Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 31
Helgarblað 22.–25. janúar 2016 Fréttir Erlent 31 Tom Persson Aldur: 30 ára Eignir umfram skuldir: 3 milljarðar dollara Persson er yngsti milljarðamæringur Evrópu. Hann tilheyrir þriðja ættlið H&M-fjölskyldunnar en fimm úr fjöl- skyldu fatarisans eru á lista yfir fólk sem á meira en milljarð dollara – munið það næst þegar þið verslið í H&M. Persson er sonur eins ríkasta Svíans, stjórnar- formanns H&M, Stefans Persson. Afi hans stofnaði fyrirtækið 1947 en það rekur yfir 3.500 verslanir í 53 löndum. Elizabeth Holmes Aldur: 31 árs Eignir umfram skuldir: 4,5 milljarðar dollara Holmes stofnaði rannsóknarstofu sem annast blóðrannsóknir. Hún hætti námi á öðru ári við Stanford University og stofn- aði Palo Alto, fyrirtæki sem starfar í Kali- forníu. Hún notaði sparifé sitt til að stofna fyrirtækið, þá 19 ára gömul, með það að markmiði að gera blóðprufur auðveldari og ódýrari í framkvæmd. Í áratug vann hún að tækni sem gerir kleift að taka blóð prufur með lítilli stungu í fingur. Blóðið er greint á nokkrum klukkustundum auk þess sem hægt er að nota sama blóðdropann aftur og aftur. Hún er yngsta konan í heiminum til að verða milljarðamæringur upp á eigin spýtur. VANTAR ÞIG BÍL? Kynntu þér kosti langtímaleigu AVIS. Þjónustuver Avis 591 4000 - avis@avis.is Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða. Hagkvæmur kostur og allt innifalið, s.s. bifreiðagjöld, tryggingar, olíuskipti og allt hefðbundið viðhald. Vetrarleiga AVIS er góður kostur fyrir þá sem eru í / vinna við skóla, vinna við vetrartengt starf eða vilja einfaldlega heilsusamlegri lífsstíl á sumrin. Hafðu samband og kynntu þér málið. Yngstu milljarðamæringarnir sinna n Eiga meira en milljón dollara Anton Kathrein Jr. Aldur: 30 ára Eignir umfram skuldir: 1,7 milljarðar dollara Þessi þrítugi Þjóðverji er eigandi Kathrein- Werke KG, sem er frumkvöðull á sviði staf- rænna móttakara. Anton er lykil maður í fyrirtækinu en hann tilheyrir þriðja ættlið fjölskyldunnar sem stofnaði það. Fyrir- tækið framleiðir einnig gervihnattasenda og annan búnað sem gerir að verkum að farsímarnir okkar virka. Það var stofnað eftir fyrri heimsstyrjöld en pabbi hans stýrði fyrirtækinu frá 1972 til ársins 2012, þegar hann féll óvænt frá. Anton, þá aðeins 28 ára, tók við rekstrinum. ímyndunaraflið. Ferlið sem fór í gang þegar drengurinn gerði villuna er hluti af aðgerðum til að fyrirbyggja hryðjuverk. Breska þingið samþykkti aðgerðirnar síðastliðið sumar en þær kveða meðal annars á um að reynt sé að koma í veg fyrir að ungmennum séu innrættar öfgar í stjórnmálaskoðunum. Andstæðingar hafa gagnrýnt aðgerðirnar og vilja að kennarar og aðrir tileinki sér heilbrigða skynsemi í þessum efnum sem öðrum. Atvikið sem hér er fjallað um er langt í frá það eina sem upp hefur komið á Englandi síðan í sumar. Haft er eftir Miqdaad Versi, varaformanni Múslimaráðs Bretlands, að hann viti um meira en tíu sambærileg dæmi, þar sem börn lendi í eftirliti sem þessu, af litlu eða engu tilefni.n baldur@dv.is Tíu ára yfirheyrður vegna stafsetningarvillu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.