Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 2
Helgarblað 22.–25. janúar 20162 Fréttir
G i l d i r t i l 2 1 . m a í 2 0 1 6
39.900 kr
Síðustu forvöð að ná sér í
á besta verðinu!
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Hringdu í síma 581 3730
Nánari upplýsingar á jsb.is
Vetrarkortið
E
F
LI
R
a
lm
an
na
te
ng
s l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s k
h
ön
nu
n
Píratar með
35% fylgi
Fylgi Pírata mældist 34,9% í
nýjustu könnun MMR sem var
gerð 18. desember síðastliðinn.
Sjálfstæðisflokkurinn mældist þá
með 20,6% og samstarfsflokkur
hans í ríkisstjórn,
Framsóknarflokkurinn, með
11,5%. Alls 12,9% aðspurðra
svöruðu MMR á þá leið að þeir
myndu kjósa Samfylkinguna.
Vinstri - grænir mældust með
11,4% og Björt framtíð rak lestina
með 5,3%.
F
astlega má gera ráð fyrir að
allt að tíu prósent einstak-
linga yfir tvítugt hér á landi
séu með sykursýki. Þar af
eru níu af hverjum tíu með
sykursýki af tegund tvö, þar sem
einn stærsti sökudólgurinn er of-
þyngd, hreyfingarleysi og lífsstíll.
Allt að 40 prósent af aflimunum
sem framkvæmdar eru á Landspít-
alanum tengjast sykursýki og
hefur hlutfallið aukist umtals-
vert á síðustu áratugum. Vanda-
mál er hversu litlar upplýsingar eru
til staðar um tíðni sykursýki hér á
landi en sprenging hefur orðið í
fjölda sykursjúkra í öðrum löndum
Evrópu.
Yfirlæknir innkirtlasjúkdóma
á Landspítalanum segir að ekkert
bendi til að þróunin sé öðruvísi
hér á landi. Hann segir mikilvægt
að átta sig á stöðunni hér með því
að setja á stofn gagnagrunn og að
jafnvel gæti verið gagnlegt að taka
upp skimun fyrir sykursýki. Ljóst sé
að öflugt lýðheilsuátak þurfi til að
sporna við sjúkdómum sem fylgja
ofþyngd, ofneyslu og hreyfingar-
leysi, því þeir séu helsta heilsufar-
sógn 21. aldarinnar og við erum
mögulega farin að forrita komandi
kynslóðir strax í móðurkviði til að
verða móttækileg fyrir sykursýki.
Gögn sem til eru
sýna slæma þróun
„Við vitum því miður afskaplega
lítið einmitt núna og það sem við
vitum byggir á 7–8 ára gömlum úr-
takstölum úr hóprannsókn Hjarta-
verndar. Þá var talið að 6 prósent
karla á aldrinum 25–84 ára væru
með sykursýki af tegund tvö og
að fyrir hverja tvo sem væru með
sykursýki væri einn sem vissi ekki
af því,“ segir Rafn Benediktsson,
yfirlæknir innkirtlasjúkdóma á
Landspítalanum, aðspurður um
tíðni sykursýki af tegund tvö hér á
landi. Hann bendir á að þær tölur
byggi á afmörkuðu þýði og úrtaki
fólks sem bjó á Reykjavíkursvæð-
inu á ákveðnum tíma. En eftir það
séu ekki til neinar tölur. Þær tölur
hefðu þó verið tvöfalt hærri en
tölurnar sem voru til fyrir svipað
þýði, 30 árum áður.
„En tölurnar núna eru líklega
bara svipaðar og annars staðar
í Evrópu. Það er ekkert sérstakt
sem bendir til að þetta sé öðru-
vísi hjá okkur en þar. Að það séu 9
til 10 prósent einstaklinga, eldri en
tvítugt með sykursýki og að þar af
séu 9 af hverjum 10 með sykursýki
af tegund tvö.“
Ofþyngdin afhjúpar vandamálið
En í hverju felst munurinn á sykur-
sýki 1 og sykursýki 2?
„Báðar tegundirnar snúast um
briskirtilsbilun og skort á insúlíni.
Í tegund eitt sem greinist almennt
fyrr á lífsleiðinni er algjör skortur á
insúlíni en einungis hlutfallslegur í
tegund tvö sem greinist oftast síðar á
lífsleiðinni. Að tegund tvö sé áunnin
er eiginlega rangnefni því erfðaþætt-
ir eru þar mjög sterkir en útleysandi
þættir hins vegar einnig öflugir og þá
snýst það um offitu og fleira sem er
að hluta áunnið. Þannig að það fyrir-
bæri sviptir þá hulunni af arfgenga
vandamálinu. Undirliggjandi þarf
maður því að hafa ákveðna gena-
samsetningu. En þetta er sterkasti
breytanlegi áhættuþátturinn og þess
vegna er mjög áhrifaríkt að draga úr
þessum þætti, offitunni og hreyf-
ingarleysinu, til að minnka tíðnina
og einnig hjálpa fólki sem er komið
með greininguna.“
Sama staða hér og erlendis
Þó að nýrri tölur en frá 2007 séu ekki
til þá virðist Ísland enginn eftirbátur
annarra þjóða þegar kemur að því
heilsufarsvandamáli sem sykursýki
af tegund tvö er. Rafn bendir á þá
staðreynd að fjölgunin á þeim árum
sem áðurnefnd rannsókn tók til hafi
verið svipuð og erlendis og að ekki
sé tilefni til að ætla að hún hafi verið
minni eftir það.
„Tíðnin hefur haldið áfram að
aukast í flestum öðrum löndum og
eins og bent hefur verið á þá eru Ís-
lendingar með feitari Evrópuþjóð-
um.“
Samkvæmt skýrslu OECD frá ár-
inu 2015, Health at a Glance, kemur
fram að samkvæmt nýjustu upplýs-
ingum sé rúmlega helmingur, eða
53,8 prósent, fullorðinna í lönd-
um OECD of þung eða í offitu. Í 22
af 34 OECD-löndum er fólk í heild
of þungt eða í offitu. Ísland er yfir
meðaltali innan OECD samkvæmt
þessari skýrslu, þar sem 22,2 pró-
sent einstaklinga yfir 15 ára aldri eru
of feit. Meðaltal OECD hvað þetta
varðar er 19 prósent. Hér á landi hef-
n Tíu prósent yfir tvítugu með sjúkdóminn n Ekkert sem bendir til
að Ísland sé betur statt en aðrar þjóðir þar sem sprenging hefur orðið
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Sykursýki Gera má ráð fyrir að allt að tíu prósent Íslendinga
yfir tvítugu séu með sykursýki og getur sjúkdómurinn haft
skelfilegar afleiðingar. Allt að 40 prósent aflimana sem
framkvæmdar eru á Landspítalanum á ári hverju eru vegna
sykursýki. Göngudeild sykursýki er í húsi bráðamóttöku
Landspítalans í Fossvogi sem hér sést á mynd. Mynd SiGtryGGur Ari
Sykuróhóf Óhófleg neysla á sykri í
nútímaþjóðfélögum er ein höfuðorsök offitu
og tengdra sjúkdóma.
Stór hluti aflimana
á Landspítalanum
vegna sykursýki
Um 300 skjálftar
mældust
Jarðskjálfti að stærð 3,3 á Richter
mældist í Öxarfirði klukkan
04.01 aðfaranótt fimmtudags.
Skjálftinn varð um tólf kílómetra
suðvestur af Kópaskeri og fundu
íbúar á svæðinu fyrir honum.
Alls mældust um 300 skjálftar í
Öxarfirði frá miðnætti og fram á
morgun. Þar af voru tveir skjálftar
um 3 að stærð. Þann 13. janúar
síðastliðinn voru 40 ár liðin frá því
að jarðskjálfti sem mældist rúm
sex stig reið yfir Kópasker. Miklar
skemmdir urðu á mannvirkjum
og öðrum eignum í bænum.