Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Qupperneq 10

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Qupperneq 10
» FÉLAGSMÁL « innan BSRB. í kjaramálum verða sjaldnast stökkbreytingar, það er verið að vinna með mál og þoka þeim áfram skref fyrir skref, oft í mörg ár. Þetta er erfitt að skilja því allir telja sína sérstöðu það mikla að hún eigi að hafa forgang. Hin seinni ár hefur öll samningagerð harðnað og stjórnvöld oftar gripið inn í með hvers kyns aðgerðum. Viðsemjendur okkar hafa einnig snúið bökum saman og komið fram sem samein- aður samningsaðili. Síðustu tvö ár hefur þjóðarsátt verið í gildi, launa- fólk hefur sem fyrr tekið á sig þungar byrðar við að ná niður verðbólgu. í dag er fólk uggandi yfir því hvað haustið ber í skauti sér, en samn- ingar alls launafólks eru þá lausir. Margt hefur þó áunnist, bæði hvað varðar röðun starfsheita í launa- flokka og fjölgun starfsaldursþrepa, ásamt hagsmunamálum er snerta menntun og félagsleg réttindi. Má þar nefna lengingu námsleyfis úr þrem mánuðum í níu mánuði eftir tólf ára starf. Mat á viðbótarmennt- un, reglur um endurmenntunar- kostnað og tilomu K-staða. Réttindi lausráðinna, lenginu barnsburðar- leyfis, rýmkun á veikindarétti og færsla á réttindum frá einum vinnu- stað til annars. Allt eru þetta mál sem launafólk hefur ýmist sameigin- lega staðið að eða eitthvert félag- anna náð fram og hinir því einnig fengið. Hvað viðbótarsamninga hjúkrunarfræðinga úti á landsbyggð- inni áhrærir hafa þar oft náðst umtals- verðar kjarabætur ýmist við sveitar- féiögin eða stjórnir heilbrigðisstofn- anna. Með tilkomu nýrra verka- skiptalaga er tóku gildi sl. ár eru í reynd flestir hjúkrunarfræðingar ríkisstarfsmenn. Ég sé fyrir mér að það verður átakamál í þeim samn- ingum er í hönd fara í haust að halda því sem þar hefur áunnist og reyna að gera enn betur þannig að það komi öllum hjúkrunarfræðingum til góða. Úrsögn okkar úr BSRB hefur margþætt áhrif og við blasa ný verk- efni. Hver eru þau? - Umræðan um úrsögn okkar úr BSRB á sér langa sögu sem allir hjúkrunarfræðingar í HFÍ þekkja. Eftir niðurstöðu allsherjaratkvæða- greiðslunnar árið 1983 var það vilji okkar félagsmanna að við værum áfram í BSRB. Ég taldi okkur því skylt að starfa þar af heilum hug sem eitt af bandalagsfélögunum. Vilji félagsmanna sl. ár var skýr, þar sem tæp 86% vildu úrsögn úr bandalag- inu. Það blasa því mörg verkefni við. Að mínu mati skiptir það okkur nú höfuðmáli að efla okkur og styrkja sem félag, sækja fram og eflast enn meir faglega og stéttarlega, verða enn sterkari sem þjóðfélagslegt afl. Við höfum verið að vinna með marg- vísleg verkefni í vor er tengdust BSRB, s.s. að stofna starfsmenntun- arsjóð HFÍ og semjareglurum hann. Par koma inn starfsmenntunarsjóður HFI hjá Reykjavíkurborg og Akur- eyrarbæ. Pað er von mín að sjóður- inn eflist og í komandi samningum á að leggja mikla áherslu á það að ná fram umtalsverðum kjarabótum í þeim málum. Hvað orlofshúsamálin áhrærir rennur nú framlag vinnuveit- enda 0,25% af fullum launum hjúkr- unarfræðinga óskipt til félagsins, en áður skiptist það þannig að BSRB fékk 60% en HFÍ 40% af framlag- inu. Sú stefna var tekin að leigja or- lofshús út um allt land fyrir félags- menn í sumar, en endurskoða síðan málin í haust með tilliti til þess hvaða stefnu félagið vill taka í framtíðinni. Hvernig standa sameiningamál hjúkrunarfélaganna nú? - Það hefur mikil orka og tími farið í sameiningarmálin þau ár sem ég hef verið formaður. Samstarf mitt við alla formenn Fhh hefur verið með miklum ágætum og við í sam- einingu verið að vinna að hinum ýmsu hagsmunamálum stéttarinnar í heild. í dag er staðan sú að bæði félögin hafa lagt fram yfirgripsmikla stefnumótun hvað varðar stofnun nýs hjúkrunarfélags. Okkar tillögur sem byggja á eldri tillögum og stefnu félagsins í margvíslegum málum voru lagðar fram á fulltrúafundinum í maí. Þar var einnig kosið í laga- nefnd sem hefur það verksvið að semja ásamt fulltrúum Fhh drög að lögum nýs hjúkrunarfélags. Ég ber fyllsta traust til formannsins okkar og hans stjórnar að stýra því máli áfram þannig að nýtt og öflugt félag íslenskra hjúkrunarfræðinga líti dagsins ljós sem fyrst. Pað er ein- dreginn vilji félagsmanna í báðum félögunum, undan því verður ekki vikist, enda til heilla allri hjúkrunar- stéttinni. Hvað segirðu um þœr tillögur sem liggja fyrir um viðbótar- og fram- haldsnám fyrir hjúkrunarfrœðinga? - Þau ár sem ég hef verið for- maður í félaginu hefur mikil breyting átt sér stað í menntunarmálum stétt- arinnar. Hjúkrunarskóli Islands hætti störfum árið 1986, og hjúkrun- arnám er eftir það alfarið í háskóla, Háskóla íslands, og seinna bættist við hjúkrunarnám í Háskólanum á Akureyri. Nýi hjúkrunarskólinn hætti sinni starfsemi árið 1990 og þar með er allt nám hjúkrunarfræðinga í háskóla. Þetta er stórkostlegur áfangi fyrir okkur sem stétt og í takt við þá þróun sem átt hefur sér stað í málefnum hjúkrunarfræðinga víða um heim. Slíkt gerist þó ekki af sjálfu sér, heldur er þetta árangur af áratuga baráttu framsýnna braut- ryðjenda innan stéttarinnar. Það rof sem myndaðist í þessari þróun hjá hjúkrunarfræðingunum sjálfum er sem betur fer að brúast og þær til- lögur sem nú eru í burðarliðum hvað viðbótar- og framhaldsnámi okkar viðvíkur tel ég að séu góðar bæði hvað varðar hjúkrunarfræðingana sjálfa og hjúkrunarþjónustuna á ís- landi. / þinni tíð hafa félagsgjöld verið hœkkuð, ertu sátt við rekstur félags- ins eins og hann hefur verið? - Þegar ég tók við sem formaður í félaginu voru félagsgjöldin einungis af föstum launum félagsmanna. 10 HJÚKRUN 2/9i - 67. árgangur

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.