhöllinni eru þungar,
Ijósin slokkna eitt af öðru, í djúpum
hægindastólum eru ráðherrar, gluggatjöldin
eru þykk, þjónarnir teinréttir, gipsstyttur
á hillum, hásætið autt, þjónarnir
teinréttir, keisarinn að baki, sósíal-
demókratar í hægindastólum, verkafólkið
í þröngum götum fullum af lífl og
kolsvartri rigningu og kröfum um brauð
og frið.
Vonin úrelt, göturnar
harðar, hermennirnir undir vopnum
í herbúðum milli byltingar og
gagnbyltingar, göturnar
harðar, gluggatjöldin þykk milli fólksins og
fortíðar, í eyðisölum keisarans
eru flöktandi skuggar af ráðherrum
milli kertaljósa -
17