Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 43
Helgarblað 22.–25. janúar 2016 Kynningarblað - Betra líf 5
Heilsustofnun allra landsmanna
Margir valmöguleikar í matarpokunum
og fyrirtækjaþjónustunni frá Gló
H
eilsustofnun Náttúrulækn-
ingafélags Íslands (NLFÍ)
í Hveragerði býður upp á
ýmiss konar námskeið sem
eru öllum opin. Þau stuðla
að árangri dvalargesta við endur-
hæfingu, forvarnir og aðlögun að
daglegu lífi eftir áföll, veikindi eða
sjúkdóma. Ingi Þór Jónsson mark-
aðsstjóri segir Heilsustofnun bjóða
upp á einstaklingsmiðaðar með-
ferðir og trausta og faglega þjón-
ustu.
Nýjustu aðferðir í nútíma lækn-
isfræði og náttúrulækningar
„Við veitum gestum alhliða heilsu-
eflingu með því að veita andlega og
líkamlega endurhæfingu,“ segir Ingi.
„Jafnframt kennum við dvalargest-
um að bera ábyrgð á eigin heilsu,
andlegri og líkamlegri, ásamt því að
bæta færni og þátttöku þeirra í dag-
legu lífi,“ bætir hann við. Ingi nefn-
ir að notast er við nýjustu aðferðir í
nútíma læknisfræði í bland við ýms-
ar hefðir svo sem leir- og heilsuböð
og grænmetisfæði. „Einnig er boðið
upp á heilsueflingu með hvíldar- og
hressingardvöl,“ segir hann.
Ný námskeið að hefjast hjá
Heilsustofnun NLFÍ
„Við erum einnig með ýmiss kon-
ar námskeið í boði fyrir almenning
sem vill koma í styttri dvöl án beiðni
frá lækni,“ segir Ingi. „Sem dæmi má
nefna námskeiðið Komdu með, sem
snýst um að kenna einstaklingum
að bera ábyrgð á eigin heilsu og að
setja sér markmið, Úrvinnsla áfalla,
Líf án streitu, Ritmennska, þar sem
kennd er skapandi aðferð gegn
þunglyndi, Sorgin og lífið, vikudvöl
fyrir þá sem misst hafa ástvin, Sam-
kennd, sem snýst um að styrkja sig
innan frá, og Núvitund eða Mind-
fulness, sem notað er gegn verkj-
um, kvíða, þunglyndi og streitu,“
segir Ingi. „Öll framan nefnd nám-
skeið eru kennd á þessari önn,“ bæt-
ir Ingi við. Allar nánari upplýsingar
um námskeiðin má finna á heima-
síðu Heilsustofnunarinnar. n
MyNd HaraLdur GuðjóNssoN
MyNd HaraLdur GuðjóNssoN
M
atarpokarnir á Gló eru
þægilegur valkostur fyr-
ir þá sem vilja spara sér
tíma og fyrirhöfn en
borða hollan og góð-
an mat. Matarpokana er hægt að fá
með kjúklingi, hráfæði eða græn-
meti. Grænmetispokinn er hentugur
kostur fyrir þá sem treysta sér ekki í
100% hráfæði, þá er meginuppistað-
an hráfæði og ein elduð grænmetis-
máltíð í hádeginu. Þú færð mat fyrir
allan daginn tilbúinn þegar þú sæk-
ir; þrjár máltíðir, grænan safa og
millimál.
djúspokarnir vinsælir
Svo er hægt að fá djúspoka frá Gló
en í honum eru sex flöskur: tve-
ir grænir safar, einn túrmerik safi,
rauðrófusafi og tveir berjasmoothie.
„Ástæðan fyrir því að við settum
saman þessa poka var að fólk lang-
aði oft að taka sig í gegn eða lang-
aði að „djúsa“ en lét alltaf eitthvað
stoppa sig. Annaðhvort fór fólk
að kvíða fyrir eða fannst það ekki
hafa nægan tíma eða þekkingu. Því
ákváðum við að bjóða upp á þessa
sniðugu valmöguleika,“ segir Sól-
veig Eiríksdóttir eigandi, sem er
betur þekkt sem Solla. Segir hún al-
gengast að fólk taki frá einum upp í
þrjá daga í einu á djúsfæðinu.
Ýmsir valkostir í
fyrirtækjaþjónustu
„Við erum líka með ótrúlega
skemmtilega valkosti í fyrirtækja-
þjónustu. Fjöldinn skiptir ekki máli,
við sníðum að þörfum fyrirtækis-
ins,“ segir Solla. Gló býður fyrirtækj-
um að fá sendan mat beint á vinnu-
staðinn. Þetta er tilvalið fyrir hollan
hádegisverð fyrir starfsfólk eða létt-
an mat fyrir fundi. Gló býður upp á
mikið úrval rétta og það ættu allir
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hægt er að vera í fastri áskrift eða
panta þegar hentar. Fyrirtæki geta
meðal annars pantað Gló skálarnar
vinsælu.
Gló skálarnar hafa slegið í gegn
hér á landi og er fólk á öllum aldri
sem kýs að velja samsetningu mat-
ar síns með þessum hætti. Skál-
in virkar þannig að þú hannar þína
eigin gómsætu máltíð alveg eins
og þú vilt hafa hana. Þú velur þér
grunn, grænmeti, prótein, dressingu
og skraut. Einfaldara gæti það varla
verið. Það eru ótrúlega spennandi
tímar fram undan hjá fyrirtækinu en
stefnt er á að opna fleiri Gló Street
Food staði á næstu mánuðum. n
Hreint og gott mataræði með lítilli fyrirhöfn