Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 48
Helgarblað 22.–25. janúar 201610 Betra líf - Kynningarblað
„Náttúruleg meðhöndlun
frekar en lyf þegar kostur er“
Dr. Baldur Tumi:
K
erecis-kremin hafa fengið
ótrúlega góð viðbrögð en þau
eru unnin úr olíu úr fiskroði.
Kremið virkar vel til að með-
höndla ýmis húðvandamál
og einkennin sem þeim fylgja og má
þar nefna sem dæmi exem, psorias-
is, húðnabba og fótasigg. Við ræddum
við dr. Baldur Tuma Baldursson húð-
sjúkdómalækni um kremin og áhrif
þeirra. Hvernig eru Kerecis-krem-
in til komin? „Við stofnuðum Kerecis
árið 2009 til að þróa notkun á fiskroði
til að meðhöndla sár og vefjaskaða.
Við tókum fljótlega eftir því að húðin
umhverfis sárin varð heilbrigðari og
fórum að velta því fyrir okkur hvern-
ig stæði á því. Niðurstaðan er sú að
omega-3 olían í roðinu virðist hafa af-
skaplega heilnæm áhrif á húð.“ Baldur
segir að það sé þó ekki roð í kremun-
um sjálfum. „Við notum ekki roðið
beint heldur vinnum sérstaka olíu úr
hráefninu sem við köllum mOmega-3.
mOmega-3 inniheldur mikið af EPA-
og DHA-fitusýrum sem tengjast heil-
brigði húðarinnar. Þetta er afskaplega
spennandi tækni sem við hlutum ný-
verið einkaleyfisvernd fyrir.“
Fjögur krem með mismunandi
magni af ávaxtasýru
Hvaða jákvæðu áhrif hafa kremin
á húðina? „Húðin á okkur er byggð
upp eins og múrsteinar með múrlím
á milli. Múrsteinarnir eru frumurn-
ar og múrlímið er hið svokallað milli-
frumuefni. Millifrumuefnið er ríkt af
fitu og öðrum efnum. Við erum með
nokkrar tegundir af kremum sem
meðhöndla húðina og millifrumu-
efnið á mismunandi máta.“ Það eru
fjórar gerðir af kremum sem öll inni-
halda mOmega-3 en mismunandi
magn af ávaxtasýru. „Exem-kremið
er ekki með neina sýru, Psoria sem er
fyrir hreistraða húð er með meiri sýru.
Svo kemur Footguard sem er fyrir
fótasigg og loks Smooth-kremið fyr-
ir innvaxin hár og húðnabba, en það
krem er með mesta sýru,“ segir Bald-
ur. En hvaða tilgang hefur ávaxtasýr-
an í kremunum? „Efsta lagið í húðinni
okkar samanstendur af dauðum húð-
frumum og millifrumuefnum. Ávaxta-
sýran opnar þetta dauða efsta lag og
losar upp í því. Þetta gerir mOmega-3
efnunum kleift að komast neðar í
húðina og meðhöndla millifrumulag-
ið sem ég nefndi áðan.“
Auðvelt að meðhöndla sum húð-
vandamál með kremunum
Þessi krem eru CE merkt sem þýðir að
þau eru lækningavara en ekki snyrti-
vara. „Reglugerðarumhverfið fyrir
lækningavörur er miklu flóknara en
fyrir snyrtivörur og alls konar próf-
anir þarf að framkvæma áður en leyfi
fæst til að CE merkja vörur. CE merk-
ingin staðfestir að Kerecis-kremin
„meðhöndli“ ýmsa húðsjúkdóma og
einkenni þeirra s.s. exem, psoriasis,
húðnabba og þrálátt fótasigg.“ Bald-
ur segir reynsluna af kremunum vera
afskaplega góða. „Ég starfa sem húð-
læknir og sé mikið að erfiðum húð-
vandamálum daglega. Sum þarfnast
strax meðhöndlunar eða lyfja en sum
vandamál er auðvelt að meðhöndla
með Kerecis-kremunum. Það er auð-
vitað alltaf betra að nota náttúru-
lega meðhöndlun frekar en lyf þegar
kostur er.“
„Ekkert hefur áður virkað al-
mennilega“
Ég greindist með psoriasis árið 2010
og hef prófað ýmislegt; krem, bakstra,
breytt mataræði, til að hjálpa mér en
ekkert hefur áður virkað almennilega.
