Lystræninginn - 01.06.1982, Side 13
JÓN: Það verður farið á fleiri en einn.
STEFAN: Þetta er hérna í pésanum.
NÍNA: Ég hlakka til að sjá spanska dansa. Það er geysilegt
temperament í þeim.
STELLA: Geysilegt temperament. Þeir fara alveg inní
mig.
NINA: Eg ætla að sýna þér kastaníetturnar sem ég keypti.
Sérðu.
STELLA: Það eru fallegar myndir á þeim — dansarar.
NINA: Það væri gaman að kunna að nota þær.
STEFAN: Er ekki gert einhvern veginn svona.
STELLA: Hvernig er nú gert? Það er einhvern veginn
svona.
NÍNA: Þú getur þetta.
STELLA: Ég kann þetta ekki.
STEFÁN: Já, dansaðu. Ég ætla að filma.
STELLA: Þetta er ómögulegt hjá mér.
STEFÁN: Haltu áfram.
NÍNA: Þetta er flott.
Jón tekur mynd.
STELLA: htettir Það er ekkert auðvelt að nota kastaní-
ettur.
STEFÁN: Það hlýtur að þurfa mikla æfingu.
NÍNA: Áreiðanlega.
STEFÁN: Þú hefur myndavélina með þér?
JÓN: Ég skil hana aldrei við mig.
STEFÁN: Það væri gaman að kvikmynda dansana.
NINA: Ég sé eftir að hafa ekki farið í annan kjól.
STELLA: Varstu að hugsa um það?
STEFÁN: Ég veit bara ekki hvort ég hef nóga filmu.
NINA: Ég var að hugsa um að fara í þennan.
STELLA: Þessi er ægilega smart, af hverju ferðu ekki í
hann?
NINA: Ég held ég geri það bara.
STEFÁN: Ætlarðu að fara að skipta um kjól núna?
NÍNA: Því ekki?
STELLA: Er það ekki í lagi ef hana langar til þess?
STEFÁN: En hégómaskapurinn!
JÓN: Þetta kvenfólk!
STELLA: Þið segið alltaf: þetta kvenfólk! En þessir
karlmenn!
NÍNA: Ég segi það nú líka: Þessir karlmenn!
NÍNA: Stella komdu með.
þær Jara inná bað.
JÓN: Það er vaxandi tungl.
STEFÁN: Er það? Ég man aldrei hvenær tungl er vax-
andi og hvenær minnkandi.
JÓN: Ef hvilft er í það vinstra megin þá er það vaxandi og
öfugt.
STEFÁN: Já, það er þannig.
JÓN: Það er ágætt að muna það með því að rétta út
hendurnar. Ef hægri lófinn fellur að boglínu tunglsins, þá
er það vaxandi. Ef vinstri lófinn fellur að boglínu tungls-
ins þá er það minnkandi. — Sérðu. — Hægri lófinn fellur
að boglínunni.
STEFÁN: Já, svona. — Nú ætti ég að muna þetta. — Það
er gaman að sitja á svölunum á kvöldin.
JÓN: Ég nýt þess alveg. Þá finnst mér skemmtilegast að
horfa yfir ströndina.
STEFÁN: Þá er líka svo mikil kyrrð yfir öllu.
Þeirjara útá svalir. Konumar koma ajbaðinu.
NINA: Ég ætla að vera með armbandið sem ég keypti.
STELLA: Mér finnst það agalega fallegt.
NÍNA: Ég veit ekkert hvort það er ekta. Fararstjórinn
varaði okkur við þessum götusölum.
STELLA: Ef þetta er smygl einsog þeir segja þá getur vel
verið að það sé ekta. kallar Strákar. Eruð þið tilbúnir?
STEFÁN: Komiði og sjáið tunglið.
NÍNA: Það er naumast þeir eru rómantískir.
STELLA: Það er nú meira. — Armbandið fer ljómandi
vel við kjólinn.
NÍNA: Já, er það ekki?
STELLA: Alveg ljómandi.
NINA: Ég sé ekkert eftir að hafa keypt það, jafnvel þó
það sé ekki ekta.
STELLA: Þetta var ekkert sem þú borgaðir.
NÍNA: Komiði strákar.
STELLA: Strákar.
þau Jara.
IV. þáttur.
STEFÁN: í símann Si, dos cuba libre. Habitcíon cinco, seis
cuarto leiðréttir sig cuatro. Si cuatro, Gracías. leggur á Ertu
ekki að verða búin þama? — Nína. skoðar undir iljamar. Við
sjálfan sig Maður er ekkert annað en tjara á fótunum. kallar
Nína. Heyrirðu ekki. bankar á baðhurðina Nína.
NÍNA: kallar Hvað er að?
STEFÁN: Ég held ég sé að fá í magann.
NÍNA: Égerað koma.
Steján sest, skoðar undir iljarnar, nuddarþœr með handklæði
STEFAN: Þetta næst ekki af. Þetta er meiri bölvaður
óþverrinn.
NÍNA: kemur Mikið var þetta gott.
STEFÁN: Náðirðu tjörunni afþér.
NÍNA: Að mestu — Ertu slæmur?
STEFÁN: Égfekkverk. Ég hélt ég þyrfti að fara á klósettið.
NlNA: Þú ætlar aldrei að losna við þessa kveisu.
STEFÁN: Ekki alminilega — Það er ekki farandi á strönd-
ina.
NÍNA: Ég fer ekki þangað aftur. Maður verður allur útat-
aður í tjöru.
STEFÁN: Það er best að skella sér í bað.
NINA: Berðu á bakið á mér áður.
STEFÁN: Þú ert að byrja að fiagna.
NlNA: Það er hræðilegt að sjá hvernig sumir fara í sólinni.
STEFÁN: Þetta jafnar sig. Það er ekki það mikið.
NÍNA: Ekki brjóstin!
STEFÁN: Þau eru alveg hvít.
NÍNA: Ég veit það. Ég liggekki ber í sólinni.
STEFÁN: Mér finnst ekkert verra þó þú sért svolítið þrýst-
in.
NÍNA: Ekkiþað?
STEFÁN: Mér finnst það betra.
NÍNA: Jæja. — Þú þarft ekki að fara neðar.
STEFÁN: Þú ert þá bara mýkri. — Ekki væri betra að þú
værir einsog horgrind.
NÍNA: Hvað ætlarðu að gera?— Stefán.
STEFÁN: Þú ert svo skapstirð.
NÍNA: Af hverju segirðu það?
STEFÁN: Afþví þú ert það.
NÍNA: Hættu þessu. — Ætlarðu ekki í bað?— Stefán.
Sleján hættir að reyna að koma Nínu á rúmið, skreppur saman
13