Lystræninginn - 01.06.1982, Side 15
STEFÁN: kemur Maður er alveg einsog nýr maður. Eru
drykkirnir komnir?
NINA: Já. Þigvantarglasið. Hérerglasiðþitt. Skál elskan.
STEFÁN: Skál elskan.
NINA: Hvernig er maginn?
STEFÁN: Hann er sæmilegur. Það pípti alveg niðraf mér
áðan.
NINA: Ástin mín. Það er leiðinlegt að þú skulir vera svona
í maganum.
STEFÁN: Það lagast.
NÍNA: Skál elskan.
STEFÁN: Skál elskan. —Þú ert búin úrglasinu.
NÍNA: Ég var þyrst.
Nína lagar til í rúminu,Jer að snyrta til í herberginu
STEFÁN: Þú ætlar þó ekki að fara að laga til?
NÍNA: Mér finnst einsog allt sé á rúi og stúi hérna.
STEFÁN: Þú ert eitthvaðsvo ör. Afhverju sestu ekki?
NINA: Ég ætla að vita hvort Jón og Stella eru úti á svölum.
fer út á svalir, — kallar Jón. Stella. Stella. Eruð þið þarna,
Stella. Stella— Halló! Heyrðirðu ekki? Voruð þið inni —
Hvað segiði gott? Við höfúm ekki séð ykkur í dag. — Við
vorum að koma af ströndinni. — Já, það er alls ekki
verandi þar—Já, tóm tjara. — Hvað?—Á svölunum. Það
er allt annað. Við vildum bara reyna ströndina.
STEFÁN: kallar ajbaðinu Nína.
NINA: Að versla. —Já, kaupa gjafir. — Ég á eftir að
kaupa þó nokkuð.
STEFAN: kallar Nína.
NlNA: Af hverju komiði ekki til okkar? Komiði yfir núna.
STEFÁN: kallar Nína finndu pappír.
NÍNA: Þið komið þá.
STEFÁN: Nína.
V. Þáttur
Athugasemdir meðan Elín dansar:
Herbergi Jóns og Stellu Elin er að myndast við að dansa ejtir
útvarpinu
RUT: Það er tilfmning í þessu.
STELLA: Þetta er bara ekta flamenco dans. — Olé.
RUT: Olé.
PÉTUR: Hörmung er að sjá þetta.
STELLA: Það er aldrei að hún dansar.
NINA: Það er verið að banka í vegginn.
RUT: Espana.
STELLA: Olé.
NÍNA: Við vekjum fólk.
JÓN: Maður má líkast til skemmta sér.
STEFÁN: Ég segi það nú líka.
PÉTUR: viðElínu Hættu þessari vitleysu.
NINA: Það var verið að kvarta yfir hávaða áðan.
JÓN: Við önsum þessu ekki.
NINA: Heyrið þið? Það er verið að banka.
PÉTUR: Hættu nú. — Hættu.
STELLA: Af hverju lofarðu henni ekki að dansa?
PÉTUR: Hún er sér til skammar.
STELLA: Það er gaman að þessu.
PÉTUR: Hættu, segi ég.
ELIN: Ég dansa ef mér sýnist.
PÉTUR: stöðvar Elínu Hættu.
ELIN: Aldrei má maður gera neit.
JÓN: Verið nú góð böm.
PÉTUR: Hún lætur einsogkjáni.
ELIN: Er ekki saklaust að dansa.
PÉTUR: Þú ert full.
ELÍN: Égfull?—En þú?
RUT: berá baðhurðina Halló. Halló. Hver erþarna?
ELÍN: Haltu mér ekki.
RUT: Halló. Halló.
ELÍN: Ég er ekki fangi.
PÉTUR: Þú dansar ekki meira.
Elín slítur sig lausa og dansar
PÉTUR: Ég sagði þér að hætta.
STELLA: Ekki fara.
NINA: Mig langar ekki til að vera lengur.
STEFÁN: Liggur eitthvað á?
NÍNA: Það er orðið framorðið.
STEFÁN: Erum við ekki í fiíi?
NINA: En mig langar til að fara.
STEFÁN: Við förum rétt strax.
RUT: Halló. Ertu þarna Siggi?— Siggi. Ástin mín.
ELÍN: Láttu migvera.
RUT: Afhveru svararðu ekki?
PÉTUR: Ég skipa þér að hætta.
RUT: Siggi.
ELÍN: Ég ræð mér sjálf. — Þú slærð mig.
PÉTUR: Þetta er það eina sem þú skilur.
JÓN: Elskurnar mínar, fyrir alla muni.
ELÍN: Hann slær mig alltafþegar hann er fullur.
PÉTUR: Þú hefurgott af því.
STEFÁN: Hvaðsegirðu aðhann heiti?
RUT: Sigurður.
STEFÁN: Sigurður, opnaðu. Opnaðu,Sigurður. Konan
þín er hérna. Hún vill tala við þig.
ELÍN: Slepptu mér.
Pétur: Þú dansar ekki meira.
JÓN: Hættið nú.
STEFÁN: Ætlarðu ekki aðopna? Ertu dauður? Sigurður.
RUT: Hann er þarna með kvenmanni.
STEFÁN: Heldurðu það?
RUT: Égþekki hann.
STEFÁN: það sést ekkert í gegnum skráargatið.
PÉTUR: Já, skældu.
ELÍN: Ég tala aldrei við þig aftur.
PÉTUR: Feginn verð ég.
STELLA: Kyssist þið nú.
PÉTUR: Kyssa þetta gerpi!
ELÍN: Ég mundi heldur kyssa apa. —Já, sláðu mig aftur.
JÓN: Nú er nóg komið.
RUT: Þú ert þarna með kvenmanni. Ég veit það.
STEFÁN: Opnaðu Sigurður.
RUT: Ég hætti að sofa hjá þér efþú opnar ekki.
STEFÁN: Sigurður.
RUT: Heyrirðu það? Ég hætti að sofa hjá þér.
ELÍN: ein meðJóni Hann erfantur.
JÓN: Þetta jafnar sig.
ELÍN: Égætlaað skilja við hann.
JÓN: Heldurðu að þú gerir alvöru úr því?
ELÍN: Finnst þér rétt að slá fólk?
JÓN: Mér finnst það ekki rétt. En það getur alltaf komið
upp einhver ágreiningur á milli hjóna. Annað væri skrítið.
Hjónabandið er ekki bara ein sæla.
STELLA: Hann er farinn. Hann getur ekki verið þarna
inni.
15