Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Side 28
Hvað segirðu um offitu og sið-
frœði?
- Við höfum ekki yfir annarri
betri meðferð að ráða. Auðvitað
verður ekki öllum hjálpað með
atferlismeðferð. Einfaldlega vegna
þess að sumir hafa ekki áhuga á að
breyta sínum lífsháttum. Margs
konar aðferðir eru reyndar nú á
tímum til þess að vinna bug á offitu,
t.d. skurðaðgerðir, alltaf eru á boð-
stólum töflur sem eru sagðar vera
megrandi en eru það ekki. Fjöl-
margir vinna að rannsóknum við að
finna efni sem gæti auðveldað þungu
fólki að léttast, t.d. með því að finna
ekki til hungurs eða verða fyrr
mettir. Aðrar aðferðir eru notaðar
eins og t.d. að setja blöðru ofan í
maga. í rannsókn sem gerð var í Sví-
þjóð kemur í ljós að þessar blöðrur
hafa engin áhrif. Það ætti ekki að
nota slíkar aðferðir. Það er siðferði-
lega ekki rétt þegar vitað er að
árangurinn er enginn. Mig langar að
nefna hve oft heilbrigðisstéttir, bæði
læknar og hjúkrunarfræðingar fara
illa með of þungt fólk. Ég hafði konu
til meðferðar, hún hafði lést um 30
kg í meðferð hjá okkur. Hún lagðist
inn á annan spítala vegna gallblöðru-
bólgu. Henni var umsvifalaust sagt
að hún þyrfti að léttast. Samt var hún
stöðugt að léttast, hafði lést um 30
kg. Þarna hefðu hjúkrunarfræðingar
og læknar, siðferðilega, átt að afla
sér upplýsinga um hvort líkams-
þyngd væri jöfn, var hún að aukast
eða minnka?
Við eigum margt ólært varðandi
þennan hóp. Offita er eiginlega eina
heilsufarsástandið sem ekki er tekið
alvarlega. Fólk hugsar á þá leið að
þessir einstaklingar borði of mikið
og eigi að borða minna til þess að
iéttast, en það er einmitt það sem
þeir geta ekki. Peir þarfnasl hjálpar
við að lcera hvernig á að breyta þessu
atferli.
Sjóræningjar
notuðu þang sem sáraumbúðir,
þegar tréfóturinn særði
stúfinn.
Nú notum viö
KALTOSTAT — sáraumbúöir
KALTOSTAT
eru nýjar, áhrifaríkar sáraumbúðir til meðhöndlunar
á leggsárum, sárum sykursjúkra, æðabólgu,
ákomudrepi og legusári. Einnig á húðtökusári við
húðágræðslu.
KALTOSTAT
er unnið úr brúnu þangi og er samsett úr kalsíum- og
natríumalgínati, sem er ofið í mjúkar og þægilegar
umbúðir.
KALTOSTAT
getur sogað til sín mikið magn vökva, sem þýðir
lengri tíma milli umbúðaskipta.
KALTOSTAT
er brotið niður lífræðilega og þarf því ekki að fjar-
lægja fullkomlega úr sárinu.
Læknar og hjúkrunarfólk spara tíma og efni.
Sjúklingum er hlíft við óþarfa ertingu og sársauka.
Heildsöludreifing og frekari upplýsingar:
FARMASÍA ? W
Sími: 91-62 66 22
Fax: 91-62 39 19
24 HJÚKRUN 2/9i - 67. árgangur