Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 51
Helgarblað 22.–25. janúar 2016 Kynningarblað - Betra líf 13 Hvað er góður skrifborðsstóll? Penninn S tóllinn þarf fyrst og fremst að vera notendavænn, not- andinn þarf að geta stillt hann á einfaldan hátt án átaka og án þess að þurfa að standa upp. Stóllinn þarf að vera stöðugur og hjólin þurfa að henta gólfefnunum í vinnurýminu, til dæmis henta hörð hjól á teppi en mýkri hjól á parket eða dúk. Þér ætti að líða vel eftir að hafa setið í honum í um eina klukkustund, því skiptir bólstrunin máli, ef bólstr- unin er of mjúk veitir hún ekki nauðsynlegan stuðning. Æskilegt er að stóllinn geti hreyfst með þér í samhæfðri hreyfingu stólbaks og stólsetu. Stólsetan þarf að styðja vel við not- andann og hana þarf að vera hægt að hækka, lækka og dýpka. Stól- bakið ætti að vera hægt að hækka og lækka þannig að það styðji vel við mjóbakið. Hlutverk armanna er að létta álagi af háls- og herða- vöðvunum. Hvernig er best að sitja? Það er ekki til neitt sem heitir „að sitja rétt“ en þó er vert að hafa nokkur atriði í huga þegar við setjumst. Liðamót, bein og vöðv- ar þarfnast þess að við breytum um vinnustöðu og stellingar yfir daginn og er það því eitt af að- alhlutverkum nútímalegs skrif- stofubúnaðar að bjóða upp á fjöl- breytni. Hér eru nokkur atriði sem huga þarf að: • Hafðu iljarnar á föstum fleti. • Hafðu ekki minna en 90 gráðu horn á stóru liðamótunum í mjöðmum og hnjám. • Hafðu smávægilegan fram- halla á stólsetunni. • Hafðu smávægilegan aftur- halla á stólbakinu. • Hafðu stuðning undir stærst- um hluta læranna. • Öll fjölbreytni er af hinu góða; þú þarft á henni að halda. Stattu við vinnuna Kostir set/standborða eru ótví- ræðir í ljósi þess að þjóðin er að þyngjast. Mikilvægt er að standa upp á 20 mínútna fresti og hreyfa sig, sem þú getur nú gert við skrif- borðið þitt. Rannsóknir hafa verið gerðar á því hve mörgum hitaein- ingum þú getur brennt með því að standa upp og standa við skrif- borðið þitt. Með því að standa í 3 klukkustundir á dag, fimm daga vikunnar í eitt ár, brennir þú jafn mörgum hitaeiningum og ef þú myndir hlaupa 10 maraþon. Hver er besta leiðin til þess að nota borðið þegar setið er? • Byrjaðu á því að stilla stólinn þannig að fæturnir snerta gólfið með hnén í 90 gráðum. • Stilltu svo borðið þannig að olnboginn myndi 90 gráður. • Stilltu skjáinn þannig að aug- un nemi við efri brún skjásins þannig að bak og háls séu bein og í þæglegri stöðu. Hvernig er best að nota borðið þegar staðið er við það? • Stilltu borðið þannig að oln- boginn myndi 90 gráður við borðið. • Stilltu skjáinn þannig að aug- un nemi við efri brún skjásins þannig að bak og háls séu bein og í þæglegri stöðu. • Það gæti tekið nokkra daga að venjast því að standa við vinnuna en brátt finnur þú fyrir minni þreytu og ert betur vakandi við störfin. n Gerðar voru rannsóknir á yfir 250.000 manns sem notaðar voru til þróa Trimension- kerfið sem gerir að verkum að stóllinn verður einskonar framlenging á líkamanum sem tryggir hámarks þægindi. Líkamar okkar eru ekki gerðir til þess að sitja allan daginn þess vegna eru skrifstofustólarnir með Trimension sérstaklega góðir bæði fyrir þægindi og heilsu þar sem líkaminn getur hreyfst í allar áttir án þess að stóllinn verði fyrir jafnvægisbreytingum. Sjúkraþjálfarar mæla með því að fólk standi upp og standi við vinnu sínu þar sem stoðkerfis vandamál hafa aukist verulega undanfarin ár vegna kyrrsetu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.