Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 72
Helgarblað 22.–25. janúar 201652 Lífsstíll
Sterkur og litríkur
M
argfaldur Íslands- og
heimsmethafi í kraftlyft-
ingum, Rúnar Geirmunds-
son, tekur þátt í sterku en
skemmtilegu kraftlyft-
ingamóti í byrjun mars. Mótið fer
fram í Manchesterborg á Englandi og
gæti kallast upp á íslensku „Sterkir og
flúraðir“.
Keppnin er á vegum Alþjóða
kraftlyftingasambandsins en með
þessari skemmtilegu viðbót sem
lýtur að húðflúrinu. Mótið heitir á
frummálinu Tattoed and Strong og
verður haldið dagana 5. og 6. mars,
það er hluti af húðflúrs-
ráðstefnu sem kallast
Tattoo Tea Party.
Rúnar er einn af
okkar efnilegustu
kraftlyftingamönnum
og hefur rakað inn titl-
um bæði á Íslandi og
í Evrópu. Hann er nú
búinn að segja skilið
við unglingaflokkana
og er kominn á stall
með stóru körlunum.
Rúnar hefur ekki
áður keppt á þessu
móti en hann er
sannfærður um að
hann vinni til verð-
launa. „Annars væri
ég ekki að fara út.
Þetta er ekki ung-
mennafélagsmót og
snýst ekki um að taka
þátt. Ég er að fara til
að vinna,“ segir Rún-
ar sem er á fullu að
undirbúa sig. Hann
keppir í undir 75 kílógramma flokki
og er þetta fyrsta alþjóðlega mótið
hans í þeim þyngdarflokki og um
leið er þetta fyrsta árið þar sem hann
er kominn upp í fullorðinsflokk.
Rúnar er 24 ára gamall og keppir þar
af leiðandi einnig í opnum flokki.
Hann veit að á fyrsta ári er ekki raun-
hæft að reikna með verðlaunum á
þeim vettvangi.
Hann man ekki lengur hversu
mörg Íslandsmet hann hefur sett.
Heimsmetin eru líka orðin mörg.
En hvaða met er Rúnar ánægðastur
með? Hann hugsar sig ekki lengi um.
„Það er hnébeygjan.“ Metið er 280 kg.
Þegar Rúnar setti það var hann sjálf-
ur 79,7 kg. Hann er að berjast við að
klára 300 kg og er ekki langt frá því.
Það er óhætt að fullyrða að hann er
einn af þeim Íslendingum sem geng-
ið hafa hvað lengst í að fá sér húðflúr.
Nýlega bætti hann við flúri á hnakk-
ann á sér og hann er með rýting við
gagnaugað. Hann er flúraður frá tá-
bergi upp á höfuð. Auðvitað er hægt
að troða fleiri myndum á hann og
það er eitthvað sem hann er einmitt
að íhuga. n
eggert@dv.is
Rúnar Geirmundsson kraftlyftingamaður keppir á Tattoed and Strong
Svona lýsir
Rúnar sér á
Facebook
Hef orðið Íslandsmeistari oftar en 30
sinnum og á öll Íslandsmetin i öllum
greinum og samanlögðu í 67,5 kg, 75 kg og
82,5 kg flokki, hjá nokkrum samböndum.
Þrefaldur Evrópumeistari og sigurvegari
yfir heildina á stigum líka. Á heimsmet í
réttstöðu í flokki 17–19 ára. Heimsmet í
bekk, beygju, réttstöðu og samanlögðu í
unglingaflokki -82,5 kg flokki.
Skrautlegur Rúnar Geirmundsson
er svo sannarlega verðugur keppandi
á Tattoed and Strong. Hann er bæði
sterkur og litríkur.
Allt á einum stað:
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðaprentun.
Ljósmynda-, striga- og segulprentun.
Textaskraut, sandblástur,
GSM hulstur og margt fleira...