Ég fékk prufur af psoriasis-kreminu
frá Kerecis í október 2014 og sá strax
mun þegar ég byrjaði að nota það,
húðin róaðist og bólgur í kringum
blettina minnkuðu. Ég notaði kremið
í tvær til þrjár vikur og tók svo pásu í
nokkra daga þar sem ég var ekki búin
að kaupa mér kremið aftur. Ég fann
þá fljótt hvernig ég versnaði þegar
ég hætti að bera það á mig. Þegar ég
byrjaði aftur að nota Kerecis-kremið
þá fann ég strax aftur hvað ég lagaðist
mikið, húðin róaðist og varð öll slétt-
ari og margir blettir hafa nánast horf-
ið. Ég hef ekki fengið sár eða sýkingar
í blettina líkt og ég var vön áður fyrr.
Einnig er þessi pirringur sem ég fann
fyrir í húðinni horfinn. Viljandi ákvað
ég að skilja einn blett útundan og bera
ekki á hann og hann er mun verri en
allir hinir. -Rósa, snyrtifræðingur
„Hefur ekki verið svona góður í
langan tíma“
Sonur minn hefur átt við að stríða
vandamál sem kemur oft upp á ung-
lingsárum, að fá bólur sem hafa ver-
ið honum til mikils ama. Hann hef-
ur prófað ýmislegt og í desember
2014 fór hann til húðsjúkdómalækn-
is sem vildi láta hann prófa krem sem
átti víst að kosta hálfan handlegginn.
Benti ég honum á að prófa ykkar
krem fyrst, við gætum þá alltaf tekið
hitt út ef ekki gengi. Eftir ekki langa
notkun á Kerecis Smooth sér hann
mjög mikinn mun og hefur ekki ver-
ið svona góður í langan tíma, ég vildi
ég koma þessum skemmtilegu niður-
stöðum áleiðis. Hef ég reyndar verið
að fá eina og eina bólu sjálf sem ef-
laust er hormónatengt en ég hef getað
haldið þeim vel niðri með því að bera
á þær bæði kvölds og morgna krem-
ið ykkar. -Móðir unglings með húð-
vandamál n
Dr. Baldur Tumi Baldursson
húðsjúkdómalæknir
Fyrir Eftir
KERECIS XMA: Sérþróað til meðhöndlunar á
aumri, rauðri, bólginni húð og einkennum exems.
Dregur úr kláða og sefar húð. Er rakagefandi og
eykur vatnsbindigetu húðar. Án stera, án parabena.
KERECIS FOOTGUARD: Fótakrem fyrir
þykka og hreistraða húð með kláða. Meðhöndl-
ar og kemur í veg fyrir sigg, þykka húð og
sprungna hæla. Er rakagefandi og eykur vatns-
bindigetu húðar. Án stera, án parabena.
KERECIS PSORIA: Fyrir þykka og
hreistraða húð með kláða. Meðhöndlar
hreistraða húð og einkenni psoriasis.
Slakar á húðinni og eykur fyllingu.
Dregur úr kláða og losar húðflögur. Er
rakagefandi og eykur vatnsbindigetu
húðar. Án stera, án parabena.
KERECIS SMOOTH: Fyrir húðnabba, hárnabba,
rakstursbólur og inngróin hár. Meðhöndlar og kemur í veg
fyrir húðnabba. Slakar á húð og sléttir. Mýkir húðhnökra
þannig að auðvelt er að nudda þá af. Er rakagefandi og
eykur vatnsbindigetu húðar. Án stera, án parabena.