Lystræninginn - 01.04.1978, Page 28
Vernharður Linnet
STEEPLECHASE NILS WINTHERS
Þegar tríó Horace Parlans var hér á ferð í febrúar
sl. var Nils Winther í fylgd með þeim. Svo samdist
að Lystræninginn tæki að sér dreifingu á hljóm-
plötum SteepleChase á Islandi. Nils Winther
hefur rekið hljómplötuútgáfuna SteepleChase í
fimm ár og gefið út nálægt hundrað hljómplötur.
Meðal þeirra er leikið hafa inná plötur fyrir
SteepleChase eru Anthony Braxton, Stan Getz,
Dexter Gordon, Niels-Henning 0rsted Pedersen,
Archie Shepp og Ben Webster. Undirritaður átti
tal við Nils Winther meðan hann dvaldi hér á
landi.
- Hversvegna stofnaðir þú SteepIeChase?
- Á námsárum mínum, ég var að læra norrænu,
fékk ég leyfi tilað hljóðrita á gamla Montmatre. Eg
hafði fiktað við þetta í Qögur ár þegar Jackie
McLean heyrði upptöku á kvartett sínum hjá mér.
Af hverju gefurðu þetta ekki út? Þetta er stórfínt,
sagði hann. Eg gaf plötu með Jackie McLean út.
Síðan kom dúettplata Niels-Hennings og Kenny
Drew; metsöluplata. Smám saman varð þetta svo
viðamikið að ég varð að hætta öðrum störfum.
- Hvernig velurðu þá tónlist sem þú tekur upp?
- Eg gef aðeins út það sem ég hef gaman af.
- Einsog Norman Granz?
- Norman hefur ekki gaman að neinu nema
djammsessjónum.
- Þú gefur út mjög fjölbreytilega tónlist.
- Er það? Fyrir mér er tónlist Duke Jordans og
Walt Dickersons sama tónlistin. Góð tónlist.
Eru margir tónlistarmenn á föstum samningi við
SteepleChase?
- Nokkrin Duke Jordan, Horace Parlan, Niels-
Henning, Walt Dickerson, Frank Strozier og
Monnette Sudler. Eg hef haft aðra á samning ss.
Dexter Gordon og Ken Mclntyre.
- Hve langan tíma tekur þig að hljóðrita djass-
plötu?
- Það er misjafnt. Duke Jordan er 3-6 tíma að
hljóðrita plötu. Niels-Henning minnst 2 daga en
Walt Dickerson 1 tíma. Lengstan tíma tók að hljóð-
rita plötu Dexters: More Than You Know, þarsem
hann lék með stórri hljómsveit undir stjórn Palle
Mikkelborgs, 4 daga. Lee Konitz og Red Mitchel
voru stanslaust að í 26 tíma er þeir hljóðrituðu
dúettplötu sína: I Concentrate On You.
- Hvernig gengur að selja plöturnar?
- Það er öruggur markaður fyrir þann djass sem
ég gef út, ekki mjög stór að vísu. Eg sel aðeins 5% af
plötum mínum í Danmörku, mest sel ég í Japan. Eg
Anthony Braxton & Teta Montolú
IN THE THADITION Vol. 1
SCS-1015
Drew'N -H CreleO Pederjen
Kenni
DuO
SCS-1
Dexter Gordon Quartct
Bouncin’
with Dex
UVE AT MONTMARTRE
Stan Getz Cuartel
LIVE AT MONTMAHTHE
SCS-1073/74 (DouDle LP)
Ben Webster Quartet
MY MAN
Quartet
fór ekki útí þetta tilað græða peninga en fyrirtækið
ber sig.
- Hvað er framundan í útgáfunni?
- Héðan held ég með tríó Horace Parlans til Osló
þarsem við hljóðritum plötu með nýrri aðferð. í
stað þess að taka tónlistina uppá segulband er hún
leikin beint inná frumplötuna og pressað af henni.
Skylt gömlu aðferðinni sem King Oliver varð að
notast við. Aðferð þessi er mun dýrari en tóngæðin
verða mun betri en áður.
- Ég hef í hyggju að gefa nokkuð út af eldra efni
sem ég á m.a. með Bud Powell og Dextor Gordon. I
mars held ég til Bandaríkjanna að hljóðrita
nokkrar plötur, þar eru margir framúrskarandi
tónlistarmenn sem ekki hafa verið hljóðritaðir eða
hafa fallið í gleymsku. Ég mun t.d. hljóðrita
trompetleikarann Louis Smith sem ekki hefur gefið
út plötu síðan 1958.
28