Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Síða 23
LAUSAR STOÐUR
LANDSHTALINN
Geðdeild Landspítalans
Hjúkrunarfræðingar! Við þurfum mjög á vinnuframlagi
ykkar að halda. Á undanförnum árum hafa orðið miklar
breytingar á húsakosti og allri aðstöðu á geðdeild Land-
spítalans, alltfrá bráðamóttöku til endurhæfingar. Mögu-
ieiki er á fullu starfi eða hlutastarfi, jafnvel sveigjanlegum
vinnutíma.
Boðið er upp á skipulagða starfsaðlögun. Sækja má um
húsnæði og barnaheimili.
Upplýsingargefnar hjáhjúkrunarforstjóra í síma 602600.
LANDSPITALINN
Hjúkrunarfræðingar!
Lausar stöður á almennu hjúkrunarsviði
Um er að ræða stjórnunarstöður; hjúkrunarstjóra, hjúkrunar-
deildarstjóra og aðstoðarhjúkrunardeildarstjóra, K-l og K-ll
stöður. Stöður hjúkrunarfræðinga, fullt starf eða hlutastarf,
vaktavinna, dagvinna eða fastar næturvaktir.
Boðið er upp á:
- Einstaklingshæfða starfsaðlögun með leiðbeinanda.
- Sveigjanlegt vaktafyrirkomulag.
- Víða unnin þriðja hver helgi.
- Góð tækifæri til símenntunar.
- Ýmsar nýjungar eru á döfinni, s.s. frammistöðumat, sem
er að hefjast á öllum deildum.
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra, eða
hjá viðkomandi hjúkrunarframkvæmdastjórum í síma
601300.
Sjúkrahús Seyðisfjarðar
Hjúkrunarfrædingar. Sjúkrahús Seyðisfjarðar óskar eftir að
ráða hjúkrunarfræðing til starfa.
Húsnæði ásamt staðaruppbót og fleira í boði.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 97-21406.
Heilsugæslustöðin
Laugarási, Biskupstungum
Hjúkrunarforstjóri óskast að heilsugæslustöðinni í Laugar-
ási, Biskupstungum næsta vetur, eða frá 1. september 1991
til 1. júní 1992. Laun samkvæmt samningi fjármálaráðu-
neytis og HFl.
Upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri heilsugæslustöðvar-
innar í síma 98-68880 og Jón Eiríksson rekstrarstjóri í síma
98-65523, sem einnig tekur við umsóknum um starfið.
BORGARSPÍTALINN
Ágætu hjúkrunarfræðingar.
Á Borgarspítalanum eru miklir möguleikar fyrir hjúkrunarfræð-
inga til þroska í starfi vegna fjölbreyttra viðfangsefna, hvatn-
ingar og tækifæra til símenntunar. Einnig styrkir spítalinn hjúkr-
unarfræðinga sína með ýmsu móti. Má þar nefna:
- klíníska sérfræðinga í hjúkrun, sem m.a. eru til ráðgjafar um
hjúkrun sjúklinga með flókin hjúkrunarvandamál
- fagbókasafn, þar sem bókasafnsfræðingur annast upplýs-
ingaöflun að óskum starfsfólks
- hjúkrunarfræðsludeild, sem býður upp á fjölþætta möguleika
til símenntunar og ýmis konar faglega ráðgjöf
- sjúklingaflokkun, þar sem fylgst er með hjúkrunarálagi deilda.
Hjúkrunarfræðingar á Borgarspítalanum hafa frumkvæði að
fjölmörgum faglegum verkefnum, t.d. fræðslu fyrir sjúklinga og
starfsfólk, skráningu hjúkrunar o.fl. Pannig gefst þeim tækifæri
til að hafa áhrif á þróun hjúkrunar. Einnig er kennsla, ráðgjöf og
þátttaka í rannsóknum vaxandi þáttur í starfi hjúkrunarfræð-
inga.
Nú þegar eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga á hinum ýmsu
deildum spítalans. Verið velkomin og leitið frekari upplýsinga
hjá Lauru Sch. Thorsteinsson, hjúkrunarframkvæmdastjóra í
síma 696356.
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN HUSAVIK
Óskum að ráða hjúkrunarforstjóra til afleysinga í eitt ár frá
1. sept. 1991.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333 og
96-41855.
Heilsugæslustööin Húsavík
Sjúkrahúsið í Húsavík sf. Deildarstjóri óskast á öldrunardeild nú þegar eða eftir sam- komulagi. Ennfremur vantar hjúkrunarfræðinga til starfa. Upplýsingar gefur Aldís Friðriksdóttir hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333. SJÚKRAHÚS AKRANESS Áhugasama hjúkrunarfræðinga vantar sem fyrst á lyfjadeild og hjúkrunar- og endurhæfingardeild. Starfsandi og vinnu- aðstaða góð. Skemmtilegur starfsmannabústaður. Stutt til Reykjavíkur og samgöngur góðar. Ef þið hafið áhuga komið þá og skoðið sjúkrahúsið ykkur að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 93-12311.