Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Side 30
» NÁM «
margvíslegum starfsvettvangi. Með
aukinni klíniskri sérþekkingu hjúkr-
unarfræðinga er treystur grundvöllur
fyrir sjálfstæði í störfum og þróun
hjúkrunar. Klíniskt viðbótarnám
gefur þátttakendum tækifæri til að
auka þekkingu sína, en eflir jafn-
framt skilning þeirra á mikilvægi
símenntunar og gildi áframhaldandi
þekkingaröflunar.
Skilgreining:
Viðbótarnám hjúkrunarfræðinga í
námsbraut í hjúkrunarfræði er
u.þ.b. eins árs nám (verkleg þjálfun
meðtalin) í formi námskeiða á
ýmsum sérsviðum hjúkrunar. Námið
er klinísk sérhæfing á háskólastigi,
en lýkur ekki með háskólagráðu.
Pátttakendur:
Námið er ætlað hjúkrunarfræð-
ingum með grunnnám annað hvort
úr háskóla eða hjúkrunarskóla.
Væntanlega munu hjúkrunarfræð-
ingar með sérnám eða framhalds-
nám einnig sækja þetta nám í ein-
hverjum mæli.
Fyrirkomulag náms:
Viðbótarnámið er byggt upp af
nokkrum sjálfstæðum þáttum eða
námskeiðum, sem metin eru til ein-
inga svipað og nám í námsbraut í
hjúkrunarfræði. Nemendur sem
ljúka öllum námskeiðum í tilgreindu
námi og standast námsmat teljast
hafa lokið viðbótarnámi á sérsviði
hjúkrunar. Auk þess geta hjúkrun-
arfræðingar sem þess óska tekið eitt
eða fleiri námskeið innan skipulagðs
viðbótarnáms, án þess að ljúka nám-
inu í heild sinni.
Námstími:
Þeir nemendur, sem stunda sam-
fellt nám geta lokið því á u.þ.b. einu
ári. Við skipulag námskrár er gert
ráð fyrir að nemendur geti verið allt
að þrjú ár að ljúka viðbótarnámi, og
geti jafnvel stundað námið að ein-
hverju leyti samhliða vinnu. Þetta er
framkvæmanlegt til dæmis með því
að fresta starfsþjálfun eða valeining-
um.
Valnámskeið:
Gert er ráð fyrir að hluti bóknáms
sé valeiningar. Val á námskeiðum
þarf að samþykkja af umsjónar-
kennara viðbótarnáms. Valeiningar
geta verið námskeið í grunnnámi í
hjúkrunarfræði við HÍ eð HA, nám-
skeið í öðrum deildum háskóla eða
margvísleg námskeið á háskólastigi,
sem metin eru til eininga. Settar
verða viðmiðunarreglur um val
námskeiða fyrir hvert viðbótarnám
og þær kynntar nemendum.
Inntökuskilyrði:
Umsækjendur um viðbótarnám
þurfa að hafa íslenskt hjúkrunarleyfi
og a.m.k. eins árs starfsreynslu.
Nauðsynlegt kann að vera að tak-
marka fjölda þátttakenda í viðbótar-
námi og verður það þá tilkynnt sér-
staklega.
Undirbúningur nemenda:
Þátttakendur í viðbótarnámi
munu væntanlega hafa mjög ólíkan
undirbúning, bæði mislanga starfs-
reynslu og fjölbreytt grunnnám frá
mismunandi tíma. í>ví er mikilvægt
að nemendur viti við hvaða undir-
stöðuþekkingu er miðað, og verður
því tilgreint með fyrirvara fyrir hvert
nám á hvern hátt nemendur geta
undirbúið sig. Reynt verður að
skilgreina aðfararnám með hliðsjón
af námskeiðum í námsbraut í hjúkr-
unarfræði til þess að þeir sem þess
óska geti nýtt þann undirbúning.
Kennsluaðferðirlnámsaðferðir:
Við kennslu verður tekið tillit til
þess að um fullorðna nemendur er að
ræða og er því mikil áhersla lögð á
sjálfstæða vinnu þeirra, áhrif þeirra á
fyrirkomulag náms og ýmsar ein-
staklingsbundnar áherslur í námi.
Umræðutímar, einstaklings- og hóp-
verkefni og verkefnavinna munu því
einkenna kennslu fremur en fyrir-
lestrar og próf.
Námsefni:
Gert er ráð fyrir að nemendur
tileinki sér samþjappað námsefni á
stuttum tíma. Því verður reynt eftir
föngum að kynna lestrarefni með
nokkrum fyrirvara þannig að
nemendur geti auðveldað sér námið
með undirbúningslestri. Þetta er
nauðsynlegt fyrir þá nemendur sem
ætla sér að taka námið samhliða ein-
hverjum störfum.
Starfsþjálfun:
Nemandi getur hafið fjögurra
mánaða starfsþjálfun þegar hann
hefur lokið tilskyldum bóklegum
einingum. Starfsþjálfun getur farið
fram á heilbrigðisstofnun (einni eða
fleiri) að vali nemenda með sam-
þykki umsjónarkennara og stjórn-
enda stofnana.
Nemendur verða að jafnarði í 80%
starfshlutfalli á starfsþjálfunartíma.
Hærra hlutfall er ekki ásættanlegt
vegna verkefnavinnu og eðlis
námsins. Vilji nemendur hins vegar
vera í minna starfshlutfalli og dreifa
starfsþjálfun yfir lengri tíma er ekk-
ert því til fyrirstöðu. Hver nemandi
ber að töluverðu leyti sjálfur ábyrgð
á að nýta námstækifæri sem bjóðast,
en hann vinnur með leiðbeinanda
sem starfar á viðkomandi stofnun
auk þess sem kennari frá námsbraut í
hjúkrunarfræði leiðbeinir við gerð
verkefnis/verkefna. Stofnanir þar
sem starfsþjálfun fer fram þurfa að
uppfylla ákveðin skilyrði sem eru
sett fyrir hvert viðbótarnám.
Námsmat:
\ lok hvers námskeiðs fer fram
námsmat og eru að jafnaði gefnar
einkunnir eða umsagnir fyrir frammi-
stöðu. Jafnframt meta nemendur
ýmsa þætti námskeiðsins og gera
grein fyrir áliti sínu. Á starfsþjálfun-
artíma velja nemendur klíniskt við-
fangsefni, sem þeir skoða sérstak-
lega og skrifa um greinargerð, sem
kynnt er nemendum og öðru sam-
starfsfólki.
26 HJÚKRUN Vsi — 67. árgangur