Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 88

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 88
Helgarblað 22.–25. janúar 201668 Fólk Stjörnurnar eru ekki fullkomnar n Ríka og fræga fólkið glímir líka við ýmsa kvilla n Ekki er allt sem sýnist á rauða dreglinum F ræga og ríka fólkið í Hollywood virðist yfirleitt vera gallalaust þegar við venjulega fólkið sjáum því bregða fyrir á rauða dreglin- um. En það er kannski ekki endilega raunin þegar betur er að gáð. Sumar af stærstu stjörnunum hafa skrýtna líkamlega galla – ef galla má kalla – sem kunna að koma spánskt fyrir sjónir. Það kemur nefnilega sumum kannski á óvart að Hollywood- stjörnurnar eru bara venjulegt fólk eins og við. Og það eru ekki allir sem leggjast undir hnífinn til að láta lagfæra sig þótt eitthvað sé ekki al- veg eins og það ætti að vera. Sum- ir gera jafnvel bara grín að skrýtnu líkamspörtunum. n  Vantar nafla Naflinn á Victoria Secret-fyrirsætunni Karolínu Kurková virðist oft mjög óskýr á myndum en raunin er sú að hann er ekki til staðar. Lýtalæknirinn Matthew Schulman hefur tjáð sig um naflaleysi fyrirsætunnar og telur að hún hafi þjáðst af kviðsliti sem barn. Það hafi annaðhvort verið lagað, og þá ekki gert nógu vel, eða ekki lagað, og hafi orðið til þess að naflasvæðið er eins og það er í dag.  Þrjár geirvörtur Söngkonan Lily Allen er með aukageirvörtu og er alls ekki feimin við að flagga henni. Allen hefur sjálf lýst því yfir í viðtali að geirvartan harðni þegar hún er snert, líkt og hinar tvær geirvörturnar.  Fjórar geirvörtur Harry Styles, fyrrverandi meðlimur hljóm- sveitarinnar One Direction, er ekki með tvær geirvörtur eins og flestir, heldur fjórar. „Ég hlýt upphaflega að hafa verið tvíburi. Hinn tvíburinn hefur svo horfið og skilið geir- vörturnar eftir,“ sagði hann í gríni í viðtali eitt sinn. Hann segist alls ekki skammast sín fyrir aukageirvörturnar, heldur þvert á móti.  Stuttur fingur Matthew Perry, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Chandler í Friends, missti stóran hluta framan af löngutöng hægri handar þegar fingurinn varð á milli stafs og hurðar. Þetta er eitthvað sem fólk tekur þó líklega ekki eftir nema því verði starsýnt á hendurnar á leikaranum.  Öðruvísi eyra Gerard Butler hafði sjálfur ekki áttað sig á því að eyrun á honum væru mjög mismun- andi fyrr en hann lék í kvikmyndinni Tomb Raider. Þá þurfti hann að raka af sér allt hár- ið og eyrun komu betur í ljós. „Þá fóru allir að tala um hvað annað eyrað á mér stæði miklu meira út en hitt,“ sagði hann eitt sinn í viðtali. Sem barn þurfti Butler að gangast undir aðgerð á eyra til að bjarga heyrn hans eftir viðvarandi suð. Hvort það breytti formi eyrans er hins vegar ekki vitað.  Beyglaðar tær Steven Tyler, forsprakki hljómsveitarinnar Aerosmith, þjáist af frekar kvalafullum líkamlegum kvilla sem gengur undir nafn- inu Morton‘s neuroma. Tærnar á honum eru afmyndaðar og snúnar eftir langa sögu af kraftmikilli sviðsframkomu í alltof þröngum skóm.  Útstæð hné Angelina Jolie þykir ein kynþokkafyllsta kona heims og margir eru sammála um að útlit hennar þyki nánast óaðfinnanlegt. En enginn er fullkominn, svo mikið er víst. Jolie er til dæmis með mjög útstæð hné, eða hnéskeljar. Kvillinn sést enn betur en ella vegna þess hve grönn hún er. Þrátt fyrir útstæðu hnén er Jolie þó alveg ófeimin við að ganga um berleggjuð í stuttum kjólum, enda engin ástæða til annars.  Mismunandi litur á augum Leikkonan Kate Bosworth er með það sem kallast hetero chromia iridis sem er kvilli sem veldur því að lithimnurnar eru hvor í sínum lit. Í hennar tilfelli er annað augað brúnt og hitt blátt. Bosworth notast þó yfirleitt við litaður linsur þegar hún er að leika svo þetta er ekki mjög áberandi.  Kubbaþumall Hin kynþokkafulla Megan Fox er með stutt- an og breiðan þumal. Það er ákveðinn kvilli sem veldur því að fingurbeinin eru styttri og fingurinn verður því svolítið kubbslegur. Nöglin er einnig styttri og breiðari  Vantar á fingurinn Leikarinn Vince Vaughn missti framan af öðr- um þumalfingrinum í bílslysi þegar hann var sautján ára. Hann lætur það þó ekki trufla sig og gerir oft grín að fingrinum með því að kalla hann „getnaðarlim með nögl“ enda líkist fingurinn einum slíkum eftir slysið.  Sjötta táin Spjallþátta- drottningin Oprah Winfrey virðist vera með sex tær á öðrum fæti, en aukatáin er við hliðina á litlu tánni. Fótaaðgerðafræðingur, sem skoðað hefur tærnar á Winfrey, segir hins vegar að um sé að ræða einhvern kvilla sem valdi þessu, eins og útskeifu eða flatan fót, sem gerir það að verkum að beinið gengur til með þessum hætti. Og lítur út fyrir að vera sjötta táin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.