Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Side 82
Helgarblað 22.–25. janúar 201662 Menning
R
ómantíska dramakvik
myndin The Room er af
mörgum talin ein versta
mynd allra tíma. „Citizen
Kane vondu myndanna,“
sagði einn kvikmyndafræðingur.
Þegar myndin var fyrst sýnd í Los
Angeles árið 2003 gerðist það ósjald
an að áhorfendur gengu út og báðu
um endurgreiðslu – eða svo segir
sagan. Myndin hefur þrátt fyrir þetta
(eða kannski einmitt þess vegna)
öðlast goðsagnakennda stöðu í
jaðarkvikmyndaheiminum og nýtur
sífellt meiri vinsælda meðal költ
myndanörda.
Bíó Paradís stendur fyrir sérstakri
þátttökusýningu á The Room föstu
daginn 22. janúar og aftur viku síðar.
DV ræddi við Gunnar Tómas Kristó
fersson kvikmyndafræðing um The
Room, dularfulla kvikmyndagerðar
manninn Tommy Wiseau og töfrana
sem gera myndina svo stórkostlega
vonda.
Snilldarlega órökrétt
The Room er rómantískt drama um
bankamanninn og öðlinginn Johnny
sem lifir góðu lífi þar til eiginkona
hans fer að halda við besta vin hans,
Mark. „Planið var að gera alvöru
bandaríska epík og innblásturinn
var fenginn frá Tennessee Williams
og Rebel Without a Cause,“ segir
Gunnar Tómas um myndina.
En margt vantaði upp á til að hún
næði sama klassa og þessar myndir.
Sagan þykir léleg, hin fjölmörgu ljós
bláu ástaratriði fáránleg, samtölin
tilgerðarleg og handritið hræðilega
gloppótt ef ekki óskiljanlegt. Þó að
sagan innihaldi harmræna þætti,
eins og krabbamein, eiturlyf og
þunganir, gleymast þeir þó fljótt og
hafa sjaldnast áhrif á framvinduna,
jafnvel persónur hverfa sporlaust úr
myndinni.
Útlitið er ekki skárra en notast
var við viðvaningslega sviðsmynd og
síendurtekin skot af Golden Gate
brúnni til að sýna að atburðirn
ir gerðust í San Francisco. Rúsínan
í pylsuendanum er hörmulegur of
leikur aðalleikarans, handritshöf
undarins, leikstjórans og framleið
andans Tommys Wiseau. En í þessari
súpu glappaskota varð eitthvað
einstakt til. „Allt sem hann gerir er
órökrétt á einhvern snilldar
legan máta,“ segir Gunnar
Tómas um Wiseau.
Dularfullur furðufugl
Eldhuginn á bak við myndina,
Tommy Wiseau, er dularfullur furðu
fugl með sítt svart hár og risavaxið
egó, óskýran framburð og óræðan
hreim. „Hann gefur ekki upp neinar
upplýsingar um sjálfan sig. Hann
segist vera frá New Orleans en er lík
lega AusturEvrópumaður sem flúði
í gegnum Frakkland og til Bandaríkj
anna,“ segir Gunnar.
Wiseau er sagður hafa hagnast
mikið á sölu gervileðurjakka í San
Francisco og notað aleiguna, sex
milljónir dollara, til að láta kvik
myndadraum sinn rætast. „En það er
samt mjög óljóst hvaðan peningur
inn kemur,“ segir Gunnar. Kenningar
um myndina eru margar og ólíkar,
en ein áhugaverð
asta er að myndin hafi í raun verið
gerð til að þvo illa fengið fé – enda
virtist fjármagnið sem Wiseau gat
lagt fram óendanlegt.
Allt framleiðsluferlið var eins og
farsi og fjölmargar sögur, sannar eða
lognar, hafa verið sagðar af sérvisku
Wiseaus. Þegar myndin var tilbúin
leigði Wiseau kvikmyndahús undir
myndina og sýndi í tvær vikur – en ef
myndir er sýndar svo lengi eru þær
gjaldgengar til Óskarsverðlaunanna.
Þó að fyrstu viðtökur hafi eflaust ver
ið vonbrigði fyrir Wiseau gat hann
varla séð fyrir þá atburðarás sem síð
ar fór af stað.
„Undir lok sýningartímans var
búið að koma upp miða í glugganum
sem sagði: „No Refunds!“ og til
vitnun í gagnrýni sem sagði það að
horfa á myndina væri eins og að fá
hnífstungu í hausinn,“ segir Gunnar
Tómas.
Nokkrir ungir kvikmyndaáhuga
menn urðu forvitnir, fóru á myndina
og fannst drepfyndið hversu mis
heppnuð hún var. Þeir hófu að
breiða út boðskapinn. Myndin vann
sér smám saman inn költstöðu í
kvikmyndaheiminum og haldnar
voru sérstakar þátttökusýningar þar
sem áhorfendur tóku virkan þátt í
myndinni með hrópum, koddaslag
og plastskeiðakasti.
Misskilur mannleg samskipti
En hvað er það við þessa vondu
mynd sem gerir hana svona góða?
