Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Síða 88
Helgarblað 22.–25. janúar 201668 Fólk
Stjörnurnar eru ekki fullkomnar
n Ríka og fræga fólkið glímir líka við ýmsa kvilla n Ekki er allt sem sýnist á rauða dreglinum
F
ræga og ríka fólkið í
Hollywood virðist yfirleitt
vera gallalaust þegar við
venjulega fólkið sjáum því
bregða fyrir á rauða dreglin-
um. En það er kannski ekki endilega
raunin þegar betur er að gáð. Sumar
af stærstu stjörnunum hafa skrýtna
líkamlega galla – ef galla má kalla
– sem kunna að koma spánskt fyrir
sjónir. Það kemur nefnilega sumum
kannski á óvart að Hollywood-
stjörnurnar eru bara venjulegt fólk
eins og við. Og það eru ekki allir
sem leggjast undir hnífinn til að láta
lagfæra sig þótt eitthvað sé ekki al-
veg eins og það ætti að vera. Sum-
ir gera jafnvel bara grín að skrýtnu
líkamspörtunum. n
Vantar nafla Naflinn
á Victoria Secret-fyrirsætunni Karolínu
Kurková virðist oft mjög óskýr á myndum
en raunin er sú að hann er ekki til staðar.
Lýtalæknirinn Matthew Schulman hefur
tjáð sig um naflaleysi fyrirsætunnar og telur
að hún hafi þjáðst af kviðsliti sem barn. Það
hafi annaðhvort verið lagað, og þá ekki gert
nógu vel, eða ekki lagað, og hafi orðið til
þess að naflasvæðið er eins og það er í dag.
Þrjár geirvörtur
Söngkonan Lily Allen er með aukageirvörtu
og er alls ekki feimin við að flagga henni.
Allen hefur sjálf lýst því yfir í viðtali að
geirvartan harðni þegar hún er snert, líkt og
hinar tvær geirvörturnar.
Fjórar geirvörtur
Harry Styles, fyrrverandi meðlimur hljóm-
sveitarinnar One Direction, er ekki með tvær
geirvörtur eins og flestir, heldur fjórar. „Ég
hlýt upphaflega að hafa verið tvíburi. Hinn
tvíburinn hefur svo horfið og skilið geir-
vörturnar eftir,“ sagði hann í gríni í viðtali
eitt sinn. Hann segist alls ekki skammast sín
fyrir aukageirvörturnar, heldur þvert á móti.
Stuttur fingur
Matthew Perry, sem er hvað þekktastur fyrir
hlutverk sitt sem Chandler í Friends, missti
stóran hluta framan af löngutöng hægri
handar þegar fingurinn varð á milli stafs og
hurðar. Þetta er eitthvað sem fólk tekur þó
líklega ekki eftir nema því verði starsýnt á
hendurnar á leikaranum.
Öðruvísi eyra
Gerard Butler hafði sjálfur ekki áttað sig á
því að eyrun á honum væru mjög mismun-
andi fyrr en hann lék í kvikmyndinni Tomb
Raider. Þá þurfti hann að raka af sér allt hár-
ið og eyrun komu betur í ljós. „Þá fóru allir
að tala um hvað annað eyrað á mér stæði
miklu meira út en hitt,“ sagði hann eitt sinn
í viðtali. Sem barn þurfti Butler að gangast
undir aðgerð á eyra til að bjarga heyrn hans
eftir viðvarandi suð. Hvort það breytti formi
eyrans er hins vegar ekki vitað.
Beyglaðar tær
Steven Tyler, forsprakki hljómsveitarinnar
Aerosmith, þjáist af frekar kvalafullum
líkamlegum kvilla sem gengur undir nafn-
inu Morton‘s neuroma. Tærnar á honum
eru afmyndaðar og snúnar eftir langa
sögu af kraftmikilli sviðsframkomu í alltof
þröngum skóm.
Útstæð hné Angelina Jolie þykir ein kynþokkafyllsta kona heims og
margir eru sammála um að útlit hennar þyki nánast óaðfinnanlegt. En enginn er fullkominn,
svo mikið er víst. Jolie er til dæmis með mjög útstæð hné, eða hnéskeljar. Kvillinn sést enn
betur en ella vegna þess hve grönn hún er. Þrátt fyrir útstæðu hnén er Jolie þó alveg ófeimin
við að ganga um berleggjuð í stuttum kjólum, enda engin ástæða til annars.
Mismunandi
litur á augum Leikkonan
Kate Bosworth er með það sem kallast
hetero chromia iridis sem er kvilli sem veldur
því að lithimnurnar eru hvor í sínum lit. Í
hennar tilfelli er annað augað brúnt og hitt
blátt. Bosworth notast þó yfirleitt við litaður
linsur þegar hún er að leika svo þetta er ekki
mjög áberandi.
Kubbaþumall
Hin kynþokkafulla Megan Fox er með stutt-
an og breiðan þumal. Það er ákveðinn kvilli
sem veldur því að fingurbeinin eru styttri
og fingurinn verður því svolítið kubbslegur.
Nöglin er einnig styttri og breiðari
Vantar á fingurinn
Leikarinn Vince Vaughn missti framan af öðr-
um þumalfingrinum í bílslysi þegar hann var
sautján ára. Hann lætur það þó ekki trufla
sig og gerir oft grín að fingrinum með því að
kalla hann „getnaðarlim með nögl“ enda
líkist fingurinn einum slíkum eftir slysið.
Sjötta táin Spjallþátta-
drottningin Oprah Winfrey virðist vera með sex
tær á öðrum fæti, en aukatáin er við hliðina á
litlu tánni. Fótaaðgerðafræðingur, sem skoðað
hefur tærnar á Winfrey, segir hins vegar að um
sé að ræða einhvern kvilla sem valdi þessu,
eins og útskeifu eða flatan fót, sem gerir það
að verkum að beinið gengur til með þessum
hætti. Og lítur út fyrir að vera sjötta táin.