Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Side 10
Helgarblað 22.–25. janúar 201610 Fréttir
GÆÐI•ÞEKKING•ÞJÓNUSTA
Góð þjónusta
í yfir 60 ár
Gæðahreinsun þvottahús Dúkaleiga
fyrirtækjaþjónusta sækjum & sendum
Efnalaugin Björg Háaleitisbraut 58-60, 108 reykjavík sími: 553-1380
Harma að áhyggjur um
álverið voru hunsaðar
Hvalfjarðarsveit gagnrýnir viðbrögð Umhverfisstofnunar við ábendingum um mengun álversins á Grundartanga
S
veitarstjórn Hvalfjarðar
sveitar harmar að Umhverfis
stofnun hafi ekki tekið tillit til
ábendinga og athugasemda
sveitarfélagsins við útgáfu á
nýju starfsleyfi til Norðuráls sem gef
ur fyrirtækinu heimild til aukinnar
framleiðslu í álverinu á Grundar
tanga. Sex af sjö sveitarstjórnar
mönnum samþykktu bókun þess
efnis í síðustu viku en þeir fögnuðu
þá einnig að Norðuráli hafi verið
settar skorður um losun mengandi
lofttegunda.
Skortir upplýsingar
Umhverfisstofnun gaf starfsleyfið
út þann 22. desember síðastliðinn.
Norðurál fékk þá leyfi til að auka
framleiðslu sína úr 300 þúsund tonn
um á ári í 350 þúsund tonn. Starfs
leyfið gildir til desembermánaðar
2031 og kemur í stað eldra leyfis sem
hefur nú verið fellt úr gildi.
Sveitarstjórnin fjallaði um leyfis
veitinguna þann 12. janúar. Á fund
inum var vísað í bréf sem sveitar
félagið sendi Umhverfisstofnun í
október í fyrra sem inniheldur ýmsar
ábendingar og athugasemdir um
hverfis, skipulags og náttúru
verndarnefndar Hvalfjarðarsveitar. Í
bréfinu, sem DV hefur undir höndum,
er bent á og tekið undir gagnrýni um
að Norðurál hafi umsjón með vöktun,
mælingum, og mati á þeim, ásamt út
gáfu skýrslu, vegna eigin mengunar.
Hvalfjarðarsveit gagnrýnir þar einnig
að upplýsingar sem varða umhverfis
vöktun berist almenningi eftir á enda
útiloki það viðbrögð við hugsanlegri
mengunarhættu. Sveitarfélagið óski
því eftir símælingum, sér í lagi hvað
varði losun flúors, og öflugri upplýs
ingagjöf í rauntíma.
„Mengunaróhöpp hafa átt sér stað
hjá Norðuráli en verulega hefur skort
á upplýsingar til almennings þegar
það hefur gerst. Hvalfjarðarsveit telur
nauðsynlegt að bæta úr þessu,“ segir í
bréfi sveitarfélagsins.
Mismunandi kröfur
Sveitarfélagið gerði aðrar
athugasemdir, þar á meðal að starfs
leyfið innihaldi enga umfjöllun um
lýsingu eða ljósmengun frá álverinu.
Mikið hafi borið á kvörtunum vegna
slíkrar mengunar frá iðnaðarsvæð
inu á Grundartanga. Fulltrúar þess
benda einnig á langan gildistíma
starfsleyfisins og taka undir með
Faxaflóahöfnum, sem á lóðirnar á
iðnaðarsvæðinu, að komið verði á
upplýsingamiðlun til íbúa í grennd
við Grundartanga. Sveitar félagið
fari því fram á að byrjað sé á að veita
Norðuráli tímabundið starfsleyfi þar
til að „ljóst sé með raunmælingum
að fyrirtækið geti haldið sig innan
nýrra og hertra marka“. Í bréfinu er
tillagan að starfsleyfinu einnig borin
saman við leyfi Fjarðaáls á Reyðar
firði. Samanburðurinn sýni að los
unarmörk flúors í álverinu þar séu
þrengri.
„Hvalfjarðarsveit telur eðlilegt og
rétt að samræmi sé milli starfsleyfa
álvera hvað losunarmörk varðar og
fer fram á að Umhverfisstofnun út
skýri hvers vegna losunarmörk Alcoa
Fjarðaáls séu önnur en Norðuráls á
Grundartanga.“
Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri
hjá Umhverfisstofnun, sagði í viðtali
við RÚV skömmu fyrir áramót það
ekki rétt að álverið sjái sjálft alfarið
um mælingar á eigin mengun. Það
væri misskilningur að mengunar
mælingar væru alfarið í höndum
iðnfyrirtækjanna á Grundartanga.
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri Hval
fjarðarsveitar, vildi ekki tjá sig um
niðurstöðu Umhverfisstofnunar
þegar DV óskaði eftir viðbrögðum
hans. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Grundartangi Norðurál má samkvæmt nýju starfsleyfi framleiða 350 þúsund
tonn af áli á ári eða 16% meira en fyrirtækið gerði í fyrra. Mynd SkeSSuHorn