„Það er til afskaplega mikið af
vondum bíómyndum, en flestar
þeirra eru bara vondar og leiðin
legar. En það er samansafn af þáttum
í þessari mynd sem gera hana á ein
hvern hátt öðruvísi. Þetta byrjar ef
laust allt með djúpstæðum misskiln
ingi Wiseaus á því hvernig bandarísk
menning virkar. Það mætti svo skrifa
heila heimspekiritgerð um það
hvernig hann misskilur og mistúlkar
mannleg samskipti. Þetta gerir
það að verkum að maður skilur
ekkert. Maður mætir í bíó og skil
ur ekki neitt hvað fólkinu sem gerði
myndina gekk til og það gefur henni
þessa goðsagnakenndu stöðu,“ segir
Gunnar Tómas.
Hróður myndarinnar breiðist
stöðugt út og nú eru bandarísku leik
ararnir James Franco og Seth Rogen
að framleiða mynd um Tommy
Wiseau þar sem sá fyrrnefndi leikur
aðalhlutverkið. Myndin byggir á
bókinni Disaster Artist eftir Greg
Sestero, sem lék Mark, besta vininn
sem stakk undan Johnny í The Room.
Wiseau hefur tekið allri athyglinni
fegins hendi og heldur því nú fram
að hann hafi allan tímann ætlað sér
að gera kolsvarta kómedíu, en aðrir
þátttakendur í myndinni segja það
óumdeilt að hún hafi verið gerð í
fúlustu alvöru. n
Persónugerður markpóstur
er mælanlegur miðill og árangursríkur
www.umslag.is2010- 2014
Umslag tryggir hámarksárangur við
útsendingu markpósts
• Mismunandi skilaboð
• Mismunandi myndir
• Mismunandi markhópar
Við getum prentað nöfn og heimilisföng á allan mark-
póst. Stór og lítil upplög. Markhópalistar eru í boði sé
þess óskað eða við áritum eftir þínum excel lista.
}Ein prentun
*Samkvæmt könnun Gallup á meðal markaðsstjóra um notkun á miðlum árið 2015 mun markpóstur vera næsta val á eftir internetinu.
31%
auglýsenda ætla að
nota markpóst meira
árið 2015*
- hvað ætlar þú að gera?
Besta vonda bíó-
mynd allra tíma
n Ofleikið drama sem hefur öðlast goðsagnakennda stöðu n Þátttökusýning á The Room í Bíó Paradís
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Svona tekur maður þátt
Rakel Ósk Þorgeirsdóttir er á meðal þeirra
sem munu veita leiðbeiningar um hvernig
hægt sé að taka þátt í sýningunni í Bíó
Paradís. DV fékk hana til að nefna nokkur
dæmi.
1 Koddaslagur: „Fólk getur komið með kodda. Þegar það
koma koddaslagssenur í myndinni þá fer
salurinn líka í koddaslag.“
2 Plastskeiðakast: „Þegar keyptir voru rammar til að hafa í
sviðsmyndinni vildi Tommy Wiseau ekki
láta myndir af fólki í rammana heldur
halda myndunum sem voru, en það voru
myndabankamyndir af plastskeiðum.
Þannig að í hvert skipti sem maður sér
plastskeiðar í myndinni þá hrópar maður
SPOON! og kastar plastskeiðum í tjaldið.“
3 Fótboltakast: „Í Banda-ríkjunum hefur skapast hefð fyrir
því að fólk kasti amerískum fótbolta á
milli sín meðan á myndinni stendur. En
í Danmörku þar sem ég hef tekið þátt í
sýningum var seldur bjór og þá þótti of
hættulegt að vera að kasta bolta.“
4 „Because you are a woman!“
„Í atriði þar sem Claudette talar við
dóttur sína Lísu og segir að hún sé of
ósjálfbjarga til að lifa án eiginmannsins
Johnny, þá öskrar allur salurinn: AF ÞVÍ AÐ
ÞÚ ERT KONA!“
Góðar vondar
myndir
Gunnar Tómas segir The Room
smellpassa inn í ákveðna hefð
kvikmyndanna sem mætti kalla góðar
vondar myndir.
„Þetta eru myndir sem eru svo
vondar að það verður upplifun að horfa
á þær, og því verða þær góðar. Yfirleitt
sér maður ekki í gegnum fantasíuna í
kvikmyndum, en í svona myndum sér
maður þessi tengsl raunveruleikans og
fantasíunnar hrynja. Fólk fer að njóta
þess að sjá í gegnum blekkinguna. Í
gegnum mistökin benda þessr myndir
á sama tíma á ákveðna galla og snilld
í menningu okkar. Þá fer fólk líka að
fagna því lélega. Það skiptir máli fyrir
költmyndir að hafa ákveðið goðsögu-
legt gildi. Þarna er fólk með sýn sem
er næstum því óskiljanleg og Tommy
Wiseau smellpassar inn í þessa hefð,“
segir Gunnar.
„Birdemic er annað dæmi um slíka
mynd en svo er leikstjórinn Ed Wood
náttúrlega ókrýndur konungur slíkra
mynda, en hann gerði meðal annars
Plan9 from outer space og Glen and
Glenda á sjötta áratugnum. Þetta voru
mjög vondar myndir sem nutu svo
vaxandi vinsælda á sjöunda og áttunda
áratugnum.“