Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Side 9
Nánari upplýsingar á rsk.is
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Skil á upplýsingum
vegna
skattframtals 2016
Skila skal eftirtöldum upplýsingum
vegna framtalsgerðar 2016 á rafrænu formi
á þjónustusíðunni skattur.is.
Launa- og verktaka-
upplýsingar o.fl.
Skilaskyldir eru allir þeir sem innt
hafa af hendi launagreiðslur,
hlunnindi (þ.m.t. kaup- og
söluréttarsamningar), lífeyri,
bætur, styrki, happdrættis- og
talnavinninga (skattskylda
sem óskatt skylda), greiðslur
til verktaka fyrir þjónustu (efni
og vinnu) eða aðrar greiðslur
sem framtalsskyldar eru og/eða
skattskyldar.
Bifreiðahlunnindamiðar
Skilaskyldir eru allir þeir sem í
rekstri sínum eða annarri starf-
semi hafa látið launamönnum
eða öðrum vélknúin ökutæki í
té til afnota.
Hlutafjármiðar
Skilaskyld eru öll hlutafélög,
einkahlutafélög, samlagshluta-
félög og sparisjóðir.
Stofnsjóðsmiðar
Skilaskyld eru öll samlagsfélög,
sameignarfélög og samvinnu-
félög, þ.m.t. kaupfélög.
Viðskipti með hlutabréf/
afleiður og önnur verðbréf
Skilaskyldir eru bankar, verð-
bréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar
sem annast kaup og sölu, um-
boðsviðskipti og aðra umsýslu
með hlutabréf/afleiður og öll
önnur verðbréf.
Innstæður
Skilaskyldar eru allar fjármála-
stofnanir og aðrir aðilar sem taka
við fjármunum til ávöxtunar, eða
hafa milligöngu um ávöxtun eða
aðra ráðstöfun fjármuna.
Hlutabréfakaup
skv. kaupréttarsamningi
Skilaskyld eru öll hlutafélög sem
gert hafa kaupréttarsamninga við
starfsmenn sína samkvæmt stað-
festri kaupréttaráætlun. Sama á
við um söluréttar samninga.
Takmörkuð skattskylda
- greiðsluyfirlit
Skilaskyldir eru þeir sem innt
hafa af hendi hvers konar
greiðslur til erlendra aðila og
annarra, sem bera takmarkaða
skattskyldu hér á landi.
Lánaupp lýsingar
Bankalán, fasteignaveðlán,
bílalán og önnur lán. Skilaskyld-
ar eru allar fjármálastofnanir
(bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir,
tryggingafélög, fjármögnunar-
leigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé
til einstakl inga og lögaðila.
Greiðslur fyrir leigu
eða afnot
Skilaskyldir eru þeir sem innt
hafa af hendi hvers konar
greiðslur fyrir leigu eða afnot
af lausafé, fasteignum og
fasteignaréttindum eða öðrum
réttindum.
Fjármagnstekjur
Þeir aðilar sem innheimt hafa
vexti skulu skila upplýsingum
um slíkar fjármagnstekjur og
tilgreina sundurliðun á móttak-
endur og þá staðgreiðslu fjár-
magnstekjuskatts sem haldið
hefur verið eftir. Hér er einkum
um að ræða innheimtu aðila,
t.d. lögfræðistofur.