Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 55
P
remis hefur síðan 2009
þróað staðlaðar hug-
búnaðarlausnir til
endursölu ásamt því að smíða
sérlausnir fyrir viðskiptavini
sína. Við sameininguna við
Netvistun um áramótin hefur
nú bæst við aukin geta til að
veita viðskiptavinum meiri
þjónustu við þróun og nýsmíði
vefsvæða. Hvort sem verk-
efnið snýr að staðlaðri vefsíðu
eða sérhönnuðum vefkerfum
sem þurfa tengimöguleika
við önnur kerfi, er hugbún-
aðarteymi Premis til þjónustu
reiðubúið og hokið af reynslu.
Mynd af hugbúnaðarteyminu
Dæmi um sérlausnir
Við höfum mikla reynslu og
góðan grunn til að hanna
sérlausnir sem leysa ákveðin
verkefni eða ferla fyrir við-
skiptavini. Meðal ánægðra
viðskiptavina með sérlausnir
frá okkur eru N1, Akureyrar-
bær, Hafnarfjarðarbær,
Orkufjarskipti og AFS.
Sérlausnirnar sem við höf-
um m.a. gert eru:
n Bókunarvél fyrir bílaleigu
n Upprunavottorðskerfi fyrir
Viðskiptaráð Íslands
n Meðlimaskrá með greiðslu-
samningum
n Eftirlitskerfi
n Uppgjörskerfi
n Bókunarkerfi fyrir Smur og
dekk
n Innritunarkerfi fyrir grunn-
og leikskóla
n Verkbókhald
Karellen leikskólakerfið
Karellen er veflausn fyrir leik-
skóla sem hefur upp á að bjóða
stýringu og skemmtilega og
ferska vefsíðu fyrir leikskólann.
Um 10% íslensku þjóðarinnar
eru með aðgang að Karellen
leikskólakerfinu en um 80 leik-
skólar nota kerfið. Kerfið hefur
þegar vakið athygli erlendis
og er það í prófun hjá stórum
erlendum leikskólum. Karellen
auðveldar leikskólum að miðla
upplýsingum og efni til forráða-
manna. Í boði er smáforrit sem
gefur forráðamönnum barna
möguleika á að fá tilkynningar,
myndir og áminningar varð-
andi viðburði í símann hjá sér.
Deildir leikskólans geta verið
með smáforrit á spjaldtölvum
og merkt börn inn á myndirn-
ar jafnóðum og þær eru teknar,
þá fá forráðamenn aðgengi að
þeim myndum sem teknar voru
af barninu þeirra strax. Einnig
er auðvelt að senda skilaboð ef
t.d. vantar aukaföt eða ef eitt-
hvað hefur gleymst. Karellen er
hannað til að auðvelda starfs-
fólki leikskóla þá umsýslu sem
fylgir starfinu enda hannað í
samstarfi við leikskóla.
Vefsvæði/heimasíður
Við höfum á okkar snærum
mjög færa hönnuði, forritara
og ráðgjafa sem geta aðstoð-
að þig. Hvort sem þig vantar
hýsingu fyrir vefinn eða að
láta smíða hann frá grunni þá
getum við leyst það fyrir þig.
Við erum að hýsa um 1.500
vefi í dag sem eru allt frá ein-
földum vefsvæðum upp í stór
vefkerfi. Ertu með hugmynd
að vef sem þig langar að koma
í loftið? Hafðu þá samband
við okkur og við finnum réttu
lausnina fyrir þig. Nánari upp-
lýsingar veitir Hrafnkell Ing-
ólfsson, ráðgjafi í söludeild.
Hugbúnaðarlausnir
C
orrian er úr beint úr
smiðju Premis og er
s a m f é l a g s m i ð a ð u r
innri vefur sem gefur vef-,
mannauðs- og markaðsstjór-
um einfalda og hraða leið til
að miðla efni til starfsfólks.
Þegar við hófum
hönnunarferlið að nýjum innri
vef ákváðum við að kanna
hvað væri til á markaðnum og
hvað mætti gera betur. Við
greininguna komumst við að
því að flestir þeirra vefja sem
voru í boði voru oft mikil bákn,
þung skjalastjórnunarkerfi
sem reynt hafði verið að að-
laga innri vef, læstir á bak við
eldveggi, vantaði aðdráttarafl
og möguleika á samskiptum.
Við lögðum því mikla áherslu
á að okkar innri vefur hefði
mikið aðdráttarafl og væri að-
gengilegur hvar sem er.
Átta mánaða hönnunarferli
Eftir átta mánaða smíði í sam-
starfi við N1 var útkoman lif-
andi, samfélagsmiðaður innri
vefur með umhverfi og virkni
sem flestir þekkja og gaman
er að vera á.
Corrian er ekki læstur innan
fyrirtækisins og virkar í öllum
tækjum, þannig að starfs-
menn geta líka kíkt á innri vef-
inn í símanum, á hlaupum og
einnig í heimatölvunni.
Þegar búið er að skrá sig
inn birtist tímalína þar sem
hægt er að deila efni á; frétt-
um, hlekkjum á aðrar síður,
myndböndum og fleiru.
Með Corrian er lítið mál að
halda utan um skráningar á
viðburði svo sem námskeið
eða á starfsmannagleðina,
deila fréttum á starfsmenn,
leyfa þeim að eiga góð sam-
skipti og mynda minni sam-
félög svo sem hjóla-, göngu-,
og tónlistarhópa. Að sögn
viðskiptavina okkar fengu
starfsmenn rödd innan fyrir-
tækisins. Umræður og skoð-
anaskipti geta líka átt sér stað
á milli lokaðra sviða, hópa og
deilda innan fyrirtækisins þar
sem aðeins þeir sem tilheyra
hópnum sjá færslur sem ætl-
aðar eru þeim.
Markaðs- og mannauðssvið
eru vanalega þau svið sem sjá
mikinn hag í að innleiða vef-
inn.
Corrian innri vefurinn auð-
veldar meðal annars innri mark-
aðssetningu þar sem t.d. er
hægt að kynna komandi mark-
aðsherferðir fyrir starfsfólki eða
fá skoðanir frá þeim sem eru
næst viðskiptavininum.
Notendur okkar eru upp-
spretta stöðugrar þróunar:
Hugbúnaðarteymið okkar
hefur lokið sinni hönnun á
vefnum en stöðugt berast
okkur flottar, nýjar hugmyndir
frá okkar frábæru notendum.
Þegar við fáum nýjar hug-
myndir að viðbótum sem við
teljum að fleiri getað notað,
smíðum við þær og allir fá að
njóta þess án auka kostnaðar.
Allar uppfærslur, hýsing, af-
ritun og aðstoð við notendur
er innifalin í föstu lágu mánað-
argjaldi og því er enginn auka-
kostnaður. Vefurinn er tilbúin
lausn sem er einföld í upp-
setningu. Tengingar við önnur
kerfi notenda krefjast þess
að þau séu með vefþjónustu
en flest kerfi í dag eru með
vefþjónustu. Möguleikarnir
eru nærri óendanlegir og eru
mjög spennandi viðbætur að
bætast við á næstu vikum. Þar
ber helst að nefna E-learning
kerfi, sem er mjög spennandi
viðbót við Corrian innri vef-
inn. Í E-learning kerfinu verð-
ur hægt að halda námskeið,
taka próf og fylgjast með hver
hefur tekið prófið og hvernig
viðkomandi gekk.
Ef þú vilt fá kynningu á
Corrian innri vefnum fyrir þitt
fyrirtæki kostar það aðeins
einn kaffibolla.
Corrian – bylting í innri vefjum
Innri vefur
Premis
Sérfræðingar
hugbúnaðarlausna
glaðir í bragði