Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Side 90
Helgarblað 22.–25. janúar 201670 Fólk
n Hljómsveitin Eva vill breyta heiminum n Syngja um flóttamenn
V
ið erum kannski ekki
á meðal allra mestu
„júrónörda“ en ég veit að
það hefur verið leynd-
ur draumur hjá Siggu að
syngja í þessari keppni. Hún var
lengi spéhrædd og vildi ekki viður-
kenna það enda virðuleg listakona.
Sjálf á ég í svona ástar/haturssam-
bandi við þessa keppni og frekar
dreymt um að semja lag fyrir
keppnina. Lengi vel voru þessi lög
frekar einsleit, frá ráðsettum körl-
um, en í dag er fjölbreytnin meiri
og það er góð tilfinning að komast
í gegnum síuna,“ segir Vala Hösk-
uldsdóttir en hún og Sigríður Eir
Zophaníasardóttir mynda hljóm-
sveitina Evu.
Nýliðarnir bestir
Eva á lagið Ég sé þig í Söngvakeppn-
inni 2016 en lagið fjallar um flótta-
fólk. „Þeir sem skilja boðskapinn og
inntakið í laginu eru mjög ánægð-
ir og þeir sem sýna okkur stuðn-
ing eru virkilega miklar grúppíur,
sem er gaman. Ég er ekki sigurviss
en ég veit að við erum með gott
lag og eigum góða möguleika. Ég
er hræddust við nýliðana. Það eru
sterkustu lögin að mínu mati. Þetta
verður mjög hörð keppni í ár.“
Conchita í uppáhaldi
Aðspurð nefnir Vala lag Conchitu
Wurst sitt uppáhalds Eurovision-
lag. „Mér fannst hún alveg mögn-
uð! Ég var að vinna á elliheimilinu
Grund á þessum tíma og fannst
ótrúlega gaman að horfa á þessa
skeggjuðu konu með gamla fólkinu
sem átti sumt erfitt með sig en var
svo farið að halda með henni í lok-
in. Conchita gerði sér grein fyrir að
Eurovision væri góður staður fyrir
aktívisma og til að koma mikilvæg-
um skilaboðum á framfæri.“
Til að skapa nýjan heim
Lagið Sjálfstæðar konur eru
sjarmerandi er líklega þekktasta
lag hljómsveitarinnar Evu hing-
að til. „Ég veit að mörgum konum
þótti þetta valdeflandi lag. Ein vin-
kona okkar notaði það til að kom-
ast yfir ástarsorg. Hún fór í bústað
og var með lagið á endurspilun þar
til hún jafnaði sig. Við erum til fyr-
ir svona; til að hafa áhrif. Ekki til að
troða einhverju ofan í kokið á fólki
heldur til að hreyfa við því og skapa
nýjan heim.“
Strákar framkvæma bara
Stelpurnar kunnu lítið á hljóð-
færi þegar þær ákváðu að stofna
sveitina. „Sigga kunni bara þrjú
grip á gítar og var mjög lengi að
skipta á milli og alltaf illt í puttun-
um. Hún er greinilega fljót að læra
enda orðin mjög góð eftir þessi tvö
ár sem við höfum verið band. Þetta
var pælingin. Strákar eru nefnilega
oft betri í að framkvæma bara. Auð-
vitað er gott að vanda sig og hugsa
en það er líka gott að henda bara
í þetta, gera það sem þarf að gera
og æfast svo á leiðinni. Það er klár-
lega eitthvað sem við megum læra
af bræðrum okkar. Samfélagið er
fljótara að dæma ef kona gerir mis-
tök. Við verðum að bylta þeirri hug-
mynd og gera fullt af mistökum. Ef
margar konur eru að framkvæma
alls konar hluti hefur samfélagið
ekki tíma til að refsa okkur. Við get-
um alveg breytt hlutunum.“
Hefst allt á einstaklingnum
Sigríður er önnur þeirra sem stjórna
útvarpsþættinum Sigga og Lolla á
Rás 2 en Vala er listakona. „Þessa
dagana erum ég og samstarfskona
mín að vinna með Akureyringum
að Borgarasviðinu hjá Leikfélagi
Akureyrar. Við erum að einbeita
okkur að þessum miklu tímamótum
hjá Íslendingum og sérstaklega Ak-
ureyringum nú þegar við erum að
taka á móti fólki á flótta. Samfélagið
og líðandi stund er mér mjög hug-
leikið í list minni og þetta verkefni
er efst á baugi núna. Það er svo mik-
ilvægt að gera þetta vel og ekki bara
hér á Íslandi heldur í öllum heimin-
um. Þetta hefst allt á einstaklingn-
um, hvar sem maður getur gripið
niður, fá fólk til að skoða ótta sinn
og afhlaða hann.“
Þurfum glimmer og pallíettur
Aðspurð segir hún fatavalið í
söngvakeppninni ekki ákveðið. „Ég
verð allavega í vesti og helst í gull-
slegnu vesti líkt og Pálmi Gunnars-
son klæddist í Gleðibankanum. Ég
er ferlega spennt og er eiginlega að
uppgötva það núna í fyrsta skiptið
hvað þessi keppni er mikilvæg fyr-
ir okkur Íslendinga. Jólin eru búin
og allt of margir búnir að taka nið-
ur jólaseríurnar. Við þurfum smá
glimmer og pallíettur. Eurovision er
okkar eina von til að komast í gegn-
um skammdegið.“ n
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Eurovision nauðsyn-
legt í skammdeginu
Hljómsveitin Eva Vala segir konur mega læra af strákum að láta bara slag standa.
myNd Þormar vIgNIr guNNarSSoN
Hljómsveitin Eva Eva varð til þótt stelpurnar kynnu lítið á hljóðfæri. myNd Þormar vIgNIr guNNarSSoN „Ein vinkona okkar
notaði það til að
komast yfir ástarsorg.“
V A R M A D Æ L U R
Gæði, þjónusta og gott verð.
Hámarks orkusparnaður.
NÝJUNG Í LOFT Í VATN VARMADÆLUM
EINFÖLD Í UPPSETNINGU
ÁLAGSSTÝRÐ
HLJÓÐLÁT
ALLT AÐ 80% ORKUSPARNAÐUR
ÍBÚÐARHÚS - SUMARBÚSTAÐ - IÐNAÐARHÚS
COP 5,0