Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 18
Helgarblað 22.–25. janúar 201618 Fréttir
V
ið höfum ekki enn samið
við Netflix enda sigldu við-
ræðurnar í strand,“ segir
Gunnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Myndforms,
aðspurður hvort fyrirtæki hans hafi
selt bandarísku efnisveitunni sjón-
varpsefni sem það á sýningarrétt á.
Myndform hóf viðræður við Netflix
í ágúst 2014, fyrst stóru íslensku
kvikmyndafyrirtækjanna þriggja,
en Gunnar svarar að hann hafi ekki
heyrt í forsvarsmönnum Netflix síð-
an um mitt síðasta ár.
„Þá ætluðu þeir að vinna úr því
efni sem þeir voru búnir að kaupa
af Sam-félaginu og Senu. Svo þarf
að endurnýja efnið og við munum
því mjög líklega eiga í viðskiptum
við Netflix á einhverjum tímapunkti,“
segir Gunnar.
Geta selt mörgum
Netflix, sem opnaði nýverið fyrir
þjónustu sína hér á landi, var áhuga-
samt um að kaupa myndefni sem
Myndform á sýningarréttinn á hér á
landi. Þar er um að ræða barnaefni,
kvikmyndir og annað sjónvarps-
efni sem fyrirtækið hefur keypt af
sjálfstæðum framleiðendum, minni
og miðlungsstórum framleiðslu-
og dreifingarfyrirtækjum, eins og
Svensk Filmindustri, sem og stórum
Hollywood-kvikmyndaverum.
„Af þessum íslensku kvikmynda-
fyrirtækjum erum við langstærst í
barnaefni og erum með Skjákrakka í
samstarfi við Símann og að selja inn
á Vodafone Play. Svo erum við með
mjög stórar myndir eins og Hobb-
it-myndirnar og Hunger Games-
seríuna,“ segir Gunnar. Hann bætir
við að Myndform eigi einnig sýn-
ingarrétt á kvikmyndum bandarísku
framleiðslufyrirtækjanna Lionsgate,
Universal og Metro-Goldwyn-Mayer
(MGM).
„Hins vegar höfum við í mörgum
tilvikum ekki samið um sýningar-
rétt á mörgum af þessum stóru kvik-
myndum þegar kemur að sýningu
í sjónvarpi. Þá höfum við einungis
tryggt okkur kvikmyndahúsaréttinn.
Í mörgum tilvikum getum við hins
vegar selt okkar efni til margra fyrir-
tækja í einu af því að sýningarréttur
í gegnum þessar VOD-þjónustur er
þannig að við gætum selt Netflix,
Símanum og Vodafone sama efnið.
Þessi fyrirtæki fá því ekki einkaleyfi
á vörunum.“
Talsvert flækjustig
Úrvalið sem Netflix býður viðskipta-
vinum sínum er eins og gefur að
skilja háð samningum við myndrétt-
arhafa í hverju landi fyrir sig. Það
er því misjafnt eftir löndum hversu
margir titlarnir eru og eins og DV
greindi nýverið frá þá eru um þúsund
titlar inni á íslensku efnisveitu Netfl-
ix. Til samanburðar eru um 6.000 tit-
ilar í boði í Bandaríkjunum, 3.500 í
Kanada og um 2.000 í Noregi og Sví-
þjóð. Margir hafa því velt fyrir sér
hvort úrvalið hér eigi eftir að aukast
en sú þróun veltur á samningum
Netflix við annars vegar íslenska
myndréttarhafa og hins vegar erlend
kvikmyndafyrirtæki.
Jón Diðrik Jónsson, eigandi og
framkvæmdastjóri Senu, segir fyrir-
tækið hafa náð samningum við Net-
flix fyrir um einu og hálfu ári síðan.
„Við lokuðum samningum við þá
fyrir löngu síðan en það var trúnaðar-
mál af þeirra hálfu. Það er ákveðið
magn af myndum og öðru efni sem
við seljum þeim en það er ekki allt
komið inn ennþá,“ segir Jón Diðrik.
„Í þessum samningi var ákveðið
magn af myndum og eitthvað af
þeim hefur þegar farið inn. Við höf-
um boðið þeim allt sem við getum
en það sem hefur verið hamlandi er
kostnaðurinn við að umbreyta efn-
inu yfir á þeirra snið. Það hamlar til
dæmis hluta þeirra íslensku mynda
sem við eigum og þá sérstaklega ein-
tökum sem við eigum af gömlum ís-
lenskum myndum. Það hefur ekki
verið fjárhagslega arðbært að færa
þær inn vegna greiðslnanna sem
myndu þá lenda annaðhvort á okkur
eða Netflix. Þær þurfa nánast að vera
til í því sniði sem Netflix óskar eftir
svo það sé hægt að setja þær inn. Það
er stærsti flöskuhálsinn í þessu.“
Framkvæmdastjórinn útskýrir
hvernig Sena hafi keypt sýningar-
rétt á íslenskum myndum. Titlarnir
sem eftir standi skiptist að öðru leyti
í tvennt.
„Þar er annars vegar um að ræða
öll litlu og millistóru framleiðslu-
fyrirtækin sem við höfum samið
við. Svo eru þessi stóru stúdíó þar
sem við erum oft með samninga
um kvikmyndahúsin en ekki sjón-
varpsdreifingu. Þá semur Netflix til
dæmis við Sony, Fox eða aðra en
ekki við okkur. En svo eru einnig til-
vik þar sem við höfum samið um að
kaupa allan sýningarrétt á ákveðn-
um myndum í tiltekinn tíma. Það er
því talsvert flækjustig í þessu.“
Sömdu við Sam-félagið
Sam-félagið, sem á og rekur Sambíó-
in og Samfilm, hefur, eins og kom-
ið hefur fram, einnig samið við Net-
flix. Viðræður fyrirtækjanna hófust
haustið 2014 og snerust meðal
annars um kaup á sýningarrétti Sam-
félagsins á kvikmyndum bandarísku
framleiðslufyrirtækjanna Summit
Entertainment og Filmnation
Entertainment. Ekki náðist í Árna
Samúelsson, stofnanda og einn
eigenda Sam-félagsins, við vinnslu
fréttarinnar. n
„Höfum ekki enn
samið við Netflix“
Framkvæmdastjóri Myndforms hefur ekki heyrt í bandarísku efnisveitunni síðan í sumar
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Framkvæmdastjórinn
Gunnar Gunnarsson.
Myndform
Viðræður Netflix og Mynd-
forms sigldu í strand.
Í S L E N S K H Ö N N U N O G S M Í Ð I
LAUGAVEGI 61 KRINGLUNNI SMÁRALIND