Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 28
28 Fréttir Erlent Helgarblað 22.–25. janúar 2016
Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands
verða veitt í 13. skipti þann 5. mars næstkomandi.
Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir
afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dóm-
nefndar er föstudagurinn 29. janúar.
Eins og á síðasta ári verða verðlaunin veitt
í fjórum flokkum en þeir eru þessir:
n Besta umfjöllun ársins 2015
n Viðtal ársins 2015
n Rannsóknarblaðamennska ársins 2015
n Blaðamannaverðlaun ársins 2015
Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla
23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni.
Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti á heimasíðu BÍ, www.press.is.
Blaðamannaverðlaun 2015
Blaðamannafélag Íslands
Ætlaði að losa heljar-
tökin fyrir áramót
Samtökin Boko Haram leika enn lausum hala í Nígeríu og nágrannaríkjum
V
ið vinnum bug á Boko
Haram fyrir áramót, því
heiti ég,“ sagði forseti
Nígeríu, Muhammdu
Buhari, síðastliðið sumar og
endurtók það svo undir árslok, þegar
hann sagði sigurreifur ím viðtali við
BBC að nígeríski herinn hefði svo
gott sem unnið sigur á Boko Haram.
Þann 28. desember síðastliðinn var
gerð sjálfsvígsárás á útimarkaði í
bænum Madagali. Árásin kostaði 30
mannslíf. Tvær konur eru grunaðar
um verknaðinn og má að líkindum
rekja hann til Boko Haram. Á jóladag
varð einnig mikið mannfall þegar
liðsmenn Boko Haram myrtu 21 og
særðu enn fleiri í árás í Norðaustur-
Nígeríu. Nígeríski herinn hafði reynt
að koma í veg fyrir árásina með því
að hefja skothríð að fyrra bragði.
Stuttu síðar sprengdi unglingsstúlka
sig í loft upp í Maiduguri. Einn féll og
sjö særðust.
Vestræn menntun bönnuð
Hryðjuverkasamtökin Boko Haram,
samtök herskárra íslamista í Nígeríu,
halda því landinu enn í heljargreip-
um og hafa gert undanfarin sex ár.
Liðsmenn Boko Haram vilja stofna
íslamskt Nígeríuríki og hafa með
hryðjuverkum, ógnarstjórn, mann-
ránum, sprengjuárásum, nauðgun-
um og öðru ofbeldi farið um landið
og reynt að steypa núverandi stjórn-
völdum í Nígeríu af stóli. Þau tengja
sig ISIS-samtökunum og segjast
vera Vestur-Afríkudeild þeirra. Boko
Haram-samtökin voru stofnuð árið
2002 og bein þýðing nafnsins er
(af Hausa-tungumálinu): „Vestræn
menntun bönnuð“. Árið 2009 stofn-
uðu Boko Haram herdeildir sínar og
hafa síðan leikið lausum hala með
tilheyrandi mannfalli. Árið í ár verð-
ur sjöunda ár þeirra af hryðjuverka-
árásum ef nígerísk stjórnvöld ná ekki
yfirhöndinni.
Sagðist vera búin að ljúka
málinu
Buhari hélt því fram við BBC
fréttastofuna að samtökin gætu ekki
lengur haldið áfram sínum hefð-
bundnu árásum, en svo virðist sem
hann hafi misreiknað stöðuna, enda
voru árásirnar milli jóla og nýárs
keimlíkar þeim hryllingi sem íbú-
ar Nígeríu hafa búið við. Samtökin
virðast fá meðbyr í hvert sinn sem
forseti landsins segist vera að ná
yfir höndinni. Svo var einnig uppi á
teningnum varðandi fyrrverandi for-
seta Nígeríu, Goodluck Jonathan.
Tíu milljón börn án menntunar
Þegar lýst er yfir væntanlegu hruni
samtakanna taka þau sig upp og tví-
eflast, leynt og ljóst. Um 20 þúsund
hafa fallið á síðustu sex árum í árás-
um þeirra, 1.000 skólar hafa verið
lagðir í rúst og 1,5 milljónir manna
hafa verið hraktar frá heimili sínu
og eru á vergangi vegna aðgerða
þeirra. Ein milljón barna er líklega
án skólavistar vegna beinna aðgerða
Boko Haram í Nígeríu og nágranna-
ríkjunum, Tsjad, Níger og Kamerún.
Foreldrar þora ekki að senda börnin
í skóla, sem þó eru enn starfræktir, af
ótta við samtökin sem telja, eins og
áður sagði, að börnunum stafi ógn
af menntun og berjast gegn henni.
Kennarar eru hræddir við að mæta
enda hafa 600 þeirra verið myrtir.
Almennt eru 10 milljónir barna án
skóla í Nígeríu, þar af 9,5 milljónir
barna í Norður-Nígeríu.
Buhari segir að samtökin hafi
ekki lengur bolmagn til að ráðast á
skóla, opinberar stofnanir eða sam-
skiptaleiðir landsins. Þau neyðist til
þess að einbeita sér að því að reyna
að ná til sín yngri kynslóð víga-
manna. Þau noti nú heimagerðar
sprengur, hafi lítið vopnabúr og séu
hornreka. Það verði erfitt fyrir þau að
ná sér á strik, sagði hann fyrir árás-
irnar þrjár.
Nígeríski herinn hefur fengið að-
stoð bandamanna sinna við að ná
yfirhöndinni og hafa hermennirnir
meðal annars verið þjálfaðir af
Bandaríkjamönnum, Bretum
og Frökkum. Það mun hafa eflt
nígeríska herinn umtalsvert, en enn
er mikið verk óunnið.
Mikilvægast er að mati stjórn-
valda að hjálpa fólkinu sem neyðst
hefur til að flýja að snúa aftur heim
og endurbyggja stjórnkerfi landsins.
Boko Haram eru talin vera að
reyna innrásir í nágrannaríki Nígeríu.
Þau ku bera ábyrgð á 100 árásum
í nokkrum ríkjum á undanförnum
mánuðum, samkvæmt vefsíðu ji-
hadista. Sagt er að þúsund manns
hafi fallið í þessum árásum. Að auki
eiga fimm að hafa fallið í Níger í ný-
legri árás. Örlög Boko Haram eru því
enn ekki ráðin, þrátt fyrir loforðin. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is Að störfum Hér má
sjá nígeríska hermenn
að störfum við að leggja
í rúst bækistöðvar Boko
Haram. Mynd EPA
ÓHEFLAÐUR
PÉTUR JÓHANN
2JA TÍMA STANZLAUST HLÁTURSKAST!
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA Á MIDI.IS
09. SÝNING ........UPPSELT.
10. SÝNING ........UPPSELT.
11. SÝNING ........FÖS. 05. FEB. (ÖRFÁ SÆTI LAUS)
12. SÝNING ........FIM. 11. FEB.
13. SÝNING ........FÖS. 19. FEB.
SPRENGHLÆGILEG SÝNING SEM SÝND
HEFUR VERIÐ FYRIR KJAFTFULLU HÚSI
SÍÐAN Í NÓVEMBER SL.