Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Side 41
Helgarblað 22.–25. janúar 2016 Kynningarblað - Betra líf 3
Kökulist margverðlaunað
og landsþekkt bakarí
K
ökulist er landsþekkt fyrir
súrdeigsbrauðin sín og
leggur fólk víðs vegar að af
landinu leið sína í Köku-
list til að nálgast súrdeigs-
brauðin. „Það kemur fólk alla leið frá
Tálknafirði til okkar til að kaupa súr-
deigsbrauðin. Margir kaupa mörg
brauð til að skella í frysti og þar með
tryggja sér gott brauð fram í tímann,“
segir Jón Rúnar Arilíus, annar eig-
andi Kökulistar. Jón á Kökulist með
eiginkonu sinni, Elínu Maríu Niel-
sen, sem þau stofnuðu árið 1997.
Fyrirtækið er í verslunarmiðstöðinni
Firði í Hafnarfirði.
Landsþekkt fyrir
súrdeigsbrauðin sín
„Okkar markmið er að heilla þig með
hollum brauðum sem öll eru sykur-
laus, fitulaus og gerlaus. Við erum
einnig með 100% speltbrauð en við
höfum horfið til fortíðar þegar kem-
ur að brauðbakstri og góðum kök-
um þar sem við notum eingöngu
gæða hráefni,“ segir Jón. „Því er löng
vinnsla á brauðunum. Við gefum
okkur tíma til að gera vörurnar okk-
ar eins góðar og mögulegt er,“ bæt-
ir hann við. Eins og áður sagði kem-
ur fólk alls staðar að af landinu til að
versla brauðin. „Sumir hafa hringt og
lagt inn pöntun áður en þeir leggja af
stað til höfuðborgarinnar,“ segir Jón.
„Það nýjasta sem við bjóðum upp á
núna eru rúgbrauð sem eru afbrigði
af dönskum rúgbrauðum en í þeim
eru heilkorn, enginn sykur eða hveiti
og engin rotvarnarefni eða geymslu-
efni. Þau eru sætuð með döðlum og
trönuberjum og flokkast undir „of-
urfæði“. Vert er að nefna að við tók-
um hveiti og hvítan sykur úr sumu af
kökunum okkar og settum inn spelt,
hrásykur og heilkorn í staðinn. Það
er því orðið beinlínis hollt að fá sér
sætabrauð,“ segir Jón.
Eigandi Kökulistar
margverðlaunaður
Jón hefur unnið til ótal margra verð-
launa en hann hefur meðal annars
unnið til gull-, silfur- og bronsverð-
launa á tveimur heimsmeistara-
keppnum og á Ólympíuleikunum.
Jafnframt vann hann til tvennra
gullverðlauna á Norðurlandamóti
í kökuskreytingum. Einnig hefur
hann unnið keppnina Bakari ársins
og verið Íslandsmeistari í köku-
skreytingum hér heima sem og
unnið til Gordon bleu-verðlaunanna
sem er æðsta orða matreiðslumeist-
arans. Auk þess hefur hann dæmt í
heimsmeistarakeppni í Konditori.
Nýtt bakarí á Suðurnesjum
Í byrjun desember keyptu hjónin
Valgeirs bakarí í Njarðvík og eru nú
þegar nýjungar Jóns komnar í bak-
aríið og er enn fleira væntanlegt á
næstu dögum samkvæmt honum.
„Það kom mér í opna skjöldu hvað
Suðurnesjamenn eru óskaplega
vinalegir og kærleikurinn er algjör-
lega í fyrirrúmi hjá fólkinu sem býr
hérna. Það er mikil manngæska hér
á svæðinu. Margir búnir að koma og
bjóða mig velkominn á svæðið. Mín
upplifun er eins og ég sé að koma
aftur en ekki í fyrsta skiptið. Mót-
tökurnar hafa verið meiri háttar og
er bróðurkærleikurinn mjög mikill.
Þetta er einstakt. Ég er bara mjög
hrærður,“ segir Jón